Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 21

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 21
ýmsum smákvillum. Það er mjög áhugavert hvað stúlkurnar vita mikið um og nota allskonar hús- ráð og hvað þær kunna að nota ýmsar jurtir til lækninga. Þær ræða þessa hluti mikið við hjúkrunar- konuna, en það er mjög algengt að lítið menntað fólk í Uganda sæki fyrst til grasalækna áður en það fer til læknis. Hjá CLF er skylda að taka þátt í tveggja tíma kennslustund dag- lega. Menntunarstig stúlknanna er mjög misjafnt, flestar eiga einung- is tveggja til fjögurra ára barna- skóla að baki, nokkrar hafa aldrei í skóla komið og geta ekki skrifað nafnið sitt, en ein stúlka var hjá CLF sem var með stúdentspróf. Þegar CLF hafði starfað í tvö ár hafði tekist að koma öllum þeim stúlkum í skóla sem höfðu mögu- leika á að fara inn í skólakerfið aft- ur. Þær stúlkur sem mest sækja til CLF eru þær sem eiga börn, flest hafa börnin verið átta sem komu með mæðrum sínum, í dag eru þau fimm. Stúlkur sem eiga börn eiga mjög erfitt með að mennta sig í hinu almenna skólakerfi. Algeng- ast er að stúlku sé vísað úr skóla um leið og það vitnast að hún er barnshafandi. Það sem verra er er að þá hafa þær ekki möguleika á að fara aftur inn í almennan skóla, skólayfirvöld vilja ekki hafa stúlk- ur sem búnar eru að eignast börn og segja að þær sýni slæmt for- dæmi og hafi slæm áhrif á aðrar stúlkur í skólanum. Dregið hefur úr nýsmit- un Úganda er eitt af fáum löndum í heiminum þar sem dregið hefur úr nýsmiti hiv/alnæmis. Meginástæð- an fyrir því er sú, að strax þegar al- næmi barst til Úganda á níunda áratugi síðustu aldar, viðurkenndu stjórnvöld að alnæmi væri raun- verluleiki og að sjúkdómurinn hefði mikla útbreiðslu. Það var því Tölvur: Tvær um hverja tölvu, en jafn spennandi fyrir það Edith og Edvin. Maður þarf ekki að vera hár í loftin til að hafa gaman af tölvum Skólastofa: Lært að lesa og skrifa

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.