Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 33
N1 stefnir á að vera leiðandi í sölu orku fyrir raf bíla, hvort sem það snýr að heima-
hleðslu, hraðhleðslu, fjölbýlishús-
um, stofnunum eða fyrirtækjum.
Fyrirtækið býður upp á hagkvæmt
tilboð þegar kemur að raf bílavæð-
ingu bílastæðahúsa, getur séð um
að innheimta gjöld fyrir notkun,
selur ódýra raforku og býður upp
á vandaðar Zaptec hleðslustöðvar
sem endast, en í þessu borgar sig
að hugsa fram í tímann.
„Í lok þings í vor var gerð
breyting á lögum um fjöleignarhús
sem kveða á um að ef einhver í fjöl-
býlishúsi óskar eftir rafhleðslustöð
fyrir rafbíl beri húsfélaginu skylda
til að gera úttekt á áætlaðri fram-
tíðarþörf fyrir raforku og kostnaði
við að setja upp hleðslubúnaðinn,“
segir Björn Guðmundsson, sér-
fræðingur hjá N1. „Það er ekki
skylda að fara út í framkvæmdir, en
rafbílaeign er að aukast mjög hratt
núna. Allir mest seldu bílarnir á
síðasta ári voru rafbílar og þeir
voru meira en helmingur allra
nýrra bíla. Því er krafan um þetta
að aukast. Það skiptir því miklu
máli að hugsa fram í tímann ef það
á að fara að setja upp hleðslustöð
fyrir fjölbýli.“
Álagsstýring tryggir
skilvirkni í orkunýtingu
„Í svona uppsetningum skiptir
miklu að nýta þá raforku sem er
til staðar í húsinu á skilvirkan hátt
með hjálp álagsstýringar í hleðslu-
kerfinu,“ segir Björn. „Við bjóðum
upp á Zaptec hleðslukerfi með
innbyggðri álagsstýringu, sem
hámarka nýtingu og eru öflugri en
ódýrari gerðir.
Margir skilja ekki hvers vegna
það borgar sig að kaupa frekar
dýrari hleðslustöðvar, en málið
snýst um að leggja ekki meira álag
á raforkukerfið en það ræður við,“
útskýrir Björn. „Ef það eru 10-12
bílar í hleðslu á aðfangadegi og
allir að elda og allt á fullu, verður
kerfið að geta spilað sig saman við
það og stýrt álagi svo ekki slái út.
Stýrikerfið passar að dreifa því afli
sem er laust hverju sinni svo það
séu ekki allar stöðvar að sjúga upp
eins mikla orku og þær geta.“
„Við styðjumst við opinberar
upplýsingar um eyðslu raf bíla
og reiknum út fyrir fram hvað
kerfið þarf að geta afkastað til
að geta hlaðið alla bílana í bíla-
geymslunni, þannig að það liggja
nákvæmir útreikningar á bak við
þetta,“ segir Þórður Aðalsteinsson,
viðskiptastjóri hjá N1.
Tvíþætt tilboð
„Tilboðið okkar er tvíþætt. Við
gerum í fyrsta lagi tilboð í grunn-
raflagnir um bílastæðahúsið, sem
eru settar upp þannig að þær geti
höndlað það afl sem þarf að dreifa.
Þetta er sameiginlegur kostnaður
fyrir húsfélagið. Í öðru lagi kemur
svo þáttur eiganda bílastæðis sem
vill tengja það við grunnkerfið, en
þann kostnað ber eigandi sjálfur,“
útskýrir Björn.
„Zaptec er byggt á tveimur
hlutum. Annars vegar bakplötu
sem þú tengir í raflagnir og má
segja að virki svipað og dokka
fyrir fartölvu. Virknin í hleðslu-
stöðinni er svo annar þáttur og
þú smellir henni á bakplötuna,“
segir Björn. „Fyrir vikið getur íbúi í
fjölbýlishúsi sem á að raf bílavæða
valið að vera tilbúinn til hleðslu
með bakplötu setta upp og nýtt
þannig vinnuna við grunnkerfið.
Svo er hægt að kaupa hleðslu-
stöðina síðar, í stað þess að fara af
stað seinna og þurfa þá að fá nýjan
rafvirkja og leggja út fyrir öllum
kostnaðinum. Þetta er hagkvæm-
ara og þess vegna hafa húsfélög og
stofnanir valið að fá okkur í verkið.
Ef fólk sér fram á að rafmagns-
væðast eftir 1-2 ár er tiltölulega
auðvelt að setja upp hleðslustöð ef
bakplatan er til staðar og það þarf
ekki iðnaðarmenn,“ segir Björn.
„Svona er hægt að taka þetta í
þrepum.“
Fimm ára ábyrgð
„Zaptec Pro hleðslustöðvarnar
okkar eru framleiddar í Noregi.
