Fréttablaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 35
Verkefni ÍSOR eru fjölbreytt og ólík að umfangi en fyrirferðarmest er þjónusta
tengd jarðhitavinnslu,“ segir Árni
Magnússon, forstjóri Íslenskra
orkurannsókna (ÍSOR).
Árni tók við sem forstjóri um
mitt síðasta ár en hefur frá árinu
2006 starfað að orkumálum, með
áherslu á jarðhita, fyrst hjá Íslands-
banka en síðar verkfræðistofunni
Mannviti.
„ÍSOR er sannarlega þekkingar-
fyrirtæki og leiðandi fyrirtæki á
sviði rannsókna og þróunar í jarð-
hita. Það veitir ráðgjafarþjónustu
og annast beinar grunnrannsóknir
á flestum sviðum jarðhitanýtingar
sem og öðrum auðlindum. ÍSOR, og
fyrirrennarar þess, tóku þátt í allri
jarðhitauppbyggingu hér á landi,
en hefur auk þess komið að verk-
efnum úti um allan heim, starfað að
verkefnum í meira en 40 löndum,
svo það er gríðarleg reynsla sem
hefur byggst upp hjá fyrirtækinu,“
að sögn Árna.
ÍSOR er í eigu ríkisins og starfar
samkvæmt lögum um þjónustu
og rannsóknir á sviði jarðhita,
náttúrufars, orkumála og annarra
auðlindamála. Fyrirtækið starfar á
viðskiptalegum grundvelli á sam-
keppnismarkaði og fær tekjur sínar
alfarið með sölu á þjónustu og með
öflun rannsóknarstyrkja.
„Við höfum í áratugi boðið
orkufyrirtækjum, hitaveitum og
einkaaðilum í landinu sérhæfða
þjónustu á því sviði. Má þar nefna
yfirborðsrannsóknir, hugmynda-
líkanagerð, staðsetningu borholna,
jarðfræðiráðgjöf á borstað og
mælingar í borholum, auk vinnslu-
eftirlits. Í raun erum við að bjóða
alhliða þjónustu og mættum
kannski kalla okkur undanfara,
þegar kemur að jarðhitanýtingu,“
upplýsir Árni.
Ráðgjafi hita- og vatnsveitna
Þótt jarðhitarannsóknir hafi verið
meginviðfangsefni ÍSOR, gegnir
stofnunin einnig veigamiklu hlut-
verki á sviði grunnvatnsrannsókna,
öflunar neysluvatns og rannsókna
á auðlindum hafsbotns.
„Þannig hefur ÍSOR og forveri
þess verið ráðgjafi flestra hita- og
vatnsveitna landsins um öflun og
nýtingu vatns og er aðalvísindaráð-
gjafi íslenskra stjórnvalda í rann-
sóknum á jarðrænum auðlindum,“
útskýrir Árni.
Þar að auki hafi ÍSOR lagt til hin
vísindalegu rök í baráttu Íslands
fyrir hafsbotnsréttindum utan 200
mílna efnahagslögsögunnar.
„ÍSOR er vel í stakk búið og hefur
tekið að sér fjölmörg verkefni á
sviði náttúrurannsókna, svo sem
jarðfræðirannsóknir vegna mann-
virkjagerðar, skriðufalla, jarð-
skjálfta og eldvirkni.“
Á erlendum vettvangi hefur
ÍSOR skapað sér sterka stöðu og
komið að grunnrannsóknum og
þróun jarðhitaverkefna utan land-
steinanna.
„Sérfræðingar ÍSOR hafa margir
áratuga reynslu af verkefnum við
ólíkar aðstæður um allan heim,
meðal annars með vinnu fyrir
þróunarsamvinnuskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, kennslu
við Jarðhitaskóla Sameinuðu
þjóðanna, sem og beina ráðgjöf til
erlendra einkafyrirtækja og ríkis-
stofnana,“ greinir Árni frá.
Borað niður á 2.000 m dýpi
Íslendingar hafa náð miklum
árangri í nýtingu endurnýjanlegra
orkulinda, og verður svo vonandi
lengi enn, segir Árni.
„Það má segja að ÍSOR hafi
skapað hinn jarðvísindalega
grunn að nýtingu jarðhita til raf-
orkuframleiðslu og hitunar ýmiss
konar, en það þarf stöðugt að vera
með umhverfiseftirlit, fylgjast með
breytingum og ekki síst tækni-
nýjungum.“
Árangur af lághitaborun hefur
verið góður. Á árunum 1928 til
2017 voru alls um 450 vinnslu-
holur boraðar á lághitasvæðum á
Íslandi. Af þeim holum uppfylltu
nærri 90 prósent þeirra kröfu um
60°C heitt vatn og um 65 prósent
þeirra gáfu 80°C heitt vatn, sem
hentar mjög vel til húshitunar.
„Ef litið er til árangurs út frá
holum sem gáfu vatn, það er þær
hitta sprungu sem leiðir vatn óháð
hitastigi, er hann yfir 90 prósent,“
útskýrir Árni. „Þessar tölur sýna
skýrt hvernig uppbygging jarð-
vísindalegrar sérfræðiþekkingar
hefur skilað sér í góðum árangri
sem segja má að Íslendingar séu
orðnir vanir að sjá.“
Eftirspurn eftir heitu vatni,
bæði til baða og húshitunar, hefur
aukist í landinu, vegna fólks-
fjölgunar og fjölda ferðamanna á
undanförnum árum.
