Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinnan verður ekki eins og þú ósk-
ar þér og þér finnst það fínt seinna meir.
Mundu að það eru tvær hliðar á hverju
máli.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver hluti einkalífs þíns gæti ver-
ið á allra vitorði í dag. Aðdáun þín á börn-
um og vinum er einlæg.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er komið að því að vinur þinn
verður að endurgjalda þér greiða og þitt
er að koma honum í skilning um það.
Spáðu í hvort eða hvernig það hjálpar þér
eða skaðar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til afskipta-
leysis, þegar samskiptatæknin er orðin
svona fullkomin. Láttu öfund annarra ekki
fara í taugarnar á þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fjölskyldan er hornsteinninn hvort
heldur er í gleði eða sorg. Með því áttar
þú þig á því hvað er mikilvægt og hvað
ekki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gamall vinur hefur samband og
það mun gleðja þig að sjá hversu sam-
band ykkar er ennþá sterkt. Farðu yfir allt
sem þú ert að henda frá þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nýr félagsskapur eða tengsl reynast
koma þér að gagni um ókomna tíð. Sá
hinn sami veit ekki að þú gleymir aldrei.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér er nauðsyn á því að kom-
ast aðeins í burtu frá amstri dagsins.
Hlustaðu á gagnrýni og reyndu að læra af
henni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kannt að meta góða sögu
jafn mikið og hver annar. Gefðu eftir í litlu
málunum og haltu þínu striki í þeim stóru.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur gaman af því að
skiptast á hugmyndum við aðra. Gefðu
þér tíma til að skipuleggja upp á nýtt og
hefstu svo handa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu bjartsýnn því takmark
þitt er ekki eins fjarlægt og þú heldur.
Hlustaðu á það sem aðrir hafa að segja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gerir miklar kröfur til þín í
vinnunni þessa dagana en það er ekki víst
að samstarfsfólk þitt sé alveg á sömu nót-
um. Hugsaðu málið alveg upp á nýtt og
finndu færa leið.
yfirskilvitlegt, en er það þó ekki, en
birtist og hverfur eins og tálsýn.
Greg Gibson, leiðbeinandinn minn í
doktorsnáminu í Norður-Karólínu,
hefur síðan heimfært þetta líkan yfir
á menn, sem bendir til að sumir
erfðagallar séu alvarlegir í dag
vegna þess að genin okkar séu í nýju
umhverfi, t.d. ofgnótt hitaeininga og
hreyfingarleysi.“
Arnar kynntist eiginkonu sinni,
Sólveigu Sif Halldórsdóttur, í
meistaranáminu í líffræðinni. „Þetta
var eiginlega svona líffræðiást,“ seg-
ir hann og hlær. Þau fóru saman til
óþekkta eða hvernig við getum svar-
að spurningum um eiginleika lífvera
og vistkerfa. Alla tíð hefur mér
reynst erfitt að einbeita mér bara að
einu og ég fékk mikinn áhuga á erfð-
um og þroskun, og ekki síst þróun
lífvera og það er starfsferill minn.
Það sem hefur heillað mig mest er
dulinn erfðabreytileiki, þ.e.a.s.
breytileiki í genum sem ekki hefur
áhrif á eiginleika lífvera nema við
sérstakar aðstæður, t.d. annað hita-
stig eða jafnvel erfðaaðstæður, þ.e.
þegar viss stökkbreyting er til stað-
ar. Þetta fyrirbæri virkar næstum
A
rnar Pálsson fæddist í
Reykjavík 21.11. 1970.
Hann ólst upp á Neðri-
Hálsi í Kjós til sex ára
aldurs með afa sínum
og móður. „Við mamma fluttum í
bæinn og bjuggum þar með Elínu
ömmu og Lindu frændsystur minni.
Það heimili var eins og umferðar- og
félagsmiðstöð og við krakkarnir
fengum gott rými til leikja og lest-
urs. Flest sumur dvaldi ég í sveit-
inni, fyrst við leik en svo var manni
tyllt á traktor. Valtandi nýræktir tíu
ára gamall, í fyrsta gír í lága drifinu,
svo hamingjusamur að ég söng úr
mér lungun.“
Arnar fór í Álftamýrarskóla og
þaðan í MH. „Í baksýnisspegli er
freistandi að sjá í fortíðinni skref
sem leiddu til núverandi starfs, í
mínu tilfelli sem líffræðings. En í
raun var hugurinn og áhuginn á
miklu flökti. Mér fannst meira gam-
an að teikna og lita, en t.d. að tala.
Ég finn til mikillar samkenndar með
fólki sem vill ekki segja of mikið og
vera í einrúmi, því ég þagði í gegn-
um næstum allan barna- og gagn-
fræðaskóla. Í menntó sökk ég í ný-
bylgjutónlist, og við vinirnir
spiluðum argasta hroða og perlur
ýmsar í þættinum Neðanjarð-
argöngunum á Útrás – útvarpi
framhaldsskólanna. Við gerðum
okkur gildandi, endursögðum tíðindi
úr enskum tónlistarblöðum og lék-
um vikulega ævintýri ofurhetjunnar
Klisjumanns og hans hvursdags
andhverfu Fígó Flörensen, sem
Hjálmar félagi vor skóp.“
Eftir menntaskóla vann Arnar
eitt ár í sveitinni og við lagerstörf á
Reykjalundi. „Amma Hlín var þar í
endurhæfingu, eiginlega komin í
hring því hún og afi Árni kynntust á
berklahæli en bjuggu við Reykja-
lund í áratugi því afi var í allskonar
störfum hjá SÍBS og á tímabili for-
stjóri staðarins.“
Eftir það fór Arnar í háskólann.
„Ég var svo lánsamur að læra líf-
fræði við HÍ undir leiðsögn margra
frábærra kennara. Eftir því sem ég
lærði meira, óx og dýpkaði áhuginn,
ekki bara á þekktum fyrirbærum
eða lífverum, heldur ekki síður á því
State University í Raleigh Norður-
Karólínu þar sem Arnar lauk dokt-
orsprófi í erfðafræði árið 2003. Það-
an fóru þau til Chicago þar sem
hann var nýdoktor við University of
Chicago, sem var aðallega rann-
sóknarstaða en Arnar kenndi þó eitt
námskeið. „Hann segir það hafa ver-
ið gott að læra í Raleigh, því borgin
er róleg og þægileg. Hann segir þó
Chicago miklu skemmtilegri borg,
meira líf og fjör og meiri fjölbreytni.
Árið 2006 fluttu hjónin heim, komin
með eitt barn. Arnar vann tæpt ár
hjá Íslenskri erfðagreiningu en fékk
þá vinnu við Háskóla Íslands, þar
sem hann hefur unnið síðan.
Það er greinilegt að Arnar hefur
brennandi áhuga á mörgum sviðum
innan vísindanna, en eins hefur
hann áhuga á því að eiga vísinda-
samtalið við samfélagið. „Mér finnst
merkilegt hvernig við getum lært
eitthvað um heiminn og mikilvægt
að tala um það við alla, ekki bara
kollega mína.“ Arnar hefur skrifað
mikið fyrir vísindavefinn og skipu-
lagt málstofur og viðburði sem eru
bæði fyrir fræðimenn og eins at-
burði sem eru fyrir leikmenn. Hann
nefnir Jane Goodall sem var vísinda-
maður en fór síðan að helga sig nátt-
úruvernd og er þekkt fyrir vinnu
sína með simpansa í Tansaníu á sjö-
unda áratugnum. Hópur fræði- og
Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands – 50 ára
Ljósmynd/Úr safni Háskóla Íslands
Jane Goodall Á sviði Háskólabíós eftir erindi Jane Goodall þann 15. júní 2016 sem góður hópur stóð fyrir að skipu-
leggja. Frá vinstri: Jane Goodall, Mary Lewis, Hildur Þorsteindóttir, Guðrún Pétursdóttir, Siggi Sigurðsson, Bryn-
hildur Davíðsdóttir, Linda Pétursdóttir, Bryndís Marteinsdóttir, Arnar Pálsson, Auður Örlygsdóttir, Bjargey Guð-
brandsdóttir, Rannveig Magnúsdóttir, Rakel Garðarsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir og Pia Hansson.
Nýbylgja og erfðabreytileiki
Ljósmynd/Magnús Jóhannsson
Við rannsóknir Á urriðaslóðum í Stóra Hraunvatni í Veiðivötnum 2. ágúst
2017. Frá vinstri: Arnar Pálsson, Benoný Jónsson og Marcos Lagunas.
30 ára Einar Bjarni
ólst upp á Seltjarn-
arnesinu en flutti í
Vesturbæinn sextán
ára. Hann er nemi í
viðskiptafræði í Há-
skóla Íslands. Helstu
áhugamál eru allar
íþróttir og þá sérstaklega fótbolti, en
hann spilaði í KR, KV, Gróttu og Fram.
Einar er líka hrifinn af bóklestri, tónlist
og hollri matargerð.
Maki: Rebekka Rós Baldvinsdóttir, f.
1990, lyfjafræðingur.
Börn: Baldvin Ómar, f. 2016 og Benedikt
Axel, f. 2020.
Foreldrar: Ómar Benediktsson, f. 1959,
athafnamaður og Guðrún Marta Þor-
valdsdóttir, f. 1959, húsmóðir.
Einar Bjarni
Ómarsson
Til hamingju með daginn
Keflavík Þetta er hún Lilja Karen
Stefánsdóttir frá Keflavík. Hún fædd-
ist á Landspítalanum í Reykjavík 20.
febrúar 2020 kl. 13:25 og vó 3.808 g
og var 52,5 cm löng. Foreldrar Lilju
Karenar eru Stefán Geirsson og Hild-
ur Ösp Randversdóttir.
Nýr borgari
30 ára Margrét ólst
upp í Breiðholtinu og
býr enn í Reykjavík.
Hún er formaður Fé-
lags íslenskra rafvirkja
og meðfram því er hún
kennari í Tækniskól-
anum og kennir raf-
lagnir. Það eru ekki margar konur í þess-
um bransa og hún er fyrsta konan í
embætti formanns. Hún hefur mikinn
áhuga á félagsmálum og er varafor-
maður í Rafiðnaðarsambandi Íslands og
formaður í Félagi fagkvenna.
Maki: Tómas Helgi Tómasson, f. 1990,
nemi í Byggingatækniskólanum.
Foreldrar: Svanhvít Axelsdóttir, f. 1960,
lögmaður og Arnar Gíslason, f. 1959,
fyrirtækjaeigandi.
Margrét Halldóra
Arnarsdóttir