Þær geta verið úti og henta fyrir
norrænar aðstæður. Þær uppfylla
allar kröfur Mannvirkjastofnunar,
eru þriggja fasa og hlaða allt að 22
kWh en virka líka á einfasa ef þörf
krefur,“ segir Björn. „Þær koma
með fimm ára ábyrgð, sem er með
því mesta sem er boðið upp á í
þessum bransa.
Það er hægt að hafa allt að
30 stöðvar í álagsstýringu á
einni grein og bakendakerfið
er mjög flott, en það er app sem
fylgir hleðslustöðinni sem gerir
notendum kleift að fylgjast með
hleðslunotkun og læsa kaplinum í
stöðinni,“ segir Björn.
„Þetta er mikilvægt, því það er
óþægilegt að þurfa alltaf að vera
að taka snúruna úr skottinu á
hverjum degi og stinga bílnum í
samband. En ef fólk skilur kapal-
inn eftir í stöðinni getur verið
hætta á þjófnaði og því er þægilegt
að geta læst kaplinum við stöðina,“
útskýrir Þórður.
Innheimta gjöld fyrir
húsfélög og selja raforku
„Við bjóðum húsfélögum líka
upp á að sjá um að innheimta
gjöld fyrir notkun hvers og eins.
Nær undantekningalaust eru
bílastæðahús nefnilega á einum
sameignarmæli og bílastæðin ekki
tengd inn á heimilismæla hvers og
eins,“ segir Björn. „En stöðvarnar
halda utan um notkun hvers og
eins og við erum með bakenda-
kerfi þar sem við rukkum út frá
því, þannig að húsfélögin losna við
þann höfuðverk.
Svo erum við líka að bjóða
rafmagn til sölu og erum að
bjóða lægsta verðið á raforku,
samkvæmt heimasíðunni Aur-
björg, 7,15 krónur á KWh. Dreifi-
kostnaður er ekki innifalinn, en
dreififyrirtækin sjá um það og
þann kostnað,“ segir Björn. „Við
komum inn á þennan markað í
sumar þegar dótturfyrirtæki N1,
Íslensk orkumiðlun, sameinaðist
fyrirtækinu.“
Hraðhleðsla er framtíðin
„Við bjóðum einnig upp á Zaptec
Home hleðslustöðvar sem eru
hugsaðar fyrir sérbýli,“ segir Björn.
„Þær eru um margt líkar Pro, þær
hlaða allt að 22 KWh og eru þriggja
fasa, hafa sama notendaviðmót og
app, en geta ekki verið jafn margar í
álagsstýringu eins og Pro.
Þetta eru framtíðarstöðvar, þar
sem þær eru svona öflugar. Bílar
eru að verða sífellt betri í að taka
á móti rafmagni og í framtíðinni
mun þetta líklega frekar snúast um
hraða hleðslunnar en stærð raf-
hlöðunnar,“ útskýrir Björn. „Ef það
er gott net af hraðhleðslustöðvum
er nóg að hleðsla sé fljótleg og þá
skiptir máli að heimahleðslustöð
geti tekið á móti því afli sem bíllinn
tekur við.“
„Hraðhleðslustöðvar eru byrj-
aðar að koma upp á þjónustustöðv-
um okkar. Í Mosfellsbæ, Skógar-
lind, í Borgarnesi, Staðarskála, á
Blönduósi og Hvolsvelli eru stöðvar
komnar í gang og við ætlum að setja
upp fleiri fyrir sumarið,“ segir Þórð-
ur. „Við stefnum á að vera leiðandi
á þessum markaði, hvort sem það
snýr að heimahleðslu, hraðhleðslu,
fjölbýlishúsum eða fyrirtækjum og
selja um leið rafmagn. Þróunin er
að verða sú að bensínstöðin er að
færast heim til fólks.“
Hagkvæm leið í rafbílavæðingu
Rafbílavæðing fjölbýlishúsa verður sífellt algengari og hjá N1 er hægt að fá hagkvæmt tilboð í verk-
ið. Fyrirtækið selur vandaðar hleðslustöðvar og getur einnig innheimt gjöld og skaffað raforku.
Björn Guðmundsson, sérfræðingur hjá N1, og Þórður Aðalsteinsson viðskiptastjóri. N1 vill verða leiðandi í sölu orku fyrir rafbíla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Zaptec hleðslu-
stöðvar eru
áreiðanlegar,
öflugar, stíl-
hreinar og þægi-
legar í notkun.
Þeim fylgir
líka fimm ára
ábyrgð. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Það er einfalt að festa hleðslustöð
á bakplötuna og tengjast kerfinu
síðar meir ef fólk er ekki enn komið
á rafbíl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Zaptec hleðslustöðvar koma í
tveimur útgáfum. Pro stöðvar henta
fyrir fjölbýli og Home eru ætlaðar
fyrir sérbýli. MYND/AÐSEND
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 ORKA ÍSLANDS