„Það er vert að nefna að
borun er í gangi núna við Ósa-
botna fyrir Selfossveitur. ÍSOR
hefur verið ráðgjafi og haft eftirlit
með jarðvarmavinnslu Selfoss-
veitna um árabil. Holan er orðin
1.732 metra djúp. Ætlunin er að
fara eitthvað lengra niður í þeirri
von að fá meira heitt vatn inn
í holuna, jafnvel niður í 2.000
metra,“ segir Árni.
Líkön spá 50 ár fram í tímann
ÍSOR hefur lagt mikla áherslu á
nýsköpun, rannsóknir og þróun
í starfsemi sinni og mun halda
því áfram. Þar starfa nú ríflega 60
manns og er meirihluti starfs-
fólks háskólamenntaður, eða 94
prósent.
„Sé litið á síðasta ár hefur það
kennt okkur að mikil þörf er á
sérfræðiþekkingu,“ segir Árni og
heldur áfram: „Það þarf ekkert
að minnast á alheimsfaraldurinn
í þessu samhengi, heldur benda
á ýmsa náttúruvá. Grunnrann-
sóknir tengdar náttúru landsins,
þar með talið jarðhita og eðli jarð-
skorpunnar, eru frumforsenda
árangursríkrar og hagkvæmrar
nýtingar jarðhita til orkufram-
leiðslu. Það er vert að benda á að
jarðfræði landsins hættir ekki við
ströndina. Þar þarf að ef la grunn-
rannsóknir, kortleggja, leggja mat
á auðlindir hafsbotnsins og svo
framvegis.“
Á hverju ári tekur ÍSOR þátt í
mörgum rannsóknarverkefnum.
Verkefnin eru ýmist styrkt af
orkufyrirtækjum og/eða inn-
lendum og erlendum rannsóknar-
sjóðum, eins og sjóðum Evrópu-
sambandsins.
„ÍSOR nýtir þátttöku í styrktar-
verkefnum til að ef la eigin rann-
sóknarfærni og til að af la grunn-
þekkingar á sviði jarðvísinda og
jarðhita, sem og að aðstoða við að
þróa nýjar aðferðir til rannsókna
og nýtingar auðlinda,“ gerir Árni
grein fyrir.
„Hugbúnaðarþróun er þáttur
sem fylgir þekkingarfyrirtæki
eins og ÍSOR, og því fer fram
stöðug vinna við að þróa hug-
búnað fyrir okkar sérhæfðu
starfsemi. Í gegnum tíðina hefur
veruleg áhersla verið lögð á að
þróa hugbúnað til að hægt sé að
spá fyrir um vinnslugetu jarð-
hitasvæða, það fer auðvitað eftir
vinnslusögunni en líkönin geta
spáð allt að 30 til 50 ár fram í
tímann.“
Gott samstarf um nýtingu
ÍSOR leggur mikla áherslu á að
þjónusta hitaveitur landsins og
hefur meðal annars fjárfest í
búnaði sem mun nýtast vel við
prófanir á lághitaholum. Einnig
er í gangi þróunarverkefni, sem
er meðal annars styrkt af EFTA
og er í samvinnu við Pólverja.
Þar er verið að þróa hugbúnað
sem verður notaður við að herma
viðbrögð jarðhitageymisins við
vinnslu.
„Með þessum nýja hugbúnaði
verður hægt að sjá fyrir áhrif af
niðurdælingu og borunum nýrra
borholna. Hægt verður að nýta
þennan hugbúnað við borun
nýrra borholna, hvar best er
að dæla niður og hvar má auka
vinnslu og staðsetja eftirlitsholur.
Þessi hugbúnaður er byggður á
eldri hugbúnaði sem hefur nýst
mjög vel í gegnum árin, en nú
eru f leiri og f leiri hitaveitur með
nokkrar holur og margir að velta
fyrir sér að dæla niður vatni til
að auka vinnslugetu svæðanna,“
segir Árni og bætir við:
„ÍSOR leggur mikið upp úr góðu
samstarfi við hitaveitur lands-
ins og hefur mikinn áhuga á að
vinna með þeim að góðri nýtingu
svæðanna og ef la eftirlit, þannig
að hægt verði að nýta þau á sjálf-
bæran hátt.“
Aðalskrifstofa ÍSOR er á Grensás-
vegi 9 í Reykjavík. Útibú er á
Rangárvöllum 2 á Akureyri. Sími
528 1500. Sjá nánar á isor.is
Jarðfræði landsins hættir
ekki við Íslandsstrendur
ÍSOR er leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita og hefur einnig skapað sér sterka
stöðu erlendis. Forstjórinn Árni Magnússon segir mikla þörf á sérfræðiþekkingu á jarðhitanýtingu.
Árni Magnússon tók við starfi forstjóra ÍSOR um mitt ár 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jarðskjálftastöð. MYND/STEFÁN AUÐUNN STEFÁNSSON
Unnið að
rannsóknum á
jarðhita í Náma-
skarði.
MYND/SIGURÐUR G.
KRISTINSSON
Lághitaborun við Ósabotna. MYND/HEIMIR INGIMARSSON
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 ORKA ÍSLANDS