Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
✝ Petrea Að-alheiður Gísla-
dóttir fæddist á
Hóli í Ólafsfirði 30.
október 1930. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hornbrekku á
Ólafsfirði 12. nóv-
ember 2020.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Kristín Helga Sig-
urðardóttir húsfreyja, f. 6. júní
1897 á Vatnsenda í Héðinsfirði,
d. 10. september 1986 á Ólafs-
firði, og Gísli Stefán Gíslason,
bóndi á Hóli í Ólafsfirði, f. 5.
desember 1897 á Minna-Holti,
Skagafirði, d. 26. mars 1981 á
Ólafsfirði.
Systkini Petreu eru Anna
1954 Aðalgeiri Jónssyni, f. 29.
ágúst 1925, d. 29. ágúst 1982.
Foreldrar hans voru Jón Jóns-
son, bóndi á Vatnsenda og síðar
á Auðnum, f. 13. september
1886, d. 11. febrúar 1939, og
Anna Guðvarðardóttir, ljós-
móðir og saumakona, f. 19. júní
1890, d. 5. ágúst 1933.
Börn þeirra: 1) Anna Linda, f.
20. september 1954, maki: Reyn-
ir Sæmundsson (skildu), börn:
María, f. 4. júlí 1979, og Eva, f.
26. júní 1986, maki: Grétar
Leifsson, f. 14. september 1957.
2) Hildur Bryndís, f. 5. október
1956. 3) Erla, f. 8. mars 1959,
maki: Jóhann Freyr Pálsson,
börn: Sunna, f. 2. apríl 1981, og
Saga, f. 21. júlí 1987. 4) Vignir,
f. 10. júlí 1962, maki: Jónína
Símonardóttir, f. 12. október
1963, börn: Símon Darri, f. 12.
desember 1982, Íris Hlín, f. 2.
ágúst 1988, og Petrea Kristín, f.
13. mars 1995.
Útför Petreu fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 21.
nóvember 2020, klukkan 14.
Lilja, f. 5. október
1920, d. 27. ágúst
2011, Gísli Kristinn,
f. 10. apríl 1922, d.
19.janúar 2014,
Sigurður Halldór, f.
25. desember 1923,
d. 13. maí 1997,
Björn, f. 23. júní
1925, d. 14. janúar
2010, Ingibjörg
Soffía, f. 18. apríl
1927, d. 26. sept-
ember 1927, Ólafía Jónína, f. 15.
ágúst 1928, d. 5. ágúst 2012,
Halldóra Guðrún, f. 9. október
1929, d. 24. maí 2013, Ásta, f. 18.
ágúst 1933, d. 2. desember 2010,
Guðrún Sólrún, f. 27. janúar
1935, d. 25. júlí 1935, Guð-
mundur Jón, f. 24. mars 1935.
Petrea giftist 23. október
Elsku amma.
Það eru margar minningar-
myndir sem hafa komið upp í huga
okkar, barnabarna þinna, síðustu
daga.
Það var svo alltaf ljúft að koma
til þin í Ólafsfjörðinn og hefð fyrir
því að þegar við mættum á svæðið
var flautað úr bílnum og þú komst
um hæl í dyrnar með fallega bros-
ið þitt og alltaf svo fín. Það var
alltaf kátt á Kirkjuveginum þegar
við fjölskyldan hittumst öll hjá
þér. Þá var setið við eldhúsborðið,
sagðar sögur og hlegið. En það er
einmitt svolítið einkenni okkar
allra, okkur finnst öllum mjög
gaman að hlæja og tökum reglu-
lega hlátursköst saman. Þar varst
þú einnig með, þú gast fengið
þessi yndislegu hlátursköst eins
og við flest í þessum legg.
Þegar við frænkur ræddum
saman þær minningarmyndir sem
hafa komið upp hjá okkur að und-
anförnu erum við afar sammála
um mjög margt.
Við sjáum þig fyrir okkur við
eldavélina að baka heimsins bestu
pönnsur, fullkomnar í laginu auð-
vitað. Eða að baka kleinur, allar
nákvæmlega eins í laginu. Þig sitj-
andi við skrifborðið í litla herberg-
inu að sauma og föndra. Þú varst
einstaklega flink (sagt með norð-
lenskum framburði) í höndunum
og óendanlega vandvirk. Þú gerð-
ir allt hundrað prósent. Við geym-
um allar og varðveitum fallegu
jólagjafirnar frá þér sem þú bjóst
til handa okkur. Hvort sem það
voru Barbie-leikföng, nálapúði
eða jólaskraut.
Þú nenntir alltaf að spila við
okkur og í leiðinni var svo notalegt
að spjalla við þig um daginn og
veginn. Þú ræddir mikið um veðr-
ið og varst alltaf inni í öllum þjóð-
félagsmálum. Það var alltaf borð-
aður kvöldmatur á slaginu sex og
svo var sest beint fyrir framan
sjónvarpið og horft á línulega dag-
skrá. Þú lást stundum í sófanum á
meðan við nudduðum köldu tás-
urnar þínar. Svo var alltaf kvöld-
kaffi. Kleinur, kex, vínarbrauð
með bleiku glassúri og ísköld
mjólk.
Það var algjör skylda að brjóta
fötin sín saman fyrir svefninn og
því hlýddum við allar, svona oft-
ast.
Nægjusemin var þér eðlislæg.
Þú nýttir allt vel og fórst vel með
alla hluti. Þegar eitthvað bilaði var
gert við það. Sófasettið í sparistof-
unni er alltaf jafn fínt. Samt mátti
alltaf sitja þar og leika.
Þér þótti svo vænt um okkur,
þitt fólk. Og barnabarnabörnin, vá
hvað þér þótti óendanlega vænt
um þau og fannst gaman að heyra
hvað þau voru að bralla hverju
sinni.
Það var svo ánægjulegt að sjá
hvað þú varðst félagslega virk í
seinni tíð. Tókst þátt í starfi eldri
borgara og varst í kór. Þú hjólaðir
á hverjum degi og syntir á hverj-
um morgni.
Það er ómetanlegt að eiga
ömmu sem var svona óendanlega
dugleg, heiðarleg og samvisku-
söm. Við finnum allar fyrir styrk-
leikum þínum og berum allar eig-
inleika þess að vera komnar frá
sterkri kvenfyrirmynd.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Það verður tómlegt að koma í
fjörðinn og engin amma í dyrun-
um á Kirkjuveginum, með mjúku
handleggina og fallega brosið.
Við munum varðveita fallegu
minningarmyndirnar í huga okkar
og halda áfram að segja börnum
okkar og barnabörnum sögur af
ömmu Petru og að sjálfsögðu
hlæja saman, eins og okkur einum
er lagið.
María, Sunna, Eva, Saga,
Íris Hlín, Petrea Kristín og
Símon Darri.
