Fréttablaðið - 30.01.2021, Qupperneq 2
Þetta hefur ekki í
för með sér neinar
aukagreiðslur af hálfu
aðstandenda.
Guðrún Björk
Bjarnadóttir,
framkvæmda-
stjóri STEFs
Ó, skítuga Reykjavík
Röðin var löng á bílaþvottastöðvum víðs vegar um Reykjavíkurborg í gær, þar sem borgarbúar reyndu að skrúbba rykið af bifreiðum sínum. Snjó-
leysið í höfuðborginni undanfarnar vikur gerir það að verkum að ryk safnast á götur borgarinnar, þyrlast svo upp þegar bílar eiga leið hjá og sest
á þá. Fyrir vikið er nóg að gera hjá bílaþvottastöðvunum og sérstaklega á föstudögum þegar ökumenn eiga leið fram hjá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ
ÞJÓÐKIRKJAN Undirritaður hefur
verið samningur milli Þjóðkirkj-
unnar og STEFs, sem heimilar
opinberan flutning á tónverkum í
helgihaldi og safnaðarstarfi. Samn-
ingurinn felur í sér að höfundar-
réttargjöld af allri hefðbundinni
starfsemi sem undir Þjóðkirkjuna
fellur verða greidd af Þjóðkirkjunni.
Þar á meðal eru útfarir, þannig að
útfararþjónustur hætta nú að inn-
heimta slík gjöld af aðstandendum.
Jafnframt veitir samningurinn
kirkjunni leyfi til að gera upptökur
og standa fyrir netstreymi frá útför-
um, sem mjög hefur færst í aukana
á undanförnum misserum. Öll tón-
listarstarfsemi Þjóðkirkjunnar er nú
falin í einum samningi, sem vafa-
laust verður öllum til hægðarauka.
Greiðsla kirkjunnar til STEFs fyrir
tónlistarnotkun er rúmlega þrettán
milljónir króna á ári og er þá búið
að greiða fyrir f lutning tónlistar í
messum, útförum og brúðkaupum,
auk alls annars auglýsts safnaðar-
starfs, alls um 8.000 athafnir á ári.
Á móti stofnar STEF með kirkj-
unni nýjan og öflugan tónlistarsjóð
og lætur 20 prósent af greiðslum
kirkjunnar renna í sjóðinn. Hlut-
verk sjóðsins verður að styðja vöxt
og viðgang kirkjutónlistarinnar.
„Við erum afskaplega ánægð með
þennan samning og við erum ekki
síður ánægð með hvaða áhrif þetta
hefur á aðstandendur. Kirkjan sér
til þess að þetta verði í lagi og þetta
hefur ekki í för með sér neinar við-
bótargreiðslur af hálfu aðstand-
enda,“ segir Guðrún Björk Bjarna-
dóttir, framkvæmdastjóri STEFs.
Hún segir að upphæðin sem
aðstandendur þurftu að greiða hafi
ekki verið mjög há fyrir til dæmis
lög spiluð í jarðarför en auðvitað
skipti hver króna máli og það sé því
ánægjulegt að þetta sé komið í höfn.
„Aðstandendum munar auðvitað
um allt.“
STEF vinnur nú að gerð sambæri-
legra samninga við önnur trú- og
lífsskoðunarfélög. „Við erum búin
að hafa samband og byrjuð að ræða
við önnur stór trúfélög og viljum
gera sambærilega samninga. Það er
verk í vinnslu,“ segir Guðrún.
benediktboas@frettabladid.is
Engin stefgjöld greidd
af flutningi í útförum
Samningur milli Þjóðkirkjunnar og STEFs hefur verið undirritaður sem
heimilar flutning á tónverkum í helgihaldi og safnaðarstarfi. Kirkjan greiðir
13 milljónir á ári og þurfa aðstandendur því ekki að greiða fyrir notkunina.
Löngu og farsælu samstarfi STEFs við helstu útfararþjónustur landsins er
lokið. Mynd frá útför Guðrúnar Ögmundsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Nýjar reglur
Forsaga þessa máls er sú að
reglur mennta- og menningar-
málaráðuneytisins frá 1974
um þóknun til höfunda vegna
flutnings tónverka við guðs-
þjónustur og aðrar kirkjulegar
athafnir voru felldar niður. Nýjar
reglur voru settar og veitti þá
ráðuneytið STEFi og þjóð-
kirkjunni heimild til að ganga til
samninga um sömu efnisþætti.
