Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 82

Fréttablaðið - 30.01.2021, Page 82
Út fyrir kassann Sigmundur Ernir Rúnarsson Höfundur er sjónvarpsstjóri Hringbrautar, sem rekin er af Torgi, sem jafn- framt gefur út Fréttablaðið. Líf mitt sem kona HÚN KVEÐST NEFNILEGA EKKERT ENDILEGA VERA TEKIN MEÐ Í SAMTALIÐ FYRR EN KARLARNIR Í KRINGUM HANA HAFA ÁTTAÐ SIG Á MENNTUN HENNAR OG MÆTTI. Ég er þriggja alda maður. Búinn til úr konum og körlum, en öðru frem-ur konum – og ber þar fyrst að nefna ömm-urnar, þá eldri fædda á nítjándu öld, nefnilega 1895 – og hina litlu seinna, í upphafi þeirrar tuttugustu. Sum sé á síðustu og þar síðustu öld. Og svo er ég að skrifa þetta á enn einni öldinni. Þær hétu Guðrún og Sigrún. Verkakona og bóndakona. Dæmi- gerðir fulltrúar gamla afturhalds- samfélagsins sem steypti konur í eitt og sama mótið, burtséð frá óskum þeirra og þrám, hæfileik- um og styrk, því þær skyldu vera körlunum til halds og trausts og sjá um börnin og búið, basta. Eða eins og það hét í denn: Vera þeim góð eiginkona. Gott ef ekki prúð og hæfilega ófram- færin. En þar var komið erindið, eina hlutverkið sem var í boði fyrir konur á sviði lífsins, sjálft aukahlutverkið.  Ólíkt þessum konum komst mamma til mennta, þótt ekki væri það í Háskóla Íslands. Pabbi fór í hann. Mamma í Húsmæðraskólann. Þannig var það um og upp úr síð- ustu öld. Konur gengu ekki mennta- veginn á enda á þessum tíma, nema þær væru sérstaklega kostaðar til þess af stórfjölskyldunni – og þá sakir svo óumdeildra hæfileika að jafnvel feðraveldið gat vart hugsað sér að atgervið og gáfurnar nýttust ekki fullvalda þjóð, jafnvel þótt kona ætti í hlut. Lengi vel var því kannski ein kona á útskriftarmyndum mennta- skólanna tveggja, norðan heiða og sunnan, en sú fór raunar sjaldnast í frekara nám, hvað þá að hún héldi utan í þeim erindagjörðum. Þessar konur urðu kennarar. Oft- ast – og það í besta falli. En karlarnir læknar, lög- fræðingar. Helst þó æðstu embættismenn og ráðherrar.  Aldrei vissi ég með vissu hvað ömmur mínar langaði að verða í lífinu. Önnur þeirra var sérlega hag- mælt – og orti býsnin öll í skúffuna, eins og skáldkvenna var siður á síðustu öldum þegar listakonur fóru með veggjum og sinntu kúnst sinni í kyrrþey. Og ógleymanleg eru mér hádegin, eftir að mamma byrjaði að vinna úti, hvar ég sat þá með þessari ömmu eftir signa fiskinn og tólgina og hún réri mér í gráðið með aðra hönd á öxl og hina á kviðnum svo að hrynjandin sæti í mér fyrir lífstíð. Hin amman var einstaklega elsk að matseld og hefði getað rekið hvaða mötuneyti sem var á sinni tíð, ellegar gildaskála og vertshús af við- eigandi stærð, enda kraftakokkur af kræsilegustu sort sem ég man varla öðruvísi en með svuntuna reyrða um mjöðm, ellegar Hagkaupssloppinn á herðum, með þær eilífu áhyggjur að ég fengi ekki nóg að borða. Man eftir þeim báðum úr eldhús- unum í Helgamagrastræti og Gils- bakkavegi. Það var þeirra verelsi. Þeirra varnarþing. Framan við Raf- ha-eldavélina, þótt hugurinn, hugs- anlega, hafi verið annars staðar. Við skriftir. Og uppskriftir. Og guð má vita hvað dagdraumar þeirra snerust um. Kannski menntun, launavinnu, útlönd, ævintýri. En hlutskipti þeirra hverfðist um annað. Nægjusemi. Öðru fremur. Sparnað og nýtni. Amma skáld reykti jafnvel stubbana úr vinnu- skyrtu afa upp til agna, þótt hún reykti ekki að staðaldri, af því bara að hún hafði það ekki í sér að henda verðmætum. Amma