Elsku besta amma mín, ég á
erfitt með að sætta mig við það að
þú sért farin frá okkur. Þín verður
sárt saknað en minningarnar
munu lifa og við ylja okkur við
þær. Í ömmuhús var alltaf gott að
koma svo lengi sem við klædd-
umst ekki götóttum buxum eða
sokkum þar sem táin stóð út, því
þá fengum við ekki að halda spjör-
unum þar sem þú varst búin að
taka fram saumavélina eða nál og
tvinna. Þú varst svo ótrúlega flink
í höndunum, þetta var ekki ásætt-
anlegt og algjör skömm að láta sjá
okkur svona og gleymi ég því ekki
þegar ég var vaxin úr grasi og
mætti til þín í nýjustu tísku, glæ-
nýjum, götóttum og vel tættum
gallabuxum, mjög svo ánægð með
kaupin, en þú stoppaðir mig; hing-
að inn færi ég ekki í þessu! Tókst
fram buxur af þér og bauðst mér,
ilmurinn úr eldhúsinu sannfærði
mig um að það væri þess virði að
staldra við svo ég þáði að fá þær
lánaðar hjá þér. Þær náðu mér
rétt niður fyrir hné og mikið sem
við gátum hlegið að þessu. En
bakkelsið var borið á borð eins og í
öll hin skiptin sem komið var í
ömmuhús. Þú varst svo pottþétt,
með allt á hreinu, allt svo fínt og
flott í kringum þig og kenndir okk-
ur barnabörnunum að gera hlut-
ina vel, ekki láta þá frá okkur
nema þeir væru pottþéttir, ekki
bara að brjóta saman heldur
brjóta rétt saman, ekki bara að
baka snúða heldur baka rétta
stærð af snúðum, ekki of dökka og
ekki of ljósa, annars myndu þeir
aldrei vera bornir fram. Ég man
eftir öllum klukkustundunum sem
þú eyddir við eldhúsborðið að
spila við mig, ég kunni öll þessi
borðspil, ekki af því að þér fannst
það eitthvað sérstaklega
skemmtilegt, heldur vegna þess
að þú varst svo hrædd um að ég
myndi koma mér fyrir í mjúka sóf-
anum þínum og fá mér blund, ég
væri svo skapill ef þú þyrftir að
vekja mig aftur. Því í ömmuhúsi
var best að sofna, í heitu húsinu
með útvarpið í botni inni í eldhúsi
og annað útvarp inni í saumaher-
bergi, helst á annarri stöð, sjón-
varpið í gangi og þú að bardúsa í
eldhúsinu. Best var þó þegar ég
mátti taka kríu og fékk að stinga
köldum tánum í buxnavasann þinn
meðan þú last dagskrána.
Amma, þú varst alltaf til staðar,
hjá þér var alltaf opið hús fyrir
mér og mínum vinum, til þín gat
ég leitað til um allt á milli himins
og jarðar og oftast hafðirðu bestu
lausnirnar við vandamálum mín-
um. Og ég mun alltaf muna eftir
þessum einstaka hlátri sem þú
hafðir og brosa við tilhugsunina.
Takk amma fyrir allan tímann
sem þú hafðir fyrir mig, fyrir allt
traustið sem þú gafst mér, fyrir
alla gleðina sem þú færðir mér,
fyrir allt hrósið sem þú gafst mér,
fyrir alla umhyggjuna sem þú
gafst mér, fyrir allan tímann sem
þú studdir mig, fyrir allan styrk-
inn sem þú sýndir mér og fyrir alla
ástina sem þú veittir mér.
Íris Hlín Vignisdóttir.
Petrea Aðalheiður
Gísladóttir
✝ Bryndís ÍsfeldIngvarsdóttir
fæddist í Holti,
Reyðarfirði 19. jan-
úar 1952. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Austurlands í Nes-
kaupstað 14. nóv-
ember 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Lára Ingi-
björg Guðmunds-
dóttir, f. 1923, d.
2015, og Ingvar Ísfeld Ólason, f.
1918, d. 1983. Systkini Bryndísar
eru Óla Björk, f. 1942, Kristinn
Þór, f. 1944, Inga Hólmfríður, f.
1946, Nína Guðmunda, f. 1947,
Víðir Ísfeld, f. 1949, Jenný Björg,
f. 1950, Ómar Sigurgeir, f. 1953,
Þær eiga börnin Frosta og Heru
með sambýlismönnum sínum.
2) Dagrún, f. 1974. Fyrrver-
andi eiginmaður hennar er
Tommy Larsen, f. 1973. Dætur
þeirra eru Fríða, f. 2003, Katrín,
f. 2007, og Jenný, f. 2009.
Sonur Markúsar af fyrra sam-
bandi er Gylfi Þór, f. 1966. Eig-
inkona hans er Anita Johannesen.
Synir þeirra eru Bergþór Mar, f.
1998, og Sindri Þór, f. 2003.
Bryndís gekk í Barnaskóla
Reyðarfjarðar og Gagnfræða-
skólann í Neskaupstað.
