Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Tillögur um breyt-
ingar á gildandi aðal-
skipulagi Reykjavík-
urborgar (AR 2010 –
2030) voru formlega
kynntar af hálfu borg-
arinnar 23. október sl.
Gerðar eru töluverðar
breytingar á stefnu
borgarinnar um íbúða-
byggð og samgöngur.
Auk þess sem skipu-
lagstímabilið er lengt um 10 ár, eða
til ársins 2040. Öll uppbygging íbúða-
svæða næstu tvo áratugina verða því
á þéttingarreitum, flestum nærri
borgarlínu. Mikil og vönduð grein-
ingarvinna liggur að baki þessari
endurskoðun, m.a. húsnæðisáætlun,
greiningarvinna fyrir borgarlínu og
svokallað grænt plan. Hægt er að
gera athugasemdir við tillögurnar til
24. nóvember nk.
Tilgangurinn með þessum skrifum
er að hvetja borgarbúa til að kynna
sér þessa skipulagstillögu sem er
ætlað að móta höfuðborgina okkar
næstu tvo áratugina og jafnvel leng-
ur. Mynda sér skoðun og finna út
hvort þeir séu sammála þeirri skipu-
lagsstefnu sem er verið að boða.
Þessi sama stefna hefur raunar verið
við lýði í um áratug, en hún felst
fyrst og fremst í áframhaldandi þétt-
ingu byggðar og auknum áherslum á
vistvænar samgöngur – nú borgar-
línu. Allir hafa rétt til að koma með
ábendingar og gagnrýni á auglýstum
kynningartíma. Þótt kynningarefni
skipulagsins sé vandað og mikið að
vöxtum er ekki þar með sagt að allt
sem þar kemur fram sé hafið yfir já-
kvæða gagnrýni. Það er einmitt til-
gangurinn með þessari grein að
hvetja til faglegrar umræðu um
helstu stefnumið skipulagsins. Hér
verður drepið á nokkra mikilvæga
þætti.
1. Hlutverk höfuðborgar sem mið-
punktur samgangna og þjónustu
Sundabraut: Hlutverk Reykjavík-
ur/ Höfuðborgarsvæðisins í fámennu
og dreifðbyggðu landi þar sem hún
er eina borgin er mjög mikilvægt.
Þar er meginhluti opinberrar stjórn-
sýslu og sérhæfðrar þjónustu, t.d.
heilbrigðisþjónusta og æðstu
menntastofnanir. Allir landsmenn
eiga rétt á góðu aðgengi að þessari
þjónustu í höfuðborginni. Því skýtur
skökku við að Sundabraut, sem er
mögulega þriðja aðkomuleiðin að
höfuðborginni og flóttaleið borg-
arbúa við náttuúruvá, er ekki með í
þessari aðalskipulagsáætlun. Áfram
verða íbúar Mosfellsbæjar og fólk
búsett á Vestur- og Norðurlandi (auk
annarra) að aka langa vegalengd í
þéttri byggð og umferðarþröng nið-
ur Ártúnsbrekku. Ekki má gleyma
því að þegar kosið var um samein-
ingu Kjalarness við Reykjavík 1997
var því lofað að Sunda-
braut kæmi innan fárra
ára sem myndi gjör-
breyta aðgengi íbúa á
Kjalarnesi að þjónustu
í Reykjavík. Þannig
myndi vegalengdin frá
Grundahverfi niður í
Kvos styttast um 9 km
með Sundabraut.
Miðstöð innanlands-
flugs: Í gildandi aðal-
skipulagi sem og í AR
2040 er miðað við að
landsvæði Vatnsmýrar
sem nú er nýtt fyrir Reykjavíkur-
flugvöll verði tekið undir íbúðabyggð
eftir um áratug og flugstarfsemin
flutt í Hvassahraun þar sem byggður
verði nýr flugvöllur. Nú er unnið að
veðurfarfarsmælingum í Hvassa-
hrauni, en spurningin er hvort ekki
þurfi einnig að vinna áhættumat
vegna mögulegra eldgosa á Reykja-
nesskaganum og hraunrennslis yfir
Hvassahraun. Eldgos voru síðast á
Reykjanesskaga fyrir um 700 árum.
