Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 22
VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það er í mörg horn að líta á stóru heimili og þegar blaðamaður nær sambandi við Karl Andreassen, for- stjóra Ístaks, er á hann á milli funda. Fyrirtækið stendur nú m.a. í stór- ræðum á Melunum þar sem Hús ís- lenskra fræða er nú risið og fyrir- tækið vinnur að fullnaðarfrágangi á því. Í framtíðinni verða mestu dýr- gripir íslensku þjóðarinnar varð- veittir í rammgerðum hvelfingum hússins. Flestum þætti nóg um að hafa yfirsýn yfir framkvæmd af þessu tagi en ekki Karli. „Við vorum núna í september að hefjast handa við að breikka þjóð- veginn um Kjalarnes, þ.e. fyrsta hluta hans. Þá erum við í brúarfram- kvæmdum og mörgu fleira.“ Um þessar mundir starfa um 320 manns hjá félaginu. Aðstæður í þjóðfélaginu hafa kallað á nokkurn samdrátt en um nýliðin áramót voru starfsmenn- irnir um 400. Margt í pípunum „Það hefur dregið úr framkvæmd- um á einkamarkaði en útboðsmark- aðurinn er nokkuð kraftmikill og við sjáum mörg stór verkefni við sjón- deildarhringinn. Það eru t.d. stórir verkþættir varðandi Nýja Landspít- alann framundan. Þá eru einnig framundan PPP-verkefni [sam- vinnuverkefni einka- og opinberra aðila] á borð við tvöföldun Hvalfjarð- arganga, Hornafjarðarbrú, jarðgöng í Reynisfjalli og vegur um Öxi.“ Líkt og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu áður eru verkefni Ís- taks ekki aðeins bundin við Ísland. Þannig hefur fyrirtækið m.a. gert sig gildandi við stórframkvæmdir á Grænlandi þar sem Karl þekkir mjög vel til en fyrir þremur árum lauk framkvæmdum við nýja stór- skipahöfn í Nuuk og var það stærsta fjárfesting í sögu landsins. Var að- koma Ístaks að verkefninu í sam- starfi við danska móðurfélagið sem keypti það fyrrnefnda árið 2015. Það var svo undir árslok í fyrra sem Ístak varð hlutskarpast í útboði á alverki nýrrar skóla- og menningarbygging- ar í Nuuk sem kosta mun ríflega 13,5 milljarða króna. „Verkefninu miðar vel. Við erum búin að steypa mest af botnplötunum fyrir veturinn og höldum svo áfram með verkið eins og hægt er í vetur en gerum eitthvert hlé á framkvæmd- unum um skamma hríð og byrjun svo aftur og fullur kraftur næst svo aftur þegar fer að vora í Nuuk en vænt- anlega verður núna hlé á fram- kvæmdum yfir vetrarmánuðina og munum við svo halda verkinu áfram þegar vorar.“ Horfa til fleiri verkefna Er skólabyggingin á Grænlandi stærsta einstaka verkefnið sem Ístak fæst við um þessar mundir en þá hef- ur fyrirtækið einnig boðið í uppbygg- ingu nýrrar flugstöðvarbyggingar sem fyrirhugað er að reisa í Nuuk í tengslum við nýjan og stærri flugvöll. Síðustu tvo áratugi hefur Ístak einnig komið að stórum verkefnum í Noregi og sótti það mörg slík í kjölfar efnahagshrunsins þegar lítið var um framkvæmdir hér á landi. Gerði Ístak m.a. tíu jarðgöng, reisti tvær vatns- aflsvirkjanir og fjölmarga vegi og önnur mannvirki í landinu. Það er hins vegar ekki svo að starfsfólki Ístaks sé alltaf kalt á hönd- unum við framkvæmdir í Noregi, á Grænlandi og hér heima. Á árunum 2009-2011 reisti fyrirtækið t.d. 17 hús á Jamaíku og því er ljóst að fyrirtækið sækir verkefni þar sem þau gefast og þar sem hægt er að bjóða í spennandi stórframkvæmdir. Og Karl segir að Ístak eigi gott með að fóta sig á útboðsmarkaði þar sem hagstæðustu og traustustu boðum er tekið. „Fyrirtækið er í raun stofnað í tengslum við útboðsmarkaðinn. Það voru feðgarnir Kay og Sören Langvad sem höfðu frumkvæðið ásamt þeim Gunnari Möller, Einari Sigurðssyni, Páli Sigurjónssyni og Jónasi Frí- mannssyni. Það gerðu þeir í framhaldi af því að Alþingi samþykkti lög um að opinberar framkvæmdir skyldu boðn- ar út,“ útskýrir Karl og segir að laga- setningin hafi orðið til þess að öflug og sjálfstæð verktakafyrirtæki hafi tekið að mótast hér á landi. Fyrstu stóru verkefni Ístaks voru miðlunarfram- kvæmdir við Þórisvatn, Vantsfell- sveita og stækkun Búrfellsvirkjunar og því var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Í áranna rás hefur svo hvert stórverkefnið rekið annað. Hefur félagið m.a. komið að stórum verkefnum varðandi upp- byggingu á Keflavíkurflugvelli. „Fyrsta aðkoma Ístaks að flugvell- inum var fyrsti áfangi flugstöðvarinn- ar, hinnar svokölluðu Norðurbygg- ingar sem reist var á árunum 1985-87. Þá unnum við líka að byggingu Suð- urbyggingarinnar í samstarfi við Højgaard & Shultz á árunum 2000- 2001.“ Þar með var saga Ístaks á vellinum ekki öll því á árunum 2004-2005 vann fyrirtækið að stækkun norðurbygg- ingarinnar, innanhússfrágangi við stækkun suðurbyggingar á árunum 2014-16 og stækkun tengibyggingar 2017-2019. „Loks komum við að stækkun á steyptum flughlöðum austan flug- stöðvarinnar á árunum 2016-2018,“ segir Karl. Spurður hvort hann telji að Ístak muni koma að frekari upp- byggingu flugvallarins á komandi ár- um segir hann allt óljóst í þeim efn- um þar sem um útboðsverk er að ræða, „en við tökum að sjálfsögðu þátt og ættum að eiga möguleika á fleiri verkum. Það er hins vegar ánægjulegt að sjá að uppbyggingin eigi að halda áfram á vellinum þrátt fyrir bak- slagið sem nú hefur orðið.“ Framfarir í byggingariðnaði Spurður út í framtíð byggingar- og farmvæmdaiðnaðarins á Íslandi seg- ir Karl að flest bendi til þess að hún sé björt. Mikil framþróun sé að verða á mörgum sviðum sem mikilvægt sé að hagnýta og að Ístak láti ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Nefnir hann í því sambandi hina svokölluðu BIM-tækni (e. Building Information Managment). „Það er tækni sem við nýtum í okkar starfsemi við hönnun og stjórn framkvæmda. Með henni er m.a. hægt að skoða allar teikningar í sýndarveruleika. Það er mikilvægt á kynningarstigi en einnig meðan á hönnun stendur. Þannig er t.d. hægt að nýta tæknina til þess að kanna hvort flóknar járnabindingar passi í steypumót og eins hvort t.d. loft- ræstibúnaður rekist utan í aðrar lagnir sem búið er að teikna, svoköll- uð árekstragreining. Þetta getur sparað mikla fjármuni og tryggt að framkvæmdir gangi hnökralaust fyr- ir sig.“ Þarf að gefa því tíma Karl ítrekar þó að tækni af þessu tagi sé ekki sjálfsögð viðbót í starf- semi eins og hjá Ístaki. Það taki tíma að vinna hlutina með þessari nálgun og þar megi ekki slá slöku við. For- senda þess að hún nýtist sem skyldi sé að vanda til verka á því sviði sem öðrum. Einkunnarorð Ístaks eru „frumkvæði í fyrirrúmi“ og það má augljóslega greina á tali Karls þegar hann ræðir sögu félagsins og fram- tíðartækifæri að þar fer maður sem nýtur augnabliksins. Það hlýtur að vera gefandi að koma að stórum verkefnum sem brúa ár, tengja sveit- ir landsins saman eða þeim sem rísa upp af grunni til þess að standa um ókomna tíð. Mörg stór framkvæmda- verkefni eru í farvatninu Morgunblaðið/Eggert Framkvæmd Ístak vinnur nú að uppbyggingu Húss íslenskra fræða á Melunum og mun skila því fullbúnu.  