Fréttablaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 85
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Í vinnustofu sinni á Korpúlfsstöð-um stendur Lilý Erla Adamsdóttir við strekktan striga og skapar listaverk – ekki með málningu og pensli heldur náttúrulegu garni og nál sem knúin er rafmagni og
loftpressu. Verkfærið líkist byssu og Lilý
Erla stendur við bakhlið verksins þegar
hún vinnur. Þræðirnir skjótast út hinum
megin. „Þessi aðferð kallast tuft á ensku
og ég hugsa að heitið sé dregið af hljóð-
inu sem hún myndar, tuft, tuft, tuft,“
segir Lilý Erla glaðlega. „Það er ekkert
íslenskt nafn á aðferðinni en hún er sam-
bland af f losi og rýa og áferðin svipuð. Í
f losi verða til lykkjur en í rýa er þráður-
inn einfaldur – ég get ráðið hvort ég vel.“
Lily Erla býr til mynstrin jafnóðum,
sem byggjast mörg á endurtekningu.
„Myndmálið sæki ég meðal annars í
náttúrufyrirbrigði, stef sem komast
nærri eigin kjarna og kannski okkar
allra – við göngum gegnum lífið saman
og lendum í svipuðum aðstæðum. Ég
leitast alltaf við að fara inn á einlægar
tilfinningar, f létta þær inn í verkin og
kannski snúa upp á þær, þannig að þær
mýkist og verði aðeins bjartari fyrir
vikið. En svo verða alltaf að vera til and-
stæður, birta og myrkur.“
Lærði margt hjá ömmu
Hún kveðst snemma hafa byrjað að
föndra með garn. „Ég lærði að prjóna
fimm, sex ára hjá ömmu minni sem er
alnafna mín og býr á Akureyri. Hún
hefur kennt mér ótrúlega margt sem
hefur fylgt mér.“ Frekari námsferli
lýsir hún svo: „Ég fylgdi vinum mínum
gegnum Menntaskólann á Akureyri,
en leiddist, fór bara í allt félagslíf sem í
boði var. Svo tók ég alla verklegu kúrs-
ana í Verkmenntaskólanum sem ég gat
á einum vetri. Þaðan fór ég í Listaháskól-
ann og tók BA próf í myndlist, svo í Text-
íldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og
tók diplóma og síðast í meistaranám í
listrænum textíl í Textílháskólanum í
Borås í Svíþjóð. Í þeirri borg er rík saga
af textíliðnaði og -hefð og háskólinn er
f lottur og framúrstefnulegur.“
Samhljómur þess ytra og innra
Lilý Erla stýrir textíldeild Myndlista-
skólans í Reykjavík og þegar hún hefur
lausan tíma kveðst hún vera á vinnu-
stofunni. Nú er það sýningin í Hannes-
arholti sem hún einbeitir sér að. „Verkin
eru stíluð inn í rýmið þar og eru smærri
í sniðum en þau sem ég hef oftast fengist
við. Túlka samt sterk öfl, því sýningin
heitir Undiralda og er óður til orkunnar
sem býr í undirdjúpum alls, öf lug og
sterk og getur hvoru tveggja – kraumað
undir eða brotist upp á yfirborðið.
Þannig leik ég mér að samhljómi þess
innra og ytra á ljóðrænan hátt.“
Sýningin verður opnuð klukkan 15
í dag. Vegna sóttvarna er fólk beðið að
bóka skoðun í síma 511-1904 eða á hann-
esarholt@hannesarholt.is.
gun@frettabladid.is
Sterk öfl undiröldunnar
Lilý Erla Adamsdóttir textíllistakona opnar sýninguna Undiröldu í dag í Hannesar-
holti við Grundarstíg. Hún segir hana óð til orkunnar sem búi undir yfirborðinu.
Lilý Erla gerði verkin á sýninguna í Hannesarholti með veggrýmið þar í huga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Jenný Anna Baldursdóttir
Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði,
lést á Landspítala Hringbraut,
fimmtudaginn 28. janúar.
Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einar Vilberg Hjartarson
Sara Hrund Einarsdóttir
María Greta Einarsdóttir Ari Benóný Malmquist
Helga Björk Laxdal Björn Axelsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og mágur,
Heiðar Árnason
Southport, Englandi,
lést þriðjudaginn 12. janúar á
sjúkrahúsinu í Southport, Englandi.
Útför Heiðars fer fram frá kapellu
bálstofunnar í Southport þann 4. febrúar kl. 11.
