Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 48

Fréttablaðið - 30.01.2021, Side 48
 Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf tengiliðar stofnana fyrir fötluð börn. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% stöðugildi. Æski- legt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Með lögum nr. 148/2020 um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 er mælt fyrir um greiðslu sanngirnisbóta úr ríkissjóði til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð og ofbeldi á stofnunum fyrir sólarhringsvistun fatlaðra barna og starfræktar voru á vegum hins opinbera fyrir 1. febrúar 1993. Um er að ræða lokauppgjör sanngirnisbóta og er miðað við að verkefninu verði lokið og að lögin falli úr gildi í árslok 2023. Dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn og framkvæmd laganna en hefur falið sýslumanninum á Norðurlandi eystra að annast verkefni sýslumanns samkvæmt ákvæðum laganna. Helstu verkefni og ábyrgð • Upplýsingagjöf til þeirra sem kunna að eiga bótarétt skv. lögum nr. 47/2010 um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn, sbr. lög nr. 148/2020. • Leiðbeina fyrrverandi vistmönnum um framsetningu bótakrafna. • Leiðbeina fyrrverandi vistmönnum sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunnar um úrræði sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endur- hæfingu og menntun. • Aðstoða fatlað fólk við að ná fram rétti sínum á grundvelli laganna og tryggja að það nái að koma óskum sínum á framfæri við meðferð máls. • Önnur tilfallandi verkefni. Starfið krefst náins samstarfs við hagsmunasamtök, stofnanir á vegum ríkis og sveitarfélaga og Sýslumanninn á Norðurlandi eystra. Hæfniskröfur • Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi. • Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum. • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi og einlægur áhugi á málaflokknum. • Frumkvæði og drifkraftur. • Samskiptafærni og samstarfshæfileikar. • Færni til að vinna sjálfstætt. • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur. • Þekking á málefnum fatlaðs fólks, barnavernd og á þeirri félagslegu aðstoð sem í boði er. • Fjölbreytt reynsla af ráðgjöf og viðtalstækni • Góð almenn tölvukunnátta. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráð- herra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknir skulu berast í gegnum starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar nk. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnis- kröfur fyrir starfið. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Bjarni Ragnarsson, lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu, í síma 5459000. Staða tengiliðar vegna stofnana fyrir fötluð börn Ertu með iðnmenntun og vilt starfa hjá ISAL í sumar? Umsóknarfrestur er til 12. mars 2021. Nánari upplýsingar um störfin og umsókn má finna á vef Rio Tinto, www.riotinto.is. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og hreint sakavottorð. Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.