Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 24
24 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/20
STARFS ÁBYRGÐAR-
TRYGGINGAR
LÖGMANNA
ARNA PÁLSDÓTTIR LÖGMAÐUR SKRIFAR
LÖGMENN VERÐA HINS VEGAR AÐ VERA
MEÐVITAÐIR UM TRYGGINGAR SÍNAR EFTIR AÐ
ÞEIR LÁTA AF STÖRFUM EÐA LEGGJA INN
MÁLFLUTNINGSRÉTTINDI SÍN EN BÓTAKRAFA
GETUR VERIÐ HÖFÐ UPPI EFTIR ÞANN
TÍMAPUNKT.
Eru lögmenn meðvitaðir um reglurnar?
Hildur: Já, ég held að lögmenn séu almennt meðvitaðir
um að þeir hafi starfsábyrgðartryggingar og út á hvað þær
ganga.
Björk: Það er allur gangur á því hversu vel lögmenn
þekkja til þegar kemur að þeim reglum og kröfum sem
gilda um starfsábyrgðartryggingar. Almennt má þó segja
að þekkingin sé nokkuð góð, eins og við á um aðra
sérfræðinga og það finnum við sérstaklega þegar kemur að
tjónamálum. Lögmenn verða hins vegar að vera meðvitaðir
um tryggingar sínar eftir að þeir láta af störfum eða leggja
inn málflutningsréttindi sín, því bótakrafa getur verið
höfð uppi eftir þann tímapunkt. Þannig þurfa lögmenn
að huga að tryggingum sínum eftir að þeir hætta að starfa,
en eðlilegt væri að miða þann tíma við hefðbundinn
kröfufyrningafrest.
Hvað er það sem lögmenn ættu helst að varast? Eru tiltekin tilvik
sem leiða til skaðabótaábyrgðar lögmanna?
Hildur: Af þeim dómum sem fallið hafa á æðri dómstigum
síðustu 20 ár má sjá að þau mál sem varða lögmenn lúta
aðallega að málum þar sem umbjóðandi telur lögmanninn
hafa gert mistök við hagsmunagæslu, svo sem að kröfur hafi
fyrnst eða að ekki hafi verið gerður fyrirvari við uppgjör
slysabóta. Þá hafa nokkur mál varðað ágreining um þóknun
til lögmannsins. Mál hafa einnig sprottið í kjölfar þess að
lögmaður hefur tekið að sér að gera kaupsamning um
fasteign þegar aðilarnir höfðu áður komið sér saman um
kaupin.
Björk: Algengustu tilvikin á undanförnum árum varða
mál þar sem krafa um bætur er að fyrnast í höndum
lögmanna. Einnig reynir reglulega á mál þar sem krafa
Lögmannablaðið fékk þær Björk
Viðarsdóttur lögmann og
framkvæmdastjóra tjónasviðs TM og
Hildi Ýr Viðarsdóttur lögmann til að
ræða skaðabótaábyrgð lögmanna og
starfsábyrgðartryggingar. Enda þótt fá
mál hafi ratað fyrir dómstóla þar sem
reynir beinlínis á gildissvið eða umfang
starfsábyrgðar tryggingar innar er afar
brýnt að allir þekki vel þær reglur sem
gilda um starfsábyrgðartryggingar.