Fréttablaðið - 30.01.2021, Síða 74
Vatnsafl hefur verið nýtt á ýmsan hátt í gegnum aldirnar en undir lok 19. aldar varð rafallinn til og þá varð mögulegt
að nýta það til rafmagnsframleiðslu.
Fyrsta vatnsaflsvirkjunin á Íslandi var
byggð árið 1904 þegar Hamarskotslækur í
Hafnarfirði var virkjaður af Jóhannesi Reyk-
dal. Virkjunin sá fimmtán húsum og fjórum
götuljósum fyrir rafmagni.
Elliðaárnar voru virkjaðar á árunum 1921-
1933 og á árunum eftir seinni heimsstyrjöld
jókst raforkunotkun mikið og fjölmargar
heimarafstöðvar voru byggðar. Árið 1950
var búið að reisa 530 smávirkjanir um allt
land, en fyrsta virkjunin til að framleiða 10
MW var Írafossvirkjun árið 1953.
Landsvirkjun var svo stofnuð árið 1965 og
þá hófst markaðssetning á raforku. Í kjöl-
farið risu nokkrar stórar vatnsaflsvirkjanir,
en sú fyrsta til að ná 200 MW var Búrfells-
virkjun árið 1969. Árið 2007 varð Kára-
hnjúkavirkjun stærsta vatnsaflsvirkjun
landsins, en hún framleiðir 650 MW. Sam-
kvæmt Orkustofnun komu um 70% af allri
raforku á Íslandi frá vatnsaflsvirkjunum
árið 2018.
Jarðhitaskólinn hefur starfað í yfir
40 ár, nú undir regnhlíf UNESCO.
Jarðhitaskólinn er rekinn á Orkustofnun.Þann 1. janúar 2020 tengdist
Jarðhitaskólinn, ásamt Sjávarút-
vegs-, Landgræðslu- og Jafnréttis-
skólunum Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO,
í gegnum GRÓ – Þekkingarmið-
stöð þróunarsamvinnu Íslands
(International Centre for Capacity
Development) en það er ný mið-
stöð sem sett hefur verið á stofn.
Skólarnir fjórir voru áður
undir hatti Háskóla Sameinuðu
þjóðanna hér á landi, en vegna
áherslubreytinga innan hans var
ákveðið að skólarnir myndu starfa
undir regnhlíf UNESCO þess í
stað.
n Hlutverk skólans er að veita
ungum sérfræðingum frá þró-
unarlöndum sérhæfða þjálfun
í rannsóknum og nýtingu jarð-
hita.
n Skólinn er mikilvægur þáttur í
þróunaraðstoð Íslendinga.
n Á yfir 40 ára starfsferli sínum,
hefur skólinn útskrifað meira en
700 nema.
n Kennarar koma frá ÍSOR, Há-
skóla Íslands, Háskólanum í
Reykjavík, orkufyrirtækjum og
verkfræðistofum, auk Orku-
stofnunar.
Heimild: orkustofnun.is
Jarðhitaskólinn
Rafmagnsframleiðsla við Kárahnjúkavirkjun, stærstu
vatnsaflsvirkjun landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Virkjun í yfir 100 ár
Glæsileg, rauð rafmagnsmöstur á
Hellisheiði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við vitum það flest að orkan sem framleidd er á Íslandi kemur úr jarðvarma- og
vatnsfallsvirkjunum sem teljast
til endurnýjanlegra orkuauð-
linda. Nánar tiltekið fara 99,9%
af raforkuframleiðslu á markaði
á Íslandi fram með endurnýjan-
legum orkugjöfum. Þá hefur Evr-
ópusambandið skilgreint endur-
nýjanlega orkugjafa sem vindorku,
sólarorku, jarðvarma, sjávaröldur,
sjávarfallaorku, vatnsafl og líf-
massa.
Tilkoma útflutnings uppruna-
ábyrgða og skráningarskyldu má
segja að hafi umbreytt uppruna
raforku á Íslandi. Með því að
kaupa upprunaábyrgðir endur-
nýjanlegrar raforku er orkufram-
leiðanda, sem framleiðir raforku
með til dæmis olíu eða kolum,
heimilt að selja viðskiptavinum
sínum raforkuframleiðslu sína
sem orku framleidda með endur-
nýjanlegum hætti. Er svo komið
að samkvæmt Orkustofnun kom
einungis 9% upprunaraforku á
Íslandi frá endurnýjanlegum orku-
gjöfum árið 2019.
Heimild: Skiptir upprunaábyrgð
raforku á Íslandi máli? Lokaritgerð
Fríðar Birnu Stefánsdóttur til BS í
viðskiptafræði 2019.
Uppruni hreinnar
íslenskrar orku
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endur-
skoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini
sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
Góð yfirsýn
yfir reksturinn
Bókhald / Laun / Skattur / Ráðgjöf
Með nýjum rafrænum lausnum sjáum við um bókhald þitt á einfaldan og
öruggan hátt meðan þú sinnir rekstrinum og hefur góða yfirsýn yfir stöðuna.
Taktu skrefið inn í framtíðina með okkur, útvistaðu
bókhaldinu og njóttu þess að hafa meiri tíma fyrir þig.
12 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS