Fréttablaðið - 30.01.2021, Síða 41
Sunnulækjarskóli
Staða safnstjóra skólabókasafns við Sunnulækjarskóla á
Selfossi er laus til umsóknar.
Einnig vantar kennara til að sinna forföllum í tímabundna
ráðningu til vors.
Í skólanum eru um 740 nemendur og þar er lögð áhersla
á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklings-
miðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða
samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni og áhugi á skólastarfi.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Kennsluréttindi vegna stöðu forfallakennara.
• Góð íslenskukunnátta.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launa-
nefndar Sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vakin
er athygli á stefnu Árborgar um að jafna hlutfall kynja í
störfum hjá sveitarfélaginu.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is og hjá Birgi Edwald
skólastjóra í síma 480-5400.
Umsóknarfrestur er til 8. febrúar 2021.
Sækja þarf um stöðuna vef Sveitarfélagsins Árborgar:
http://starf.arborg.is
Skólastjóri
Laus staða lögfræðings:
HELSTU VERKEFNI:
• Hefðbundin lögfræðistörf, m.a. vinna að
álitum, úrskurðum og leiðbeiningum
• Afgreiðsla fyrirspurna sem berast sím-
leiðis eða með öðrum hætti
• Önnur lögfræðistörf sem heyra undir
starfssvið Persónuverndar samkvæmt
ákvörðun sviðsstjóra
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Mikil áhersla er lögð á gott vald á
íslensku, auk færni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnu-
brögðum
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og
í teymi
• Góð kunnátta í ensku og þekking á a.m.k.
einu Norðurlandamáli
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mann-
legum samskiptum er skilyrði
Laus staða sérfræðings
í þjónustuveri:
HELSTU VERKEFNI:
• Afgreiðsla tilkynninga um öryggisbresti
• Umsjón með vefsíðu, ásamt gerð frétta
og leiðbeininga
• Svörun fyrirspurna á símatíma
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólapróf eða önnur menntun sem
nýtist í starfi er kostur
• Mikil áhersla er lögð á gott vald á
íslensku, auk færni til að tjá sig í ræðu og
riti
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnu-
brögðum
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og
í teymi
• Góð kunnátta í ensku og þekking á a.m.k.
einu Norðurlandamáli
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mann-
legum samskiptum er skilyrði
PERSÓNUVERND
FJARÞJÓNUSTA Á HÚSAVÍK
TVÆR LAUSAR STÖÐUR!
Frekari upplýsingar um störfin
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2021 og skulu umsóknir berast á netfangið postur@personuvernd.is. Með umsókn skal fylgja
ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Ráðið verður í störfin til 12 mánaða. Um er að ræða
tilraunaverkefni sem vonast er til að framhald verði á. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri hjá Persónuvernd, í síma 510-9600. Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá
móttöku þeirra. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Persónuvernd, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík | www.personuvernd.is
Persónuvernd er sjálfstætt
stjórnvald sem annast eftirlit með
framkvæmd laga nr. 90/2018 um
persónuvernd og vinnslu per-
sónuupplýsinga, laga nr. 75/2019
um vinnslu persónuupplýsinga í
löggæslutilgangi og reglna settra
samkvæmt þeim. Eitt af helstu
verkefnum Persónuverndar er að
ráðleggja og leiðbeina þeim sem
vinna með persónuupplýsingar.
Persónuvernd er fjölskylduvænn
og samhentur vinnustaður. Per-
sónuvernd var „Stofnun ársins“ í
könnun SFR árin 2017, 2018 og 2019.
Persónuvernd auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður hjá stofnuninni á nýrri starfs-
stöð hennar á Húsavík. Um er að ræða eina stöðu lögfræðings og eina stöðu sér-
fræðings í þjónustuveri. Leitað er að framúrskarandi einstaklingum sem eru tilbúnir
að takast á við krefjandi verkefni með samhentu teymi hjá Persónuvernd.
Bankasýsla ríkisins er sérstök ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra. Fer stofnunin með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum
í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma. Í umsýslu hennar eru 100% eignarhlutur í Íslandsbanka hf., 98,2%
eignarhlutur í Landsbankanum hf. og 49,5% eignarhlutur í Sparisjóði Austurlands hf.
Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru sem stjórnarmenn eða varamenn í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefnd mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu viðkomandi
í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Nefndin leitast við að það sitji sem næst jafnmargar konur og karlar í stjórnum fjármálafyrirtækja.
Þá er jafnframt miðað að því að þekking og reynsla stjórnarmanna sé fjölbreytt.
Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum
til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum.
Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla
framangreind skilyrði eru hvattir til að senda
ferilskrár og kynningarbréf ásamt upplýsingum
um framangreind atriði til valnefndar Banka sýslu
ríkisins á netfangið valnefnd@bankasysla.is.
Óskað er eftir að umbeðnar upplýsingar
berist eigi síðar en 15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir
Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins,
sími 550-1700.
VIÐ MAT Á HÆFI EINSTAKLINGA LÍTUR VALNEFNDIN MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA:
Einstaklingar sem vilja gefa kost á sér
þurfa að uppfylla margvísleg lagaleg
skilyrði, m.a. vegna ákvæða laga nr.
161/2002 um fjármálafyrirtæki, ásamt
því að standast hæfismat Fjármálaeftirlits
Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
Bankasýslu ríkisins www.bankasysla.is.
• Yfirgripsmikil reynsla af rekstri og þekking á íslensku atvinnulífi.
• Þekking á rekstri banka og starfsemi fjármálafyrirtækja.
• Reynsla af alþjóðlegum viðskiptum.
• Traust og gott orðspor.
• Leiðtogahæfileikar.
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun.
• Fjárhagslegt sjálfstæði.
• Menntun sem nýtist í starfi.