Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 37

Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 37
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/20 37 2005. Fjórtán mót hafa verið haldin eftir að greinin var skrifuð og enn eru leikmenn með sem spiluðu á fyrsta mótinu 1995 eða í 24 ár samfleytt. Leikmenn Þrumunnar hafa verið með næstum frá upphafi og ef Lögmannafélagið stofnar Heiðurshöll geri ég það að tillögu minni að þeir félagar sem mynda kjarna Þrumunnar verði fyrstir teknir inn í Heiðurshöll LMFÍ. F.h. Jólasnapsanefndarinnar Smári Hilmarsson Sigurvegarar 2019. Lið Þrumunnar sem hefur verið með frá upphafi. Mótið fór í alla staði vel fram og hart var tekist á en enginn rekinn af velli. Að lokinni verðlaunaafhendingu var létt á nokkrum jólabjórum og ein snapsaflaska sást á sveimi sem væntanlega hefur endað tóm í endurvinnslunni daginn eftir. Alexandra Ruzza, fulltrúi Mundiaavocat, sem er óopinber heimsmeistarakeppni lögmanna í knattspyrnu mætti sem fulltrúi keppninnar og veitti verðlaun fyrir leikmann mótsins. Þann heiður hlaut Vilmar Freyr Sævarsson, sem hún valdi sjálf. Vildu einhverjir leikmenn Þrumunnar meina að Alexandra hefði ekki metið leikni í knatttækni nægjanlega vel og að fegurð af öðru tagi hefði verið metin ofar öðrum gildum. Er ekki vitað hvort Alexandra studdist við reglur nefndar um mat á hæfi dómara í mati sínu, en það var samdóma álit að Vilmar hefði verið vel að tilnefningunni kominn. Þá afhenti Alexandra liði Friday sigurlaunin. Lögmenn í fótbolta í Marokkó? Mikill áhugi er hjá Mundiaavocat að fá íslensk lið til keppni, en mótið verður haldið í borginni Marrakesh í Marakkó í júní næstkomandi. Vonandi sjá einhver íslensk lið sér fært að mæta, en leikið er í hinum ýmsu aldursflokkum. Væri upplagt að sigurvegarar hvers árs í Jólasnapsmótinu öðluðust keppnisrétt á mótinu og fengju ferðastyrk frá LMFÍ, en allir mega senda lið. Svona í lokin er gaman að geta þess að í greininni frá 2005 er minnst á það sérstaklega að ákveðinn hópur lögmanna hafi tekið þátt í mótinu öll 10 árin, þ.e. frá 1995 til ársins

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.