Í viðhorfskönnunum sem Land-ráð
sf. hefur unnið síðustu ár hefur
meirihluti íbúa höfuðborgar-
svæðisins og annarra landsmanna
viljað halda flugvellinum áfram í
Vatnsmýri. Margir telja að flug-
starfsemin verði ekki flutt úr Vatns-
mýri fyrr en jafngóður kostur finnst
utan höfuðborgarsvæðisins.
2. Borgin við Sundin og byggða-
mörk.
Borgin við Sundin: Nálægð við sjó
og vötn telst til mikilla gæða fyrir
íbúðabyggð. Slagorð eins og borgin
við Sundin hefur því oft verið notað í
kosningabæklingum fyrir borgar-
stjórnarkosningar. Reykjavíkurborg
á mikil landsvæði við sjó til norðurs,
Geldinganes, Álfsnes og Kjalarnes.
Geldinganes er um 100 ha. að flat-
armáli, álíka stórt landsvæði og mið-
bærinn innan Hringbrautar –
Snorrabrautar. Þar mætti koma fyr-
ir að lágmarki 15 þúsund manna
sjálfbærri íbúðabyggð auk atvinnu-
og þjónustuhúsnæðis. Margar borgir
sem standa við sjó, t.d. Stokkhólmur,
nýta vel eyjar og nes fjarri miðborg
fyrir byggð og byggja þar upp sjálf-
bæra og öfluga borgarhluta. Mörg-
um þykir hafnar- og iðnaðarstarf-
semi taka nú þegar upp fullstóran
hluta af norðurströnd borgarinnar
og takmarki þar aðgang borgarbúa
að sjónum. Er ekki kominn tími til að
nýta strandsvæðin betur fyrir íbúða-
byggð og útivist?
Vaxtarmörk: Í AR 2040 eru eins
og í gildandi aðalskipulagi sett vaxt-
armörk byggðar sem miðast við ystu
mörk byggðar til norðurs og austurs
um 2010. Allt nýtt íbúðarhúsnæði
sem byggt verður næstu tvo áratug-
ina verður því á þéttingarreitum inn-
an núverandi byggðar. Sú stefna að
ekki megi hnika byggðajaðrinum út
er nokkuð einstrengingsleg. Rökin
byggjast fyrst og fremst á aksturs-
vegalengd og mengun frá bíla-
umferð. Mengun frá bílum fer nú
snarminnkandi með rafvæðingu bíla-
flotans og notkun rafskutla á styttri
vegalengdum er umhverfisvæn. Mið-
punktur íbúðabyggðar í Reykjavík
er nú nærri Vogaskóla (og höfuð-
borgarsvæðisins er í miðjum Foss-
vogsdal.) Þannig að byggð í Geld-
inganesi er ekki mikið fjær
miðpunkti byggðar en byggð í mið-
borginni. Borgin Portland í Oregon
hefur verið fyrirmynd margra borg-
arsvæða um vaxtarmörk. Margt hef-
ur tekist vel, en borgayfirvöld hafa
barist við hátt fasteignaverð í borg-
inni svo margir hafa flutt til ná-
grannabyggða utan vaxtarmarka þar
sem fasteignaverð er mun lægra
(Bjarni Reynarsson, Borgir og borg-
arskipulag, 2014, bls. 104).
3. Um þéttingu byggðar og húsa-
gerðir
Þéttleiki: Eitt af sérkennum eldri
byggðar í Reykjavík er hve smágerð
og fínleg hún er miðað við flestar
borgir. Mörgum þykja Þingholtin og
gamli Vesturbærinn sérlega falleg
og hlýleg íbúðahverfi. Þar er að finna
lítil sérbýlishús og 2 til 3 hæða sam-
býlishús. Þéttleiki byggðar þar er
samt með því hærra sem gerist í
Reykjavík. Þetta er það yfirbragð
sem Guðmundur Hannesson, læknir
og áhugamaður um skipulag, vildi
halda í. Hann mælti því með því að
íbúðabyggð í Reykjavík væri ekki
hærri en 2 til 3 hæðir vegna hnatt-
stöðu og lágs sólargangs stærsta
hluta ársins. (Um skipulag bæja,
1917). Þá má nefna að frændur okkar
Danir hafa verið snillingar í að skipu-
leggja og byggja þétta og lága byggð
um langan aldur, en þar lærðu Guð-
mundur Hannesson og fyrstu arki-
tektanir okkar. Margt má læra af
Dönum í hönnun og skipulagi.
Undanfarin ár hafa íbúðarhúsin á
þéttingarreitum borgarinnar oftast
verið 5 til 7 hæðir og lítið um torg til
útivistar, né breið göturými fyrir
umferð akandi, gangandi og hjólandi.
Fyrir utan takmarkaðan fjölda bíla-
stæða. Margir hafa lýst áhyggjum
sínum af þessari stefnu (sem til
stendur að framlengja til 2040) og
telja að við séum nú að byggja ný
einsleit Skuggahverfi um alla borg.
Er ekki rétt að staldra við? Þurfum
við að byggja svona samþjappaða
byggð. Er það það sem borgarbúar
vilja? Þá má nefna að einn af okkar
helstu sérfræðingum í umhverfis-
málum, Jukka Heinonen, prófessor í
verkfræði við HÍ, telur að skipulags-
áætlanir um þéttingu byggðar í
borgum hafi víðast ekki náð tilætl-
uðum árangri við losun gróðurhúsa-
lofttegunda. (Reykjavík á tímamót-
um, 2017, bls. 107. Bjarni
Reynarsson ritstjóri)
Húsagerðir: Um aldamótin síðustu
var um fjórðungur íbúða í Reykjavík
í sérbýlishúsum (einbýlis-, par- og
raðhús) og fimmtungur íbúða í sam-
býlishúsum með 3 til 5 íbúðum. Rúm-
ur helmingur íbúða var í fjölbýlis-
húsum (blokkum). Frá aldamótum
hafa nær eingöngu verið byggð fjöl-
býlishús. Vilja allir búa í blokkum í
framtíðinni? Þarf ekki meiri fjöl-
breytni í húsagerðum? Í áratugi hafa
fjölmargir Reykvíkingar flutt úr
borginni í sérbýlishús í grannsveit-
arfélögunum og nú er straumurinn á
Suðurnes, Akranes og Selfoss þar
sem er meira framboð á sérbýli en á
höfuðborgarsvæðinu. Ég hef í haust
gert óformlega könnun á sér-
býlismarkaðinum á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er greinilega
margföld eftirspurn miðað við fram-
boð á sérbýli.
Það sem sérbýli hefur fram yfir
blokkirnar er jarðnánd, þ.e. smá
skiki til að njóta sólarstunda og þar
sem börnin geta hlaupið örugg um.
Lóðir geta verið litlar og því hægt að
ná umtalsverðum þéttleika ef að er
stefnt. Í búsetu- og húsnæðiskönnun
sem ég vann fyrir borgaryfirvöld
2003 kom fram að um þrír fjórðu
hlutar svarenda (borgarbúa) vildu
helst búa í sérbýli ef þeir hefðu efni á
því, og um 40% töldu líklegt að þau
flyttu næst í sérbýli þegar tekið var
tillit til efnahags. Ég hef ekki trú á
að óskir fólks um sérbýli hafi gufað
upp á síðustu árum. Megináherslan í
húsnæðismálum ætti að vera sem
mest fjölbreytni í húsagerðum og
stærðum íbúða í takt við óskir borg-
arbúa.
4. Vistvænar samgöngur – borgar-
lína
Á sjöunda áratugnum var í fyrsta
aðalskipulagi Reykjavíkur (AR
1962-1983) miðað við þá forsendu að
einkabíll yrði á hverju heimili í borg-
inni. Það gekk eftir og íbúar höfuð-
borgarsvæðisins búa enn að því
stofnbrautakerfi sem þá var skipu-
lagt. Á rúmum áratug hafa nær eng-
ar umbætur verið gerðar á stofn-
brautakerfinu þrátt fyrir aukna
bílaumferð, sem leitt hefur til vax-
andi umferðartafa á álagstímum.
Þrátt fyrir að umtalsvert fé hafi ver-
ið lagt í almenningssamgöngur á
sama tíma er hlutfall strætó enn að-
eins 4% af akandi umferð. Yfir tveir
þriðju hlutar íbúa höfuðborgarsvæð-
isins ferðast milli heimilis og vinnu á
einkabíl (sjá ferðavenjukannanir
Land-ráðs sf.). Borgarbúar kjósa
langflestir að ferðast með eigin bíl til
að sinna fjölþættum erindum og í
hvert sinn sem kaupmáttur eykst
vex innflutningur bíla.
Það er jákvætt að veita borgar-
búum sem flesta ólíka samgöngu-
kosti, þ.m.t. að styrkja almennings-
samgöngur, en það þarf að meta
kostnað og ábata af raunsæi. Þór-
arinn Hjaltason umferðarverkfræð-
ingur hefur skrifað nokkrar greinar í
Morgunblaðið um borgarlínuverk-
efnið. Hann telur að bæta megi al-
menningssamgöngur á höfuðborgar-
svæðinu með mun minni kostnaði en
með borgarlínu og svipuðum ávinn-
ingi í farþegafjölda. Hann telur að
fjöldi bílstjóra sem muni færa sig yf-
ir í borgarlínu sé ofmetinn og þar
með mun ekki draga eins mikið úr
umferð einkabíla og að er stefnt.
Nokkrir hagfræðingar hafa í
greinaskrifum dregið í efa þjóðhags-
legan ávinning af borgarlínu, þ.e.
ýmsar forsendur standist ekki skoð-
un. Þá hafa ýmsir bent á að tækni-
þróun næstu ára og áratuga muni
hafa mikil áhrif á samgöngur þannig
að borgarlína geti lent í erfiðri sam-
keppni við nýja rafræna samgöngu-
kosti. Einnig má benda á ýmsa
möguleika sem deilihagkerfið býður
upp á til að draga úr umferðar-
þunga. Þar sem borgarlínuverkefnið
er þegar komið af stað tel ég rétt að
klára fyrst legginn Kvos – Grafar-
holt (nýjan borgarás) og meta
árangur af þeirri aðgerð áður en far-
ið verður í að tengja borgarlínu út í
öll úthverfi höfuðborgarsvæðisins.
5. Samantekt: Þarfir og óskir borg-
arbúa
Borgarskipulag er ekki aðeins
hugsað sem stjórntæki þar sem sér-
fræðingar ákveða ramma uppygg-
ingar í krafti sérþekkingar sinnar,
án virks samráðs við íbúa og fyrir-
tæki, þ.e. að þeir einir viti hvað fólki
er fyrir bestu. Er það skynsamlegt
að öll uppbygging í Reykjavík næstu
tvo áratugina verði með því að þétta
enn frekar byggð í borginni? Vilja
flestir borgarbúar búa í 5-7 hæða
fjölbýlishúsum á þéttingarreitum?
Er í raun engin eftirspurn meðal
borgarbúa eftir sérbýli? Er stór
hluti borgarbúa tilbúinn í að leggja
einkabílnum og nota borgarlínu?
Hvers vegna má hvergi byggja mis-
læg gatnamót á höfuðborgarsvæð-
inu þrátt fyrir að rannsóknir sýni að
það sé öruggasta gerð gatnamóta
sem dragi verulega úr slysahættu?
Þarf ekki að gera ítarlega könnun
meðal íbúa og forsvarsmanna fyrir-
tækja og stofnana á höfuðborgar-
svæðinu og leita eftir skoðunum
þeirra á ofangreindum spurningum?
Hver er sýn íbúanna á framtíðar-
borgina?
Um þéttingu byggðar og borgarlínu
Eftir Bjarna
Reynarsson »Margar borgir sem
standa við sjó, t.d.
Stokkhólmur, nýta vel
eyjar og nes fjarri mið-
borg fyrir byggð og
byggja þar upp sjálf-
bæra og öfluga borg-
arhluta.
Bjarni Reynarsson
Höfundur er skipulagsfræðingur.
Meðalferðatími frá heimili til vinnu er stöðugt að lengjast á höfuðborgar-
svæðinu vegna umferðarþunga á stofnbrautum. Hlutfall þeirra sem ferðast
með einkabíl á höfuðborgarsvæðinu dróst saman eftir bankahrun 2007 en
hefur farið aftur vaxandi síðustu ár með auknum kaupmætti.
Myndir/Ferðavenjur sumarið 2018. Land-ráð sf. Unnið fyrir Vegagerðina.
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- meira fyrir áskrifendur
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.