Samningurinn var sam-
þykktur á fundi kirkjuráðs fyrir
nokkru og lýtur að því að greiða
rétthöfum fyrir notkun tón-
listar í öllu helgihaldi kirkjunnar.
Tónlist nýtur höfundarréttar
og greiðslu samkvæmt alþjóð-
legum samningum í 70 ár eftir
dauða höfundar.
LÖGREGLUMÁL Hulda Elsa Björg-
vinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs
lög reglunnar á höf uðborgar-
svæðinu, segir að rannsókn á skot-
árásinni fyrir utan heimili Dags B.
Eggertssonar, borgarstjóra Reykja-
víkur, sé í forgangi. Skotið var úr
byssu í gegnum farþegahurðina á
fjölskyldubíl Dags í vikunni.
„Rannsókn er í fullum gangi og
málið í forgangi hjá okkur,“ segir
Hulda sem vildi ekki tjá sig efnis-
lega um rannsóknina, en sagði að
verið væri að af la upplýsinga um
málavexti. „Það er lögð rík áhersla
á þetta mál og við ætlum að upplýsa
það sem fyrst. Það er hagur allra að
það sé gert,“ segir Hulda.
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hjá miðlægu deild-
inni, gat heldur ekki tjáð sig um
rannsóknina en sagði að hún væri
í fullum gangi. „Það er ekkert meira
hægt að segja,“ sagði hann. – mhj
Lögreglan með
skotárás í garð
Dags í forgangi
COVID-19 Lyfjastofnun Íslands veitti
í gærkvöld bóluefninu sem framleitt
er af AstraZeneca markaðsleyfi hér
á landi, sama dag og framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins veitti
leyfi til notkunar á bóluefninu. Leyf-
isveitingin var veitt á grundvelli
meðmæla Lyfjastofnunar Evrópu
um að leyfa notkun bóluefnisins.
Bóluefni AstraZeneca er því
þriðja bóluefnið sem fær markaðs-
leyfi hér á landi frá Lyfjastofnun
á eftir bóluefnum frá BioNTech/
Pfizer og Moderna. Ísland hefur
tryggt sér 230 þúsund skammta af
bóluefninu sem ætti að duga til að
bólusetja tæplega þriðjung þjóðar-
innar. – kpt
AstraZeneca fær
grænt ljós frá
Lyfjastofnun
KJARAMÁL Forseti Alþingis og for-
menn þingf lokka hafa sammælst
um breytingar á skipun þing-
vikunnar í tilraunaskyni fram að
páskum. Er þetta liður í innleiðingu
á styttingu vinnuvikunnar sem
unnið hefur verið að í samræmi við
samninga á vinnumarkaði.
Samk væmt samkomulag inu
verða nefndafundir á mánudögum
sem staðið geta til klukkan fimm.
Engir þingfundir verða hins vegar
á mánudögum en þeir hafa hafist
klukkan þrjú og staðið til kvölds.
Á þriðjudögum, miðvikudögum
og fimmtudögum verða þingfundir
en hefjast fyrr en áður eða klukkan
13, „í þeirri von að slíkt stuðli að því
að ljúka megi þingfundum fyrr,“ að
því er fram kemur í tilkynningunni.
Þá verða hvorki þingfundir né
nefndafundir á föstudögum á þessu
síðasta vorþingi fyrir kosningar
nema í þremur tilvikum sem gert
er ráð fyrir í starfsáætlun þingsins.
„Þessar breytingar munu án efa
koma sér vel bæði fyrir störf þing-
manna og starfsfólks og verða
vonandi festar í sessi þegar fram í
sækir,“ segir í tilkynningu um til-
raunina á vef Alþingis. – aá
Prófa að sleppa
þingfundum á
mánudögum
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
SNERTILAUS HITAMÆLIR
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | Sími 515 1100 |
Opið alla virka daga kl. 8–17
TIR-1™
°C /°F
SET
• Handhægur og öruggur
• Nákvæm mæling á örfáum sekúndum
• Snerting við sjúkling óþörf
• Minni þörf á hlífðarbúnaði
3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð