Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Qupperneq 19
Fræðslu- og forvarnarverkefni í biðstöðu
Á vegum Alnæmissamtakanna hefur verið unnið
að því að undanförnu aö skipuleggja fræðslu- og
forvarnarstarf í grunnskólum landsins, ámóta því
sem lagt var í skólaárið 2002-2003. Þann vetur
heimsóttu fræðslufulltrúar Alnæmissamtakanna
alla 9. og 10. bekki í grunnskólum og náði
fræðslan til ríflega níu þúsund nemenda!
Landlæknisembættið, sem styrkti verkefnið á mjög
myndarlegan hátt, hefur heitið ámóta stuðningi
við fyrirhugað fræðslustarf.
Hins vegar hafa mál skipast á þann veg að starf í
grunnskólum lá niðri vikum saman. Vegna þessa
er fræðslu- og forvarnarverkefni Alnæmissamtak-
anna í biðstöðu, en vonandi rætist úr málum
þannig að hægt verði að hefjast handa með
hækkandi sól.
Núverandi nemendur 9. og 10. bekkja hafa ekki
notið fræðslu frá Alnæmissamtökunum, utan í
einstaka undantekningartilvikum, og það væri
mjög miður ef útkoman yrði sú að fresta þyrfti
framkvæmd til næsta skólaárs. EN ekki er öll von
úti enn!
Birna Þórðardóttir
formaður Alnæmissamtakanna
Forvarnarvika FB
Forvarnarvika Fjölbrautaskólans í
Breiðholti var haldin dagana 18.-22.
október sl.
Það var mikið um að vera alla vikuna en aðal-
dagurinn var fimmtudagurinn 21. október. Þá
fengum við fyrirlesara úr ýmsum áttum, þar á
meðal fengum við fyrirlestur um hiv og alnæmi.
Sá fyrirlestur var langbest sóttur, en hann sóttu
tæplega 200 manns. Ingi Rafn Hauksson, for-
varnarfulltrúi Alnæmissamtakanna, hélt fyrir-
lesturinn og var hann einstaklega áhugaverður
og gefandi. Nemendurnir höfðu mikinn áhuga
og spurðu margra spurninga.
Við dreifðum alnæmisbæklingum frá Land-
læknisembættinu á fyrirlestrinum og svo smokk-
um, sem við fengum gefins hjá Durex umboð-
inu. Einnig seldum við Rauða borðann, merki
Alnæmissamtakanna, alla vikuna, og voru und-
irtektirnar miklu betri en vonast var eftir. Við
seldum merki fyrir tæpar 20.000 krónur, sem
var okkar framlag til Alnæmissamtakanna.
Fyrir hönd forvarnarnefndar i FB,
jjakka ég kærlega fyrir okkur!
Sigurlaug Rósa Guðjónsdóftir
rauði borðinn 19