Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 2

Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 2
Avarp Björns Jónssonar\ forseta ASI Sextíu ára barátta Hinn 12. mars 1916 komu saman í Bárubúð í Reykjavík fulltrúar nokkurra verkalýðsfélaga og ákváðu stofnun Al- þýðusambands íslands og hinn 19. nóv. sama ár var fyrsta sambandsþing þess háð á sama stað. Þetta ár er því afmælis- ár heildarsamtaka íslenskrar verkalýðshreyfingar og á slíkum tímamótum er mjög við hæfi að gera hvort tveggja í senn, að renna huganum til baka og spyrja hvem árangur hið sextuga starf hafi borið, og þá einnig þess hvernig á þeim árangri megi byggja framhald þeirrar baráttu, svo að verða megi til aukinna áhrifa og valds alþýðuhreyfingarinnar, sem nýtt verði verkalýðsstéttum til hagsældar og heilla. Þessum spumingum verður ekki svarað með neinum full- nægjandi hætti í örfáum inngangsorðum þessa afmælisblaðs, en svo mikið er víst, að fundimir í Bámbúð fyrir sextíu ár- um mörkuðu tímamót I sögu þjóðarinnar og leiðin, sem þar var mörkuð, hefur valdið aldahvörfum fyrir verkafólk á Is- landi og þjóðina alla. Þeir sem saman komu í Báruhúsinu, höfðu ekki neinn stór- an liðsafla sér að baki og stofnendur ASÍ vom aðeins um 650 talsins. En þeir sem þar stóðu að verki, menn eins og Ottó N. Þorláksson, Jón Baldvinsson og Jónas frá Hriflu, áttu sér sterka hugsjón, tendraða af eldi jafnaðarstefnunnar, sem um þessar mundir lýsti þjáðum verkalýð braut barátt- unnar. Og þeir völdu einnig hið rétta augnablik til aðgerða sinna, tímamót, þegar þjóðfélagið var að breytast úr svo til hreinu bændasamfélagi í stéttaþjóðfélag, þar sem átök vax- andi verkalýðsstéttar og stórauðvalds í kjölfar togaraútgerðar og vélvæðingar hlutu að marka þjóðfélagsgerðina. Og enn kom hér til, að tveggja ára heimsstyrjöld hafði geisað, en hún hafði m.a. í för með sér óhemjulega dýrtíð, samfara því að kaupgjaidi var haldið niðri með harðri hendi útgerðarauð- valdsins. Líf verkalýðsstéttarinnar var martröð örbirgðar, húsakynni hennar hreysi, klæðin tötrar og mataræði í sam- ræmi við það. Og hvemig hefur svo miðað í þá átt, sem fmmherjar bentu til? Vissulega hefur sú urðin ekki verið greið til áfangans þar sem við nú stöndum. I baráttunni hafa skipst á skin og skúrir, sigrar og á stundum undanhald, en áfram hefur verið brotist og um flest er ólíku saman að jafna það hlutskipti, sem vinnandi fólk bjó við fyrir 60 árum og nú. Þann mun sjá allir heilskyggnir og dylst ekki að margt og mikið hefur á unnist, þótt því fari fjarri að brautin sé brotin til enda. Við búum enn í stéttaþjóðfélagi, þar sem þrífst margvíslegt misrétti, auðsöfnun fárra og fátækt og umkomuleysi margra. Lögmál stéttabaráttunnar em því í fuMu gildi eftir 60 ára stríð og henni mun ekki linna fyrr en alþýða manna og sam- tök hennar, hinn stóri meirihluti þjóðarinnar, skilur jafnvel og fmmherjarnir að vandamál verkalýðsstéttarinnar og verka- lýðshreyfingarinnar verða ekki leyst nema fyrir baráttu þess- ara afla, sem geta þegar þau vilja og hætta að láta villa sér sýn, orðið það vald, sem mótar þjóðfélagið og það líf, sem í því er lifað. Liðsaflinn, sem stóð að baki þeim fulltrúum örfárra verka- lýðsfélaga, sem stofnuðu Alþýðusamband Islands í mars 1916, var eins og áður segir um 650 manns. I dag skipa Alþýðusam- bandið um 47 þúsund manns. Þannig er ASl orðið mesta fjöldahreyfing í landinu og við hlið þess starfa nokkur fá- mennari sambönd Iaunamanna, en stærst þeirra er BSRB með um 12000 félagsmenn, en launþegasamtökin öll hafa innan sinna vébanda yfir 60 þúsundir félagsmanna. Hin fámenna sveit frá 1916 er orðin að skipulögðum en lýðræðislega upp- byggðum her, sem ekkert fær staðist, ef hann sækir fram jafnt á faglega sviðinu, sem hinu stjórnmálalega. Faglega er hreyfingin sterk en stendur enn höllum fæti er að því kemur að verja faglega sigra sína með stjórnmálalegum aðgerðum og valdi. Það að ná þeim áhrifum og valdi, hlýtur að vera stærsta mál hennar á komandi árum. Þetta hefur sjaldan verið ljósara en á allra síðustu árum og einnig nú á afmælisárinu. Þrátt fyrir miklar kauphækkanir í krónum og aurum taldar, hafa lífskjör alls almennings farið hríðversnandi og ofan á svarta kjaraskerðinguna hafa stjórn- völd uppi ráðagerðir um að bæta skerðingu á helgasta rétti hreyfingarinnar — verkfallsréttinum — og þrengja þannig að á vígstöðvum frjálsra samninga á vinnumarkaðinum. Það á víst að verða afmælisgjöf landsfeðranna til verkalýðsfélag- anna á merkisári heildarsamtaka þeirra. „Vituð þér enn eða hvað?“ En alþýðan á Islandi getur líka gefið sjálfri sér og sam- tökum sínum afmælisgjafir, sem verða henni því heilladrýgri sem tímar líða. Hún getur a.m.k. lagt drög að því að efla enn faglega einingu sína og styrkja hinar stjórnmálalegu greinar sínar. Fyrsta skrefið tU þeirrar áttar er það að draga ísland á sem skemmstum tíma upp úr því láglaunafeni, sem það er nú sokkið í, þrátt fyrir einar hæstu þjóðartekjur á mann, sem þekkjast í heiminum. Baráttan fyrir því getur ekki að- eins verið reiptog um krónur, sem áður en varir eru orðnar að einseyringum í heimatilbúinni óðaverðbólgu. Sú barátta verður að samtvinnast stríðinu fyrir réttindum verkalýðsstétt- arinnar á öUum sviðum, og umfram allt eUífri baráttu verka- lýðsstéttarinnar fyrir réttlátu og betra þjóðfélagi — þjóðfélagi frelsis, jafnréttis og bræðralags. Undir þeim kjörorðum hófu frumherjarnir merkið og þau kjörorð munu marka braut verkalýðsstéttarinnar á kom- andi tímum. 2 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.