Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 49

Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 49
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég man það svo ósköp vel erplata Egils Sæbjörnssonar,Egils S, Tonk of the Lawn, kom út árið 2000. Ég vissi af honum sem myndlistar- manni en fólk var dálítið gáttað þegar það handlék geislaplötu að nafninu Tonk of the Lawn. Hvað var þetta eiginlega? Enn gáttaðra varð fólkið er það heyrði sjálfa tónlistina. Platan atarna er meistaraverk. Ég var svo heppinn að fá að skrifa gagnrýni um hana og sagði m.a.: „Tónlistin sjálf er ein- hvers konar skrýtipopp; og eru nálg- anir Egils við dægurtónlistina ekki ósvipaðar aðferðum Beck, Egill nær að búa til eitthvað nýtt og ferskt úr hafsjó tilvísana í sögu og inntak popptónlistarinnar þannig að upp úr stendur frumleg poppplata … Lögin eru öll, hvert á sinn hátt, snilldar- legur leikur að þessum möguleikum. Fjölbreytt, frjó og svöl lög …“ Svo mörg voru þau orð. Dans Egils, sem er þekktastur fyrir myndlist, við tónlistargyðjuna hefur verið reglubundinn lengi vel, og er bæði takfastur og fagur. Hann gaf t.a.m. út stuttplötuna The internat- ional rock n’roll summer of Egill Sæbjörnsson ári fyrr og eftir Tonk of the Lawn (sem var gefin út árið Tunglsjúki töframaðurinn Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen Faraó Egill Sæbjörnsson, Berlín, 2006. Úr safni greinarskrifara, áður óbirt. 2001 á nýjan leik af Some Bizzare í Bret- landi) hafa komið út plötur sem innihalda tónlist fyrir listsýn- ingar (sjá t.d. Out of Controll in Venice) og svo kom platan Egill S út árið 2009 sem inni- hélt hófstilltari tónlist en var að finna á Tonk (ef Tonk er Mellow Gold þá er Egill S Mutations). Moonlove er ólík þessu öllu hins vegar. Skemmtileg, ljúf og aðgengi- leg en súrrealísk og flippuð líka. Jafnvægi. Þetta ófyrirséða dæmi sem gerði Tonk svo sterka er hérna en líka þetta góða lagasmíðainnsæi sem kom svo vel fram á Egill S. Plöt- ur Egils eru alltaf gáskafullar en þetta er aldrei helbert sprell. Ég heyri í hinum ameríska Ariel Pink, sem komst upp á yfirborðið á svip- uðum tíma og Tonk kom út, en ég heyri líka vel í Berlínarborg, hvar Egill hefur lengi búið (fagurfræði Morr Music-útgáfunnar og raf- tónlistarpopp Lali Puna). Söng- röddin kallar þá meistara Bowie fram í hugann. Moonlove er reyndar glettilega fjölbreytt líka og manni finnst mað- ur vera staddur í speglasal, furðu- húsi eður -veröld. „Good Day“ opnar plötuna, þekkilegt rafpopp, en næst er það „Gubbi Gubbi“, ósungin stemma að mestu sem eykur á þessa töfratilfinningu. Titillagið hefst svo eins og máttugasta nútímapopp, Eg- ill les inngangsorð, stúlknarödd óm- ar en svo er slakað skyndilega á. Það er eins og lagið sé hætt við að byrja! Ég vil taka þetta dæmi, og þau eru fjölmörg hér, til sönnunar því hvern- ig Egill vinnur, og hvernig hann sigrar á þessari plötu. Það er nefni- lega aldrei neitt gefið, það er aldrei farið í þær áttir sem maður heldur að verði farið í. Jú, stundum er það gert. En stundum ekki! Og þannig er þetta áfram. „Let me in“ hefst með hljóðbút úr því sem virðist vera sinfónía eða ballett en svo koma fuglahljóð og rafmotta fljótlega. Lagið „Ísafjarðarmær“ er þá allt á íslensku (og hefst á hörku- þverflautuleik sem hefði gert Ian Anderson stoltan). Öll þessi stemning er vel undir- strikuð með vel heppnuðu umslagi. Egill á ferð að kvöldlagi í íslensku umhverfi en hann er að skunda framhjá furðubyggingu sem gæti verið úr Múmíndal. Það er eitthvað þægilegt við þessa mynd, eitthvað barnslegt og notalegt. Umlykjandi draumveröld. Nei, það er eitthvað „egilskt“ við þetta öllu heldur, eins og með þessa plötu alla. Og er það vel. » Það er nefnilegaaldrei neitt gefið, það er aldrei farið í þær áttir sem maður heldur að verði farið í. Jú, stundum er það gert. En stundum ekki! Ný plata með Agli Sæbjörnssyni, það teljast góðar fréttir. Moonlove bætist í nokkuð magnaðan sarp tónlistar sem listamað- urinn hefur gefið út á síðastliðnum tveimur áratugum eða svo. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐI Á SANNRI SÖGU. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Rithöfundurinn Charles Yu hlýtur bandarísku bókmenntaverðlaunin National Book Award í ár fyrir skáldsögu sína Interior China- town. Skáldsagan er rituð í formi kvikmyndahandrits og er sögð háðsádeila. Segir í henni af Willis nokkrum Wu sem dreymir um frama og frægð sem leikari en mætir þess í stað kynþátta- fordómum og miskunnarlausu valdakerfi afþreyingariðnaðarins í Hollywood. Einu hlutverkin sem Wu bjóðast eru hlutverk matar- sendla kínverskra veitingahúsa og handbenda glæpaforingja. Segir dómnefnd bókina dásamlega hug- myndaríka og sprenghlægilega. Yu gegndi starfi lögmanns áður en hann hóf að skrifa skáldsögur og er verðlaunabókin sú fjórða sem hann hefur skrifað. Verðlaun í flokki heimildarbóka og bóka sem ekki teljast til skáld- skaparrita hlutu feðginin Les og Tamara Payne fyrir bókina The Dead Are Arising: The Life of Malcolm X, ævisögu mann- réttindafrömuðarins Malcolms X. Les Payne lést fyrir tveimur árum og tók dóttir hans því við verð- laununum en afhending fór fram í streymi á YouTube vegna Covid- 19. Gríðarmikil heimildarvinna liggur að baki þeirri bók, að því er fram kemur í frétt The New York Times um verðlaunin. The Natioanl Book Award eru ein virtustu bókmenntaverðlaun heims og voru fyrst afhent árið 1950. Meðal þeirra sem hafa hlotið þau eru W.H. Auden, Saul Bellow, Ralph Ellison, William Faulkner og Flannery O’Connor. Charles Yu Tamara Payne Bækur Yus og Payne verðlaunaðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.