Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2015, Qupperneq 44
43RÚNARISTURNAR Á MARMARALJÓNINU FRÁ PÍREUS, NÚ Í FENEYJUM
Að sumarlagi, eða frá apríl til september, er sólin komin yfir byggingarnar
í austri snemma morguns og þá er hægt að lesa rúnirnar í ristunni á vinstri
hliðinni tákn fyrir tákn. Síðdegis þegar sólin fer að síga til vesturs er á sama
hátt hægt að fylgja ristunni á hægri hlið ljónsins.
Stallurinn sem ljónið stendur á er um 50 cm hár og ljónið sjálft er um
2,8 m á hæð. Efstu rúnirnar á báðum hliðum eru í um tveggja og hálfs
metra hæð. Til að athafna sig við vinnuna þarf því yfirleitt að standa í
stiga. Við fyrstu heimsókn mína hafði ég engan stiga til umráða, en gat þó
gengið úr skugga um að með sól, tíma og þolinmæði mætti ráða a.m.k.
drjúgan hluta af rúnunum.
Ég fór til Feneyja aftur 2010, 2012 og 2013. Eftir það var ég orðin sannfærð
um að ég hefði séð allt sem mér var mögulegt að sjá við þessar aðstæður. Þá
hafði ég lesið allar rúnir sem krotaðar eru eftir vinstra læri ljónsins, 80-85%
af ristunni á bringu, vinstra framfæti og síðu ljónsins og um 50% af ristunni á
hægri hlið ljónsins. Samanlagt hef ég unnið í 15-16 daga, 4-7 klukkustundir
á dag við ljónið. Trúlega mætti ráða eða a.m.k. sjá leifar af fleiri rúnum ef
hægt væri að skoða risturnar með lýsingu í myrkri og einnig þyrfti að mynda
risturnar betur en ég hef haft möguleika á að gera, enda þarf viðeigandi
útbúnað til að festa máðustu svæðin á mynd. En það er einnig ljóst að hluti
textanna á báðum hliðum er svo illa farinn að hann verður aldrei ráðinn til
fulls eða myndaður svo vel fari, þótt ef til vill megi sjá betur leifar af fleiri
rúnum, til dæmis á vinstri hluta ristunnar á hægri hliðinni þar sem texti og
textaband hafa máðst út af núningi dragreipa.
Ristan á bringu, vinstri framfæti og síðu
Ristan byrjar efst á bringunni, heldur áfram niður vinstri (ytri) kant á vinstri
framfæti, beygir um ‘hnéð’ og fylgir hægri kantinum upp á bringuna aftur.
Ekki er með vissu hægt að skera úr því, en mér virðist sem þessi hluti endi
hér með orðaskilatákni, tveimur punktum, og að ristan haldi síðan áfram
efst á vinstri síðu, skáhallt niður búkinn og endi neðarlega á kviðnum. Ekki
er þó útilokað að rúnabandið hafi haldið áfram óslitið yfir á vinstri hlið.
Byrjun textans er sýnd með tveimur punktum (:) sem sjást í góðri
lýsingu, fyrstu fimm eða sex rúnirnar eru þó svo máðar að þær eru vart
sýnilegar, þó er hægt að finna leifar af þeim með fingrunum og fylgja
ristunni þannig áfram.
Engin orðaskilatákn eru í textanum og ekkert bil milli orða og því er
stundum erfitt að vita hvar eitt orð endar og annað byrjar. Síðustu 18-20