krás tók það ekki í mál að henda mörnum ef út af bar í sláturgerðinni og blandaði síðasta blóðinu og lifrinni með svo stórri glás af fitu að keppirnir urðu hvítir að innan. Það þótti nú matur. Ég er búinn til úr þessum konum, auk mömmu náttúrlega. Þær voru alltaf til staðar. En karlarnir úti. Alltaf að vinna. Helst mikið. Það hét að slæpast í huga þeirra að vera of mikið heima. Og ég hef á seinni árum – með eiginkonunni, franskmenntaðri, en þannig breyttist tíminn – áttað mig á því í ríkari mæli en áður, að ég er mótaður af þessari sýn og reynslu. Kvenlegu hlutskipti. Kvenlegu inn- sæi. Hvoru tveggja er grunnurinn að gildum mínum og viðmiðunum. Ég er ekki síður kona en karl.  Tímarnir hafa breyst. Og tímarnir hafa ekki breyst. Því jafn hrífandi og það er að kynnast öllum tækifærum kvenna á nýrri öld, jafnt til náms og frama, innan fyrirtækja og stofnana, í félagsmálum og pólitík, íþróttum og listum, er það grátlega pirrandi að verða vitni að þeirri vandræða- legu þögn sem enn hjúpar hæfustu konur atvinnulífsins, þessu ólánsins eftirtektarleysi sem þær glíma enn og aftur við í starfi og leik. Fida Abu Libdeh lýsti þessu ágæt- lega fyrir mér á dögunum í viðtali sem ég átti við hana suður með sjó. Þessi vel menntaði og framúrskar- andi frumkvöðull innan orku- og umhverfistæknifræðinnar hreppti hvatningarverðlaun Félags kvenna í atvinnulífinu á miðvikudag, en veggirnir sem mæta henni á mark- aði vinnunnar eru enn sem fyrr þeirrar ættar sem við þekkjum frá síðustu öld. Í fyrsta lagi hefur hún þurft að sanna sig sem kona. Í öðru lagi sem kona af erlendum uppruna. Í þriðja lagi sem kona í karllægum atvinnu- geira. Í fjórða lagi sem hámennt- aður hugsuður í framandi frjóanga íslenskrar nýsköpunar. Og sjálfsagt í fimmta lagi sem móðir þriggja barna, sem þarf að samhæfa rekstur heimilis og eigin fyrirtækis. Hún kveðst nefnilega ekkert endi- lega vera tekin með í samtalið fyrr en karlarnir í kringum hana – og það eru eiginlega bara karlar í kringum hana á vettvangi vinnunnar – hafa áttað sig á menntun hennar og mætti, altso hvaða leiðtogi hún er í raun og sann, þótt lágvaxin sé. Og útlensk, með hreim. Kona. Fida fluttist hingað sextán ára frá Palestínu með einstæðri móður sinni og fjórum systkinum og komst í gegn- um íslenskan framhaldsskóla á hnef- anum til jafns við hugvitið – á fram- andi tungu, vinalaus – og lagðist svo í framhaldsnám, sérhæfði sig á sviði jarðorkunnar, uppgötvaði heilnæmi kísilsins sem fellur til við varmavirkj- anir, en fyrirtækið hennar, Geosilica sem framleiðir fæðubótarefni og selur á erlendum mörkuðum, er nú metið á 700 milljónir króna. Fida fékk tækifærið. Draumur hennar rættist. En samt þarf hún að segja sem svo þegar fimmtungur er liðinn af nýrri öld: „Sumir horfa ekki á mig sem jafningja, því ég er bæði kona og innflytjandi, en þegar ég hef sagt þeim að ég sé hámennt- uð og eigi mitt eigið fyrirtæki þá fer fólk að tala við mig eins og við eigum eitthvað sameiginlegt.“  Og mér verður hugsað til dóttur minnar, þrítugrar, sem er inn- flytjandi í Englandi og starfar þar á fréttastofu BBC í Lundúnum, hámenntuð og hæfileikarík. Skyldi henni líða eins? Og mér verður hugsað til dóttur hennar, fimm ára, sem fær vonandi fjölda tækifæra í framtíðinni. Mun henni líða svipað á fullorðinsárum? Því tímarnir breytast um margt. Frá ömmunum til okkar tíma. Og annað breytist ekki. 3 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.