Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 11

Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 11
sér og efndu til mótmæla. Framsókn- armennimir Tryggvi Þórhallsson og Ágeir Ásgeirsson fluttu á þessu sama þingi frumvarp um embætti' sátta- semjara og náði það fram að ganga. Frumvarpið um „varalögreglu“ dag- aði hins vegar uppi á þingi, fyrst og fremst vegna mikillar andstöðu er það mætti. En íslensk borgarastétt var ekki af baki dottin. Eftir hin hörðu stétta- átök kreppuppársins 1932 var gerð önnur tilraun til að koma á ríkislög- reglu og náði það frumvarp fram að ganga. Þetta var á Alþingi 1933 er Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn töldu nauðsynlegt að styrkja lögregl- una eftir ryskingar ársins á undan. Alþýðuflokkurinn mótmælti þessari á- kvörðun kröftuglega. Þegar Alþýðu- flokkurinn gekk til kosninga árið 1934 birti hann róttæka 4 ára áætl- un er var hugsuð sem starfsskrá flokksins 1935—39. Þar segir m.a.„Að afneina ríkislögregluna í vísu trausti þess, að unnt sé að stjóma þessari frið- sömu þjóð með þeirri mannúð og réttlæti, að úr engum deilum þurfi að skera með hemaði og ofbeldi.“13) Þegar Alþýðuflokkurinn myndaði „stjórn hinna vinnandi stétta“ með Framsóknarflokknum var gengið að því skilyrði Alþýðuflokksins að lögjn um ríkislögreglu yrðu afnumin. Þann- ig fór önnur tilraunin til stofnunar ríkislögreglu út um þúfur vegna ein- arðrar andstöðu verkalýðshreyfingar- innar. Það er þó hægt að finna þess dæmi á fjórða áratugnum að að lög- regluyfirvöld boðuðu út „varalið“, sem verkamenn kölluðu hvítliða. Var sliku liði m.a. beitt í Nóvu-deilunni á Akureyri, en eftir slík atvik neituðu verkamenn að vinna með þcim er starfað höfðu í slíkum hvítliðasveit- um. öðru hvoru má rekast á fullyrðing- ar í málgögnum verkalýðshreyfingar- innar alílt fram yfir síðari heimsstyrj- öldina, þess efnis að lögregluyfirvöld hafi viðbúnað vegna yfirvofandi verk- falla. Þannig er t.d. fullyrt í kosninga- baráttunni 1937, að lögreglan hafi staðið í vopnakaupum og haft áætlan- ir um handtökur eftir átökin 9. nóv. 1932, en ekkert orðið úr þeim. Síðar er getið um skipun skipherra á varð- skipi til að fara með lögreglumál í Hafnarfirði er þar stóð yfir Hlífardeil- an 1939. Ekki varð þó úr valdbeitingu þar. Þá hafði breska setuliðið afskipti af vinnudeilu er varð, þegar Dagsbrún auglýsti nýjan launataxta í janúar 1941 og áttu afskipti hersins sinn þátt í ósigri Dagsbrúnarmanna. Það að hindra tókst myndun ríkis- lögreglu og afskipti slíkra aðila af vinnudeilum hefur haft mikið að segja fyrir íslenska verkalýðshreyfingu. S.am- taka mótmæli verkalýðshreyfingarinn- ar bægðu þeirri vá frá dyrum íslensks verkalýðs. Segja má, að frá því í sex vikna verkfallinu 1955 hafi tiltölulega lítið borið á tilraunum til að brjóta verkföll á bak aftur með verkfalls- brjótum. Kröfur um takmörkun vinnudagsins Fyrir réttum 100 árum skrifaði verkamaður á Norðurlandi í blaðið Norðurfara á Akureyri um vinnulaun verkamanna. Þar setur hann fram kröfur um sanngjörn daglaun, þ.e. 2 kr. fyrir 12 stunda dagvinnu, en bend- ir jafnframt á „hver vegur yrði bein- astur til að fá þessu hrundið í lag, en hann álítum vér, að einungis sé ein- dreginn félagsskapur“.1'1) Verkamað- urinn gerir sér grein fyrir að það er aðeins hægt að knýja þessi mannrétt- indi fram með samtakamætti og því verði að mynda félagsskap. Þetta er elsta íslenska heimildin, sem ég hef rekist á þar sem krafist er afmörkun- ar á dagvinnu. Þá voru tæp 30 ár lið- in síðan breska þingið samþykkti lög um 10 stunda dagvinnu barna og kvenna. Fyrstu almennu verkalýðsfélögin á Islandi, sem stofnuð voru á Seyðis- firði og Akureyri vorið 1897 settu fram kröfur um 10 stunda vinnudag. Við stofnun Dagsbrúnar fyrir 70 ár- um voru ákvæði í aukalögum félags- ins að binda almennan vinnudag frá kl. 6 árdegis til kl. 6 síðdegis. Þegar danskur verktaki við hafnargerðina í Reykjavík reynir að lengja vinuudag- inn bregðast verkamenn harðlega við og hið fræga verkfall verður árið 1913. Það leynir sér ekki að í þessum átökum magnar þjóðernistilfinningin baráttuþrek verkamanna. Tveim mán- uðum eftir að verkfallið hófst neyddist danski verktakinn Kirk að nafni að láta undan og gera skriflegan samning