Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 16

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 16
Hiv-smit flæðir yfir Rússland Á dæmigerðum gráum morgni í maí virðist Krasnoselski-hverfið í St. Pétursborg drungalegt og eyðilegt. Skammt frá mikilli umferðargötu standa mörg stór og litlaus fjölbýlishús þar sem býr tekju- lítið fólk, þau minna einna helst á varðturna þarna sem þau eru í hrjóstrugu borgarlandslaginu, þar sem sorp er úti um allt. Það blæs köldu inn frá Eystrasalti og fáir á vappi ut- andyra. Samt hafa nokkrir safnast saman við sendibíl sem hefur verið lagt í hliðargötu og eru að reykja og spjalla saman áður en þeir fara inn í bílinn. I bílnum er færanleg læknastofa á vegum félags sem tengist samtökunum Læknar án landamæra. Bíllinn kemur hingað síðdegis hvern dag. A tveimur stöðum í borginni eru hreinar sprautunálar látnar í staðinn íyrir óhreinar nálar sem er skilað inn. Þetta er talin framsæknasta aðgerð í Rússlandi til að berjast við alnæmi. Fljótlega eftir að bíllinn kemur þyrpist fólk að úr nálægum húsum. Inni í bílnum er svo þröngt að læknar og hjúkrunar- fólk verða að draga að sér fæturna til að hleypa fólki framhjá. Flestir komumenn fara að litlum glugga þar sem þeir segja skírnarnafnið og skipst er á nálum. I þessu verkefni eru látnar af hendi 230.000 nýjar nálar og 98% af þeim eru í skiptum fyrir gamlar. Verkefnið er meðal 43 slíkra í Rússlandi og 11 lönd- um í Samveldi sjálfstæðra ríkja. Þau eru kostuð af ýms- um erlendum stofnunum. Brú yfir til lífsins Inni í bílnum fara þeir sem koma í íyrsta sinn í skoðun hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi. Þar er veitt ráðgjöf um hiv-smit, berkla og lifrarbólgu og próf tekin. Margir eru smitaðir af öllum þremur sjúkdómunum. Þeir fara með tilvísun í höndunum til að fá endur- tekna skoðun á alnæmisstofnun borgarinnar eða sér- deild íyrir alnæmi á Botkin-sjúkrahúsinu. Sumum er vísað á berklasjúkrahús til þess að fara í röntgen- myndatöku eða meðferð og á kynsjúkdómadeild til þess að fá meðferð vegna þeirra eða meðgöngu. Þeim konum fjölgar sem eru með barni og aldur þeirra fer lækkandi og þær hafa fæstar aðgang að mæðraskoðun. Þjónustan sem er veitt í verkefninu er ekki full læknishjálp en myndar brú á milli þeirra sem eru í hiv-áhættuhópum og aðgerðalítils heilbrigðiskerf- is Rússlands. „Hér er fyrst og fremst nálaskiptistaður", segir Alex- ander Tsekhanovitch yfirmaður verkefnisins, „en okk- ur er ljóst að hér er mikil þörf fyrir aðstoð og með- ferð.“ „Við lítum ekki á verkefnið sem sjúkrahúsþjónustu né sjúkrabílsþjónustu. Það er stökksteinn á milli lífsins eins og það er á götunni og heilbrigðisþjónustu borg- arinnar. Við komum fólki í samband - sjúklingum og læknum. Áður en við byrjuðum var ekkert samband á milli opinberu þjónustunnar og fólksins sem er í verstri stöðu. En það verður að viðurkennast að það sem við gerum er hvergi nærri nóg.“ Margir skjólstæðingar búa á götunni og þurfa margs konar aðstoð, mat, atvinnu og húsnæði. Efst á verk- efnalistanum er fíkniefnameðferð en henni er afar áfátt í Rússlandi. Það er bannað að nota meþadon og end- urhæfmgarstöðvar eru afar fáar. Flestir sprauta skjólstæðingarnir sig með heróíni og margir eru langt leiddir. Eins og vændisfólkið forðast þeir öll tengsl við allt sem tengist hinu opinbera, svo sem heilbrigðisþjónustu, því þeir óttast handtöku og misrétti - ckki að ástæðulausu, eftir því sem Tsek- hanovitsch segir. „Yflrleitt eru fíkniefnaneytendur afar illa séðir“, segir hann. „Reglan er sú að læsa þá inni. Það á líka við um vændisfólkið. Nú bætist hiv-veiran í þessa blöndu. Mér er illa við að segja það en mjög margir vildu helst af öllu að þetta fólk dæi, allt með tölu.“ Dómsdagsspóin rætist Áætlanir um varnir gegn hiv/alnæmi voru ekki hafnar fyrr en 1999 og það voru tímamót að sögn embættis- manna í heilbrigðiskerfinu. Síðan þá hefur orðið alger sprenging í útbreiðslu hans og fjöldi smitaðara meira en tvöfaldast á hverju ári. Fram til þessa hafa langflestir smitaðir verið fíkni- efnaneytendur og vændisfólk sem oftst hefur hafið vændi til að afla fjár til vímuefnakaupa. I víðáttumesta landi heims þar sem 143 milljónir manna búa nota tvær milljónir eiturlyf. Margir lenda í fangelsi og þar er skylda að prófa fyrir hiv-smiti. Nú eru 900.000 fangar í Rússlandi og 37.000 þeirra eru hiv-jákvæðir. Þegar fangar eru látnir lausir hafa 16 rauði borðinn

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.