Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2015, Page 111

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2015, Page 111
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS110 Siglufjörð. Nafnið Finnuhólar kann því að hafa vísað upphaf lega til fjallsins og sérkennandi lögunar þess. Nú sýnist ekki ósenni legt að drangs heitin tvö í Akrafjalli, Goðfinna og Guðfinna, hafi í öndverðu haft grunn merkinguna ‘(kletta) strýta/drangur goðanna (eða goðsins)’. Í stað þess að bera ótengt kvennafn sem kunngerir með engu móti að örnefnin eigi við steinstrýtur eða dranga virðist viðliðurinn vera náttúrutáknandi í ofangreindri merkingu og hafa þann tilgang að lýsa lögun í landslagi. Þessi skilningur má teljast álitlegur í ljósi staðhátta í báðum tilvikum og er síður en svo undarlegt að klettastrýtur eða steindrangar tengist fornum átrúnaði eða síðari tíma hjátrú líkt og fjölmörg fjöll, fell, hólar, björg, drangar og steinar gera víða hér á landi sem og á öðrum Norðurlöndum. Sannfærandi eða sennileg dæmi um sömu merkingu í öðrum Guðfinnu-örnefnum eru þó tæpast næg til að drangs- eða strýtuheitið Goðfinna/Guðfinna geti talist hefðbundið nafn á borð við Goðaborg(ir) eða Landdísa(r)steinn (eða -steinar) í þeim örnefnaforða sem heiðnir menn virðast hafa gripið til í nafngiftum hérlendis.30 Svonefndar Goðaborgir og Landdísa(r) steinar koma aðeins fyrir á afmörkuðum landsvæðum (hér um bil tuttugu Goðaborgir eru á Austurlandi og um tuttugu Landdísa(r)steinar á Vestfjörðum) og mun það ekki eiga við um Guðfinnu-örnefni feli nafnliðurinn finna í sér náttúrutáknandi merkingu í nöfnunum Guðfinnuhóll, Guðfinnusteinn, Guðfinnufoss, Guðfinnugjá eða Guðfinnubotnar, en Guðfinnubotnar minna á nafnið Goðabotnar sem finnst á nokkrum stöðum á Austurlandi þar sem það vísar til goðtengdra staða ofan botnanna (Goðaborga). Fjölmargar sagnir frá síðari tímum greina frá heiðnum fornmönnum sem lögðu mikla helgi á hina eða þessa Goðaborg á Austurlandi enda er óhægt að skilja þessi örnefni öðru vísi en svo að þar sé um heiðin átrúnaðarnöfn að ræða.31 Engar sagnir af þessum toga eru kunnar um Goðfinnu og Guðfinnu í Akrafjalli eða önnur Guðfinnu-örnefni að því er séð verður. Hafi hin náttúrutáknandi merking nafnliðarins finna horfið úr málinu á fyrri öldum er ekki skrýtið að engar sagnir hafi varðveist eða myndast á síðari tímum um heiðinn átrúnað í sambandi við þessa staði. Hefur þá engin önnur merking komið til greina en kvennafnið og er því skiljanlegt að við örnefnið Guðfinna hafi stundum bæst lýsandi viðliður eins og -þúfa (sbr. Guðfinnuþúfa) eða -steinn (sbr. Guðfinnusteinn), en óþarft er að fjölyrða hér um þá tilhneigingu manna að lesa persónunöfn út úr örnefnum. 30 Um Goðaborgir sjá Sigfús Sigfússon 1932, bls. 83-89 og Stefán Einarsson 1997, bls. 19-26. Um Landdísa(r)steina sjá Turville-Petre 1963, bls. 196-201. 31 Um þess konar sagnir tengdar Goðaborgum sjá Sigfús Sigfússon 1932 og Stefán Einarsson 1997.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.