Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Blaðsíða 14
um múhameðstrúarmanna og eru
með aðalskrifstofu í Kuala Lumpur,
höfuðbog Malasíu. Eg komst þó að
því hjá þeim eins og svo mörgum
öðrum er mikil bannhelgi yfir hiv-
smiti og alnæmi.
Þarna voru einnig mjög stórir
básar frá öllum helstu lyfjafyrir-
tækjum heims sem framleiða al-
næmislyf. Eg spjallaði aðeins við
kynningarfulltrúa Bristol-Myers
Squibb sem framleiðir Sustiva
(Stocrin-Efavirenz), sem reynst hef-
ur mörgum hiv-jákvæðum erfitt lyf
að taka inn, en það getur haft veru-
lega miklar og slæmar aukaverkanir
fyrir einstaka sjúklinga, meðal
þeirra má nefna svefntruflanir,
martraðir og jafnvel persónuieika-
breytingar. Þetta lyf er, að mér
skilst, eina alnæmislyfið sem hefur
bein áhrif á miðtaugakerfið, en það
kemur þrátt fyrir allt vel út í flest-
um mælieiningum eins og vírus-
magni og t-hjálparfrumum sem eru
uppistaða ónæmiskerfisins. Fulltrúa
lyfjafyrirtækisins þótti áhugavert að
hitta einhvern milliliðalaust sem
gat útlistað um virkni lyfsins, en ég
er einn af þeim sem hefur gefist
upp á að nota það vegna aukaverk-
ana. Seinna í vikunni sá ég að ein-
hverjir höfðu tekið sig til og rústað
þessum bási algerlega, var það gert í
mótmælaskyni við háu verðlagi
lyfjaframleiðslu risanna. Onnur
lyfjafyrirtæki á ráðstefnunni fengu
sum hver sömu útreið.
Er skírlífi lausnin?
Eg fór á fyrirlestur þar sem banda-
rísk þingkona demókrata, Barbara
Lee að nafni, gagnrýndi stefnu
Bush Bandaríkjaforseta og banda-
rískra stjórnvalda fyrir einfeldn-
ingslegar og óraunhæfar tillögur
um lausn alnæmisvandans. Þar
hvetur Bush og stjórn hans fólk til
að lifa skírlífi til að hefta útbreiðslu
alnæmis, sagði Lee að það græfi
undan raunhæfum tilraunum í að
hefta útbreiðslu sjúkdómsins.
Heimurinn væri samansettur af svo
ólíkum menningarsvæðum að óá-
byrgt væri að koma með slíkar
innihaldslausar tillögur. Mikið var
rætt um töfrasprotaráð Georg Bush
og hans manna á göngum og sölum
ráðstefnunnar. Margir vildu meina
að Bush stjórnin væri með þessu að
reyna að firra sig fjárhagsskuld-
bindingum í alnæmismálum fram-
tíðarinnar og að þeir hafi þegar
dregið úr loforðum sínum til að
koma til hjálpar á alþjóðlega vísu.
Þykir það mikil einfeldni að tala
um skírlífi þar sem menningar-
heimar eru svo gjörólíkir og stór
hluti íbúa þriðja heimsins sé hvorki
læs né skrifandi. Sögðust margir
hafa það á tilfinningunni að skila-
boðin væru þau að ekki bæri að
gæta bróður síns, heldur ætti hver
að vera sjálfum sér næstur. Hljómar
þetta ekki orðið kunnuglega í nú-
tímasamfélagi?
Microbicide - nýjar leið-
ir í forvörnum?
Hiv-drepandi efni (mirobicide)
voru til umræðu á ráðstefnunni.
Möguleiki á að koma þeim fyrir í
kremi, geli, hring eða svampi sem
síðan væri hægt að koma fyrir í
sköpum eða endaþarmi hefur verið
til umræðu um nokkurt skeið. Þó
að rannsóknir á microbicide séu
töluvert langt á veg komnar, á eftir
að þróa hugmyndina verulega og
vantar mikla fjármuni til áfram-
haldandi tilrauna. Rætt var um að
þetta gæti orðið að veruleika og
komist á markaðinn árið 2009. Að-
ferðir þessar yrðu þó aldrei 100%
vörn, ekki fremur en smokkurinn.
Það kom fram hjá talsmönnum fyr-
irtækja sem að rannsóknunum
standa að með slíkum aðferðum
gætu konur haft meiri möguleika
til að verja sig smiti og þá sérstak-
lega í þeim heimshlutum þar sem
karlmenn ráða miklu um það hvort
öruggt kynlíf er stundað eður ei.
Lokaathöfnin
A lokaathöfn ráðstefnunnar voru
samþykktar margar ályktanir og
ótal loforð gefin. Ábyrgðinni á
áframhaldandi þróun og framför-
um í alnæmismálum var vísað jafnt
til einstaklinga, félagasamtaka,
stofnana og ekki síst ráðamanna í
þeim löndum sem hafa efnahags-
lega yftrburði til að geta komið
þeim fátækari til hjálpar. Fram-
tíðarýn þessarar fimmtándu al-
næmisráðstefnu var að tengja sam-
an samfélag og vísindi til að örva
viðbrögð heimsins við hiv-smiti og
alnæmi með auknum sameiginleg-
um skuldbindingum og ábyrgðar-
skyldu þjóðarleiðtoga. Tíminn á að
sjálfsögðu eftir að leiða í ljós hvort
efndir verði í samræmi við loforð,
nú sem fyrr.
Tilkynnt var að næsta ráðstefna
yrði haldin í Toronto í Kanada árið
2006 og tóku fulltrúar þaðan form-
lega við hlutverkinu ásamt árnaðar-
óskum frá Taílendingum.
I lokin tók hin heimsfræga söng-
kona Dionne Warwick nokkur af
sínum þekktustu lögum við mikinn
fögnuð áheyrenda.
í lokin
• Stœrstur hluti hiv-smitaðra veit
ekki um smitið.
• Átta þúsund einstaklingar deyja
daglega afvöldum alnæmis.
• Sérfræðingar vara við þeirri
staðreynd að markviss leit að
hiv-smiti hefur ekki verið
hrundið í framkvœmd á heims-
vísu.
• Að minnsta kosti sex milljónir
hiv-smitaðra og alnœmisjúkra
þurfa á lyfjameðferð að halda.
• Sameinuðu þjóðirnar ráðgera að
veita þremur milljónum manna
aðgengi að lyfameðferð fyrir
árslok 2005.
Jón Helgi Císlason
14 rauði borðinn