Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 8
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
Fyrirhugað er að setja upp um þrjátíu vindmyllur á Mosfellsheiði. Staðsetningin skiptir máli. MYND/AÐSEND
ORKUMÁL Í það minnsta 500 fuglar
hafa fundist dauðir við vindorku-
verið á eyjunni Smöla í Noregi á
síðustu fjórtán árum. Þar af eru yfir
hundrað ernir. Á síðustu tveimur
árum hafa fundist fimm dauðir
ernir á svæðinu. Þetta kemur fram
á vef NRK. Kristinn Haukur Skarp-
héðinsson, sviðsstjóri dýrafræði og
fuglafræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun, segir að líklega sé um enn
fleiri fugla að ræða og að mikilvægt
sé að huga að fuglalífi á svæðum þar
sem fyrirhugað er að setja upp vind-
myllur.
„Þetta er vel þekkt vandamál alls
staðar og ákveðnar tegundir eiga
það sérstaklega á hættu að lenda
í vindmyllum,“ segir Kristinn
Haukur og tekur dæmi um ránfugla.
„Það þarf að taka tillit til þess hvaða
tegundir eru á svæðinu þegar vind-
myllurnar eru settar niður,“ bætir
hann við.
„Varðandi vindmyllur hér á landi
þá hafa náttúrulega tugir staða
verið nefndir sem mögulegir vind-
myllustaðir og þeir eru allt frá því að
vera á fuglaríkustu svæðum lands-
ins og upp í há fjöll þar sem ekki er
von á mörgum fuglum, en þetta er
flest á byrjunarreit hjá okkur,“ segir
Kristinn Haukur.
Fyrirhugað er að setja niður um
þrjátíu vindmyllur á Mosfellsheiði,
en í lok síðasta árs greindi Frétta-
blaðið frá því að stjórn Sviff lug-
félags Íslands hefði áhyggjur af
því að vindmyllurnar gætu verið
hættulegar sviff lugmönnum og
myndu jafnvel eyðileggja möguleik-
ann til f lugs á svæðinu. Aðspurður
hvort fyrirhugaðar vindmyllur á
Mosfellsheiði myndu hafa áhrif á
fuglalíf, segir Kristinn Haukur að
þar skipti staðsetningin höfuðmáli.
„Það eru svæði þarna í jaðrinum
sem eru mjög fuglarík en svo er
minna á háheiðinni. En það þarf
einnig að huga að bæði fuglum sem
hreinlega eiga heima á svæðinu
og svo fuglum sem eiga leið þar
um. Þegar farleiðir liggja í gegnum
svæðið aukast líkur á því að fuglar
fari í vindmyllurnar,“ segir Kristinn
Haukur.
Hann segir vilja bæði hjá yfir-
völdum hér á landi og hjá Nátt-
úrufræðistofnun til að huga vel að
fuglalífi við uppbyggingu vind-
orkuvera á Íslandi. Hægt sé að fara
ýmsar leiðir en byggja þurfi þær
á rannsóknum. „Nýlega var til að
mynda birt niðurstaða tilraunar þar
sem borin voru saman tvö svæði í
Bandaríkjunum þar sem mikið er
af svokölluðum gullörnum. Á öðru
svæðinu var búnaður sem nam
ferðir fuglanna og með honum var
hægt að draga um einhver sextíu
prósent úr árekstrum. Það er verið
að skoða alls konar svona búnað og
viðvaranir,“ segir Kristinn Haukur.
Aðspurður um hvers konar við-
varanir hægt sé að nota fyrir fugla
segir hann ýmislegt í boði. „Bæði
er hægt að vera með nema á spöð-
unum svo fuglarnir sjái þá í myrkri
eða nema sem verða varir við
ferðir fuglanna og hægja þá á spöð-
unum,“ útskýrir Kristinn Haukur.
„Aðalmálið er þó að reyna að velja
staði þar sem minnstar líkur eru á
árekstrum,“ bætir hann við.
birnadrofn@frettabladid.is
Huga þurfi að fuglum
í vindmylluáformum
Í það minnsta 500 fuglar hafa fundist dauðir við vindorkuver í Noregi, þar af
yfir hundrað ernir. Dýravistfræðingur segir mikilvægt að huga að fuglalífi við
uppsetningu vindmylla. Þrjátíu vindmyllur eru fyrirhugaðar á Mosfellsheiði.
Þegar farleiðir
liggja í gegnum
svæðið aukast líkur á því að
fuglar fari í vindmyllurnar.
Kristinn Haukur
Skarphéðinsson,
dýravistfræðing-
ur hjá Náttúru-
fræðistofnun
DÓMSMÁL Landsréttur þyngdi í gær
tólf mánaða fangelsisdóm sem Haf-
þór Logi Hlynsson hlaut fyrir pen-
ingaþvætti í Héraðsdómi Reykja-
víkur árið 2018 og dæmdi hann í 20
mánaða fangelsi. Dómur Héraðs-
dóms um upptöku 2,5 milljóna í
reiðufé og Tesla Model 2, árgerð
2014 í eigu Hafþórs, var staðfestur.
Málið varðar 8,1 milljón króna
sem Haf þóri Loga var gefið að sök
að hafa aflað sér með refsiverðum
brotum, en þau brot eru ekki talin
upp í dómnum.
Sakfelling Haf þórs í málinu
byggðist ekki síst á því að hann
hafði áður verið sakfelldur tvívegis
á árunum 2017 og 2018 fyrir fíkni-
efnabrot og var í þessu máli gefið
að sök hafa af lað sér peninganna
með refsiverðum hætti í aðdrag-
anda þess að hann keypti Tesluna
í apríl 2017 án þess að ákæruvaldið
skýrði umrædd brot að öðru leyti
en að vísa til fyrrnefndra refsidóma.
Verjandi Haf þórs gerði kröfu um
að ákæruvaldinu yrði gert að til-
greina og sanna frumbrotið, en
Landsréttur féllst ekki á þann mál-
flutning. Í dóminum er hins vegar
ekki vikið frekar að því með hvaða
hætti þessar átta milljónir voru
fengnar, en Haf þór engu að síður
sakfelldur fyrir peningaþvætti án
þess að upplýst hafi verið nánar um
uppruna hins meinta ólöglega fjár
eða tilgreint hver hann hafi verið.
Í dóminum er meðal annars vísað
til skattaskýrslna Hafþórs og eigin-
konu hans um að peningarnir hafi
verið illa fengnir. – ilk
Sakfelldur án sönnunar á frumbroti
Hafþór Logi Hlynsson við aðalmeðferð Bitcoin málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Hljóðritasjóður
Umsóknarfrestur er til 15. mars kl. 15.00
Auglýst er eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð. Veittir eru
styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist.
Umsóknarfrestur er til 15. mars kl. 15.00 – athugið breyttan
umsóknartíma.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári í mars og september.
Verkefnum skal lokið innan árs frá úthlutun.
Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa
hlotið styrk. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn
um styrk berst Hljóðritasjóði.
Umsóknargögn eru á rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skilað rafrænt.
Stjórn Hljóðritasjóðs.
Rannís, sími 515 5838,
hljodritasjodur@rannis.is.
Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla
íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu.
3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð