Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 6

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 6
Fjarrí því að alnæmisfaraldurínn hafí náð hámarki Rætt vió Harald Briem sóttvarnalækni um þróun og útbreiÓslu alnæmis að er vel tekið á móti mér þegar ég mæti á skrifstofur Landlæknisembættisins úti á Sel- tjarnarnesi. Eítir að hafa fengið kaffi í bolla er mér vísað inn á skrifstofu til Haraldar, sem er nú reyndar í símanum, en lætur þó ekki innrásina trufla sig hið minnsta, heldur kinkar vinalega kolli og gefur mér bendingu um að setjast við hringlaga borð. Það vekur athygli mína að skrifborðið er þakið pappírsstöflum og ég hugsa með mér að ég sé heppin að fá að ræna heilum kaffitíma og rúmlega það af manni sem er greinilega önnum kafínn. Or- fáum mínútum síðar slítur hann símtalinu, heilsar með hlýju handabandi og sest hjá mér. Haraldur Briem hefur góða nærveru. Eg byrja á því að benda á staflana og spyr hvort þetta séu allt verkefni sem bíða hans, en Haraldur hlær og segir að staflarnir beri frekar vott um skort á skipulagi. Við byrjum á því að að rifja upp fyrstu árin eftir að alnæmi uppgötv- aðist. „Sjúkdómurinn sem slíkur uppgötvaðist fyrst árið 1981, en svona eftir á að hyggja sáu menn að hann var búinn að vera í farvatninu í mörg ár. Vandamálið á þessum tíma var að í Bandaríkjunum lágu ekki fyrir neinar nýjar upplýsingar um að óvenju margir ungir karlmenn væru að deyja. Tilfellin dreifðust um öll Bandaríkin og enginn sá í byrjun að um ákveðið mynstur væri að ræða. En í dag telja menn sig hafa lært og núna er haldið utan um slíkar upplýsingar um leið og þær berast. I byrjun vissi líka enginn hvað þetta var en þá kom faraldsfræðin til, það er að segja farið var að kanna hverjir voru að veikjast og hvað voru þeir að gera öðruvísi en aðrir. I fyrstu blasti við að sjúk- dómurinn smitaðist milli karlmanna við kynmök og síðan fór þetta að tengjast fíkniefnaneyslu og blóðþeg- um. Það er svo ekki fyrr en tveimur til þremur árum seinna að það uppgötvast að það sem veldur sjúk- dómnum er veira sem síðar fékk nafnið hiv.“ Gagnkynhneigðir geta líka smitast! Allrafyrstu árin var sú skoðun ríkjandi að sjúkdómurinn legðist bara á samkynhneigða karlmenn. Haraldur minn- istþess að hafa farið á ráðstejhu í Kanada árið 1983 þar sem því var haldið fram ífyrsta skipti að gagnkynhneigð- ir gœtu líka smitast. „Læknir, sem hafði starfað í Kongó um árabil, var á ráðstefnunni og þar hélt hann því fram fyrstur manna að sjúkdómurinn væri að breiðast hratt út í Afríku á meðal gagnkynhneigðra, bæði karla og kvenna. Orð hans vöktu sterk viðbrögð og við lá að menn gerðu hróp að honum fyrir að halda fram slíkri vitleysu! Svo kom auðvitað í ljós að hann hafði alveg rétt fyrir sér.“ Haraldur segir hiv-smit hafa borist fljótt til Islands og aðfyrsta tilfellið hér hafi komið fram 1983, þó það hafi ekki verið staðfest fyrr en 1985 þegar farið var að mœla mótefni gegn veirunni. „A þessum tíma voru margir sem töldu að sjúkdóm- urinn mundi aldrei berast hingað til lands og kom þessi vitneskja mörgum í opna skjöldu. Þegar árið 1985 lést fyrsti sjúklingurinn úr alnæmi, sem er loka- stig hiv-sýkingar. Næstu árin fór sá fjöldi vaxandi sem lést úr sjúkdómnum. Maður hafði miklar áhyggjur af þessu og svona í lok níunda áratugarins og byrjun þess tíunda voru alltaf allmargir inni á spítala á hverjum tíma sem voru mikið veikir og þetta var mjög erfitt allt saman.“ Maskínan sprengdi glösin með smit- aða blóðinu Var mikill ótti við smit innan heilbrigðisstéttarinnar fyrstu árin? „Smitleiðirnar sem slíkar voru nú orðnar vel þekktar á þessum tíma, þegar sjúkdómurinn var orðinn stað- reynd hér á landi, en vissulega var óttinn samt til stað- ar. Dæmi voru um að farið væri að grípa til óvenju- legra öryggisráðstafana til að verjast smiti, ráðstafana sem gátu verið varasamar þar sem þær voru starfsfólk- inu ekki tamar. Stundum klæddu menn sig í hálfgerð- an geimfarabúning þegar þeir fóru inn til sjúklinganna 6 rauði borðinn

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.