Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 37

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2004, Side 37
þróun í þá átt að hægja á útbreiðslu hiv-veirunnar. Sumir sérfræðingar halda því kröftulega fram að þessi árangur staðfesti svo ekki verði um villst, að lyfin gegn hiv-veirunni vinni ekki aðeins á alnæmissjúk- dómnum heldur dragi þau einnig úr útbreiðslu hiv-veirunnar með því að lækka líkurnar á smiti. Nýjum tilfellum um smit hefur fækkað um helming í Taiwan og styður þessi árangur sterklega þá röksemd að taka beri fólk til með- ferðar fyrr en ella. Taiwönsk stjórn- völd ráðleggja einnig breytingu á hegðunarmynstri borgaranna, það er ástundun öruggara kynlífs og að sprautufíklar deili ekki sprautunál- um með öðrum, til að minnka lík- urnar á hiv-smiti enn frekar. Frekari rannsóknir eru nauðsyn- legar og skortir óyggjandi sannanir um áhrif lyfjanna á útbreiðslu hiv- veirunnar. Engu að síður eru þessar niðurstöður ákaflega sterkur rök- stuðningur fyrir því að auka eigi magn þeirra hiv-lyfja sem gefin eru til ríkja Afríku og þeim gert kleift að meðhöndla smitað fólk mun fyrr en ella, til að hefta útbreiðslu hiv-veirunnar. Zambía Yfirvöld í Zambíu vonast til þess að á næsta ári (2005) nái lyfjameðferð til 100.000 hiv-smitaðra. Enn sem komið er njóta aðeins 12.000 hiv- smitaðra lyfjameðferðar, sem er niðurgreidd að hluta til. Nú er mögulegt að fá lyfjameð- ferð bæði hjá ríkis- og einkareknum sjúkrahúsum. Greiðsla fyrir með- ferðina er 520 kr. á hvern sjúkling, en sú upphæð stendur straum af um það bil helming kostnaðar og hafa zambísk stjórnvöld verið harð- lega gagnrýnd fyrir að leggja þetta gjald á sjúklingana. Til samanburð- ar má geta þess að kostnaður sjúk- linganna jafngildir vikulaunum daglaunamanns í Zambíu. Lyfin eru þó veitt endurgjalds- laust til barna og þeirra sem eru eldri en 60 ára - en síðasttaldi hóp- urinn er aðeins örlítið brot þeirra sem njóta lyfjameðferðar. Ástralía Fyrirhuguð heimsókn kardínálans Wamala til Astralíu hefur mætt andstöðu frá samtökum hiv-smit- aðra kaþólikka sem eindregið styðja notkun smokka. Sydney er meðal þeirra staða sem heimsókn kard- ínálans nær til en hann er virtur meðlimur kaþólsku kirkjunnar, sem þekkt er fyrir andstöðu sína gegn notkun smokka. Wamala kardínáli hefur verið ásakaður fyrir að hafa látið hafa eft- ir sér að enginn ætd að nota smokka, jafnvel ekki þeir sem væru í sambandi eða sambúð með hiv- smituðum einstaklingum. Þessi yf- irlýsta afstaða hefur vakið ólgu meðal Astrala, sem margir hverjir kæra sig lítt um að fá hann í heim- sókn til landsins. Mótmæli gegn heimsókninni hafa verið skipulögð og þrýst hefur verið á um að kaþólska kirkjan í Astralíu hafni þessari óvinsælu og einörðu afstöðu kardínálans gegn smokkanotkun. 0| Kína Öflugt átak er nú í uppsiglingu í því héraði sem hvað verst hefur orðið fyrir barðinu á hiv-veirunni. Atakið beinist að því að rannsaka og sanna hve mikið af útbreiðslu hiv-veirunnar í héraðinu megi rekja til blóðgjafa með smituðu blóði. Rannsóknin mun ná til 18 borga í Fíenanhéraði og ráðgert að hún nái til milljón einstaklinga sem talið er að hafi selt blóð sitt til blóðsöfnunarstöðva í Kína. Þessar stöðvar eru frægar af endemum fyr- ir ófullnægjandi sóttvarnir. Niður- stöður rannsóknarinnar rnunu von- andi leiða í ljós raunverulegan fjölda hiv-smitaðra og hve margir þeirra seldu blóð gegn greiðslu, fyr- ir árið 1995. Opinberar skýrslur frá Henan- héraði hafa hingað til sýnt 14.050 skráð tilfelli um hiv-smit, þar sem einstaklingarnir smituðust eftir að þeir seldu blóð í blóðsöfnunarátaki sem fjármagnað var af hinu opin- bera. Sérfræðingar telja hinsvegar að raunverulegur fjöldi smitaðra í Henan sé nær milljón og að tíu sinnum fleiri séu smitaðir í Kína. Samkvæmt opinberum gögnum frá Kína er fjöldi hiv-smitaðra ein- ungis 840.000 og stjórnvöld halda því fram að einungis einn af hverj- um fimm hafi smitast vegna blóð- gjafa með smituðu blóði og að yfir- gnæfandi fjölda smita megi rekja til sprautunotkunar í tengslum við neyslu ólöglegra vímuefna. Ólöglegar blóðsöfnunarstöðvar starfa ennþá í sumum hlutum Kína, þar sem fólki er greitt fyrir blóðgjafir og nálar og annar búnað- ur er endurnotaður án þess að fyllsta öryggis sé gætt. Sumar þess- ara stöðva eru jafnvel starfræktar innan sjúkrastofnana. Heilbrigðis- ráðuneytið veit af ástandinu en óvissa ríkir um hvort það grípi til nokkurra aðgerða. Hong Kong Sjötíu og þrjú ný tilfelli um hiv- smit voru greind í Hong Kong frá apríl til júní á þessu ári. Þetta er mikil aukning frá fyrsta ársfjórð- ungi 2004. Flest nýju tilfellin eru rakin til kynmaka gagnkynhneigðra einstaklinga og einungis 16 tilfelli eru rakin til kynmaka samkyn- hneigðra. Einungis fjögur tilfelli eru rakin til sprautunotkunar. Innan við 50 tilfelli voru greind á sama ársfjórðungi í fyrra. Nú bregður svo við að bráðalungna- bólgufaraldrinum er kennt um aukninguna sökum þess að fólk heimsótti síður heilbrigðisstofnanir og forðaðist að vera á almannafæri á meðan bráðalungnabólgufarald- urinn var í hámarki. Pýtt úr tímaritinu +ve: Hörður Ingólfsson rauði borðinn 37

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.