Ístak fagnar 50 ára afmæli  Tvöfalda nú fyrsta hluta Kjalarnessvegar 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 21. nóvember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.32 Sterlingspund 180.47 Kanadadalur 104.05 Dönsk króna 21.652 Norsk króna 15.091 Sænsk króna 15.804 Svissn. franki 149.4 Japanskt jen 1.3105 SDR 193.95 Evra 161.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.0141 Hrávöruverð Gull 1857.4 ($/únsa) Ál 1978.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.96 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Landsvirkjunar á þriðja ársfjórðungi nam 17,6 millj- ónum dollara, jafn- virði 2,4 milljarða króna og lækkaði um 17,5% miðað við sama tímabil í fyrra þegar hagn- aðurinn nam 21,4 milljónum dollara. Raforkusala dróst saman um 10,4 milljónir dollara, jafnvirði 1,4 milljarða króna og nam 79,7 milljónum dollara. Rekstrarkostnaður jókst á sama tíma um 4% og nam 64,6 milljónum dollara, jafnvirði 8,8 milljarða króna. Það sem af er ári nemur hagnaður Landsvirkjunar 61,2 milljónum dollara, jafnvirði 8,3 milljarða króna. Er hagnaðurinn 32% minni það sem af er ári miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2019. Í tilkynningu frá félaginu segir Hörð- ur Arnarson forstjóri að veirufarald- urinn setji áfram mark sitt á reksturinn. „Skórinn kreppir að hjá viðskipta- vinum fyrirtækisins, með minnkandi eftirspurn og lækkandi afurðaverði. Eft- ir mikla lækkun skulda á síðasta áratug er Landsvirkjun þó í ágætri stöðu til að standa af sér storminn og standa með viðskiptavinum sínum á þessum krefj- andi tímum.“ Hagnaður Landsvirkj- unar dregst saman Hörður Arnarson STUTT Forsögu Ístaks má í raun rekja allt aftur á fjórða áratug síðustu aldar. Þá kom til landsins ungur maður að nafni Kaj Langvad á vegum danska verktakafyrirtækisins Höjgaard & Schultz sem vann að uppbyggingu Ljósafossvirkjunar í Sogi. Var honum einnig falið að hafa umsjón með lagningu hita- veitu milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur og þegar stríðið skall á varð úr að fjölskylda hans dveldi með honum hér á landi. Það var kona hans, Selma Gudjohnsen, og sonur þeirra Sören Langvad. Lauk hann stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík og fyrri hluta verkfræðináms við HÍ. Síðar keypti Kaj múrverks- fyrirtækið E.Phil & Sön sem hasl- aði sér nýjan völl á framkvæmda- markaði, m.a. við hafnargerð í Danmörku og vatnsaflsvirkjanir hér á landi. Kom Sören að starf- seminni með föður sínum og tengdust þeir m.a. byggingu Búr- fellsvirkjunar þar sem fyrirtæki þeirra vann að framkvæmdum ásamt hinu sænska SENTAB. Var það gert í gegnum Almenna bygg- ingarfélagið, sem var í raun eigin- legur grunnur að Ístaki. Sören Langvad ann mjög ætt- jörð sinni í norðri og vann ötullega að auknu samstarfi dansks og ís- lensks athafnalífs. Lét hann sig mjög varða útbreiðslu íslenskrar menningar í Danmörku. Var hann sæmdur riddarakrossi fálkaorð- unnar 1977, stórriddarakrossi árið 1981 og stórriddarakrossi með stjörnu árið 1999. Danskt ævintýri varð íslenskt ÆVINTÝRI SEM TÓK ÓVÆNTA STEFNU Sören Langvad fæddist í Danmörku 1924 og lést árið 2012, á 88. aldursári. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.