Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 41
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Embætti dómara við
Landsrétt laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar eitt embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa
í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um
launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020, um
störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram
upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum,
4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum
og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun,
7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar
o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi
eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar
um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og
færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi
á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 7. desember nk. Til þess að hraða afgreiðslu
umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða
með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
20. nóvember 2020.
HÆFNISKRÖFUR
!
"
"
#
!
$%
&
%
!
'
(
%&
)
'
&
%&
*
+,
%
%
)
&
'
! %&
% STARFSSVIÐ
$.
%
% !
*
.
/
0
%&
1
%&
/
2
3)
45)
44
1
%&
'
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is