Fréttablaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 47
Umsjón mötuneytis / ræsting
Faxaflóahafnir sf óska eftir að ráða starfsmann í 50% starf til að annast umsjón mötuneytis og ræstingu
í áhaldahúsi Faxaflóahafna sf.
Starfið felst í daglegri umsjón með mötuneyti/kaffistofu og ræstingu.
Starfsmaðurinn mun hafa starfsstöð í Bækistöð Faxaflóahafna
að Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Kröfur til starfsins eru snyrtimennska og góð samskiptahæfni.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf.,
á netfangið olafur@faxafloahafnir.is , eigi síðar en
föstudaginn 12. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Jóhann Páll Guðnason yfirverkstjóri bækistöðvar.
johannpall@faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Jafnréttisstofu.
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Tæknimaður
- innri þjónusta og vélbúnaður
Skatturinn leitar að traustum liðsfélaga til starfa á öflugt tæknisvið
þar sem fjölbreyttum verkefnum er sinnt til að tryggja hnökralaus
stafræn samskipti milli viðskiptavina og Skattsins.
Helstu verkefni:
Verkefnin snúa m.a. að því að sinna notendaaðstoð, uppsetningu og viðhaldi á
vél- og hugbúnaði starfsmanna skattkerfisins.
Hæfnikröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. tölvunarfræði, kerfisfræði
eða sambærilegt.
• Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð.
• Þekking á gagnagrunns- og Microsoftlausnum.
• Þekking á Linux.
• Þekking á miðlægum búnaði er æskileg.
• Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Sveigjanleiki, frumkvæði og metnaður.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Hreint sakavottorð.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnar-
aðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Þór Svansson, sviðsstjóri tæknisviðs,
í síma 442-1000 eða með tölvupósti á netfangið jens.svansson@skatturinn.is.
Starfshlutfall er 100% og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Um ASÍ
Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing
launafólks á landinu með ríflega 130 þúsund félagsmenn
í fimm landssamböndum og 46 aðildarfélögum.
Alþýðusambandið sinnir margvíslegri þjónustu við
aðildarfélögin, berst fyrir bættum kjörum félagsmanna
sinna og stendur vörð um réttindi þeirra. Félagsmenn
í aðildarfélögum ASÍ eru starfandi á flestum sviðum
samfélagsins, á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og
sveitarfélögum.
Alþýðusamband Íslands
Vilt þú
ganga
til liðs
við ASÍ?
Alþýðusamband Íslands leitar að sér-
fræðingi í samfélagsmiðlum og pólsku-
mælandi sérfræðingi (Polskojęzyczny
specjalista).
Umsóknarfrestur er til 8. febrúar.
Sjá nánar á alfred.is
Móttökuritari óskast til starfa
Heilsugæslan í Lágmúla 4, óskar eftir að ráða móttökuritara í
allt að 100% framtíðar starf. Ráðið er í starfið frá 1. mars nk.
eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Símsvörun - tímabóknir – afgreiðsla við skjólstæðinga.
• Önnur stoðþjónusta við stjórnendur og samstarfsfólk.
• Uppgjör afgreiðslukassa.
Hæfnikröfur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Stundvísi og góð mæting til vinnu.
• Reynsla af sambærilegum móttöku-/afgreiðslustörfum
æskileg.
• Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði bæði töluð og rituð.
• Góð enskukunnátta.
• Almenn góð tölvukunnátta - excel, word og outlook
töluvpóstur.
• Þekking og reynsla á bókunar og skráningakerfinu
Sögu er æskileg.
• Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Heilsugæslan áskilur sér rétt til að óska eftir staðfestingu
á hreinu sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 7. febrúar 2021
Umsóknir óskast fylltar út á www.alfred.is
- Móttökuritari á heilsugæslu
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristjana Þórey
Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri thorey@hglagmuli.is