Streymt verður frá athöfninni:
www.wesleymedia.co.uk/webcast-view
Order ID: 69838; Password: csbbesmw
Virkan hlekk á streymi má finna á: www.mbl.is/andlat
Ouza Kwanashie
Helena Rún Heiðarsdóttir
Lucas Árni Heiðarsson
Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir
Laufey Árnadóttir Kristinn Harðarson
Ingvar Árnason Sigríður Anna Ólafsdóttir
Gauti Árnason
Okkar heittelskaða eiginkona, móðir,
tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona
og barnabarn,
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigga okkar,
viðskiptafræðingur,
Lækjarvaði 11, Reykjavík,
lést á Landspítalanum deild 11E að kvöldi 23. janúar.
Útför fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
4. febrúar kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða
einungis nánustu aðstandendur viðstaddir.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
Siggu er bent á Minningarsjóð Sigríðar, 0331-13-905355,
kt. 160166-5419, v/gjöf til styrktar Landspítala Íslands.
Streymi: youtu.be/RoU6YEldGpI
Bjarni Einarsson
Guðmundur Bjarnason Esther Friðriksdóttir
Dagur Bjarnason
Birta Bjarnadóttir
Guðmundur Egilsson Hulda Pétursdóttir
Helga Guðmundsdóttir Jón Gunnlaugur Sævarsson
Fanney Guðmundsdóttir Svavar Már Gunnarsson
Jóhanna Einarsdóttir Hilmar Sæmundsson
Sumarliði Gísli Einarsson
Sveinbjörn Einarsson
Sigríður Skarphéðinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorsteinn Jónsson
skipstjóri og stýrimaður,
Hólagötu 11, Sandgerði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu,
miðvikudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju, föstudaginn
5. febrúar kl. 14. Í ljósi aðstæðna munu einungis
nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á facebook.com/groups/
thorsteinnjonsson/
Sólveig Halla Þorsteinsdóttir
Steinunn Þorsteinsdóttir Bjarki Jakobsson
Guðrún Kristín Høier Ove Høier
Þórir Þorsteinsson Elín Katrín Rúnarsdóttir
Pálmar Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Pétur Jósefsson
Fróðengi 9, Reykjavík,
lést á Landspítala, Fossvogi,
miðvikudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram fimmtudaginn 4. febrúar
kl. 13 frá Fossvogskirkju. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður
streymt á vefslóðinni youtu.be/Sl8Zts7gfRM
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Landspítala á deild B4 fyrir alúð
og stuðning.
Helgi Pétursson Lísa María Pétursson
Halldór Pétursson Halldóra Ingibergsdóttir
Hildur Pétursdóttir Oliver Kentish
Hólmfríður Pétursdóttir Arnar Helgi Kristjánsson
Arnkell Logi Pétursson Marta María Hafsteinsdóttir
Þorkell Máni Pétursson Dröfn Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kveðjur og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
Þórönnu Bjarnadóttur
(Tótu)
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn 12. janúar í faðmi fjölskyldunnar eftir
hetjulega baráttu við krabbamein.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Blóð- og
krabbameinsdeildar, Geisladeildar, Bráðamóttöku
Fossvogi, Bráðalyflækningadeild og Gjörgæsludeild
Landspítalans, fyrir ómetanlega aðstoð og stuðning.
Róbert Magnús Brink
Róbert Aron Róbertsson Elín Guðlaug Stefánsdóttir
Rannveig Hrönn Brink Gunnar Örn Helgason
Magnús Þór Brink Ragnhildur Edda Tryggvadóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ármann Gunnarsson
Steinsstöðum, Akranesi,
lést á Dvalarheimilinu Höfða,
þriðjudaginn 26. janúar. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 5. febrúar
kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu munu einungis
nánustu aðstandendur verða viðstaddir. Útförinni verður
streymt frá vef Akraneskirkju. www.akraneskirkja.is
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalar- og
hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi.
Helga Sólveig Bjarnadóttir
Kristín Ármannsdóttir Guðgeir Svavarsson
Gunnar Már Ármannsson Anna Kristjánsdóttir
Bjarni Ármannsson Helga Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Lilly Jónsdóttir
Fjallalind 12,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði 28. janúar sl.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Erlendur Guðmundsson
Guðmundur Erlendsson Birna Metúsalemsdóttir
Kolbrún Júlía Erlendsdóttir Þorvaldur Guðmundsson
Hrafnhildur Björg Erlendsdóttir Gunnar Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33L A U G A R D A G U R 3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1