Bryndís bjó á Reyðarfirði alla
sína tíð. Hún byrjaði snemma að
hjálpa til á mannmörgu æsku-
heimilinu ásamt því að vinna ýmis
störf. Má þar nefna Verslun
Gunnars Hjaltasonar, frystihús,
síldarsöltun og eigin verslunar-
og hótelrekstur. Þá vann Bryndís
í Olís um nokkurra ára skeið og
lauk sínum starfsferli hjá Byko
Reyðarfirði þar sem hún starfaði í
15 ár.
Bjarney Linda, f.
1954, Sigmar Atli, f.
1955, og Lára Ingi-
björg, f. 1956.
Árið 1973 giftist
Bryndís Markúsi
Guðbrandssyni, f.
1945. Foreldrar
hans voru Guð-
brandur Pálsson, f.
1911, d. 1953, og
María Markúsdóttir,
f. 1915, d. 1962.
Börn Bryndísar og Markúsar
eru: 1) María, f. 1974, gift Jónasi
Björnssyni, f. 1967.Börn þeirra
eru Björn Ísfeld, f. 2004, og Bryn-
dís Huld, f. 2008. Dætur Jónasar
af fyrra hjónabandi eru Veronika
Kristín, f. 1990, og Hekla, f. 1995.
Elsku besta amma.
Takk fyrir allar góðu minning-
arnar sem þú bjóst til með okkur.
Staflar af pönnukökum og ný-
steiktar kleinur, táslunudd fyrir
lúna fætur og göngutúrar í norska
skóginum. Þú varst alltaf til í að
spila ólsen, manna og veiðimann
og við komumst sko ekki upp með
að stokka illa eða gefa vitlaust.
Einhverjum okkar fannst þú
reyndar nokkuð tapsár í ólsen, en
við höfum það bara okkar á milli.
Það var svo notalegt að skríða
upp í til þín og kúra smá fyrir
skólann eða bara til að fá knús.
Þú hvattir okkur til að vera dug-
leg að lesa og oft lásum við fyrir
þig.
Þú hafðir endalausa þolin-
mæði og trú á okkur. Hvort sem
við vorum að spila á tónleikum,
syngja, keppa í fótbolta eða
handbolta, ef þú varst á svæðinu
þá mættir þú og hvattir okkur
áfram.
Þú varst best í heimi, amma.
Við vitum að þú varst mjög sorg-
mædd yfir að fá ekki að vera með
okkur lengur. Við vitum líka að
þú elskaðir okkur og varst stolt
af okkur öllum. Við elskum þig
og gleymum þér aldrei.
Fríða, Björn Ísfeld, Katrín,
Bryndís Huld og Jenný.
Elsku besta frænka mín. Það
er mjög óraunverulegt að þú sért
farin, ég hefði viljað hafa þig
lengur hjá okkur en mikið sem
ég er þakklát fyrir þann tíma
sem við fengum í lokin.
Hann er mér mjög dýrmætur
og minningarnar munu hlýja mér
um ókomna tíð.
Þú varst alltaf svo jákvæð, hlý
og góð. Ég man hvað það var allt-
af gott að koma í heimsókn til þín
og kúra undir bútasaumsteppinu
þínu og hlusta á ykkur mömmu
spjalla um daginn og veginn.
Mér finnst sárt að kveðja þig,
við áttum eftir að ræða svo
margt um lífið og tilveruna. Mér
finnst sárt að geta ekki boðið þér
í kaffibolla loksins þegar ég er
komin heim en ég veit að þú
varst stolt af mér.
Mér finnst sárt að heyra ekki
hláturinn þinn sem smitaði frá
sér hlýju og kærleik.
Takk fyrir allt sem þú hefur
kennt mér um lífið, takk fyrir
alla handavinnuna sem þú gafst
mér, takk fyrir að vera fyrir-
mynd í lífi mínu og takk fyrir að
sýna mér hvað þú varst sterk en
samt svo auðmjúk, sterk en samt
svo viðkvæm, sterk en samt svo
hlý.
Takk fyrir allt elsku Bryndís.
Blómin fölna og laufin falla,
úti kólnar en fagurt sólarlag.
Hlýjar minningar umvefja mig alla,
í hjarta mér sérhvern dag.
(Erna Rakel)
Þín litla skotta,
Erna Rakel.
Bryndís Ísfeld
Ingvarsdóttir
Smáauglýsingar
Bækur
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
NETVERSLUN gina.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
12500 St. 10-24
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
NETVERSLUN gina.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
St. 36 - 50
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bílar
VW Caddy 4/2019 ekinn aðeins 19
þ.km. Sjálfskiptur. Bensín / Metan
umhverfisvænn gæðingur.
Verð: 2.990.000 með vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
VOLVO S90 T8 TWIN ENGINE
R-DESIGN
Ökutækið er á staðnum.
Árgerð 2020. Ekinn 0 Þ.KM
Nýskráður 11/2020. Næsta skoðun
2024.
Verð kr. 11.500.000. Litur SVARTUR.
Ekkert áhvílandi. Skipti: ÓDÝRARI
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma577-4747
LAND ROVER RANGE ROVER
EVOQUE R-DYNAMIC
Ökutækið er á staðnum.
Árgerð 2020. Ekinn 11 Þ.KM
Nýskráður 8/2019. Næsta skoðun
2023
LAND ROVER RANGE ROVER
EVOQUE R-DYNAMIC
Ökutækið er á staðnum. Árgerð 2020.
Ekinn 11 þ.km. Nýskráður 8/2019.
Næsta skoðun 2023.
Verð kr. 9.450.000. Litur GRÁR.
Ekkert áhvílandi. Skipti: ÓDÝRARI
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
Húsviðhald
Bækur til sölu
Ljóðabók Jóns Þorlákssonar
Bægisá. Alfreð Flóki teikningar .
Um Grænland að fornu og nýju.
Árbækur Espolín 1. til 12. 1.útg.
Ævisaga Árna Þórarinssonar
1 - 6. Aldarfar og örnefni í
Önundarfirði. Gestur Vest-
firðingur 1 - 5. Stjórnartíðindi
1885 til 2000. 130.bindi. Mann-
talið 1703. Kollsvíkurætt. Ponzi
18. og nítjánda öldin. Fjalla-
menn. Hæstaréttardórmr 1920 til
1960 40. bindi. Þjóðsögur Jóns
Árnasonar. Kvennablaðið fyrsta
til fjórða ár Bríet 1895.
Ódáðahraun 1 - 3. Fritzner
orðabók 1 - 4. Flateyjarbók 1 - 4.
Ferðabók Eggerts og Bjarna
1981. Íslenskir Sjávarhættir 1 -
5. Sýslumannaævir 1 - 5. Tímrit
Verkfræðinga Íslands 1 - 20 ár.
Tímarít hins íslenska
Bókmenntafélags 1 - 25.
Ársskýrsla sambands íslenskra
Rafveitnaa 1942 - 1963. Hín fyr-
sti til 44. árgangur. Skýrsla um
Landshagi á Íslandi 1 - 5.
Töllatunguætti 1 - 4. Síðasti
musterisriddarinn Parceval. Aus-
tan tórur 1 - 3. Kerling vill hafa
nokkuð fyrir snúð sinn. Nína.
Ferðabók Þ. TH 1- 4. önnur
útgáfa. Fólkð í fyrðinum 1 - 3.
Ættir Austfirðinga 1 - 9. Heims-
meistaraeinvígið í skák 1972.
Landfræðisaga Íslands 1 - 4.
Lýsing Íslands 1 - 4 plús min-
ningarbók Þ.HT. Almannak hins
Íslenska Bókmenntafélags 1875
- 2006., 33. bindi. Inn til fjalla 1 -
3. Fremra Hálsætt 1- 2. Kirkju-
ritið 1 - 23. árgangur. Bergsætt 1
- 3. V-Skafeftellingar 1 - 4.
Uppl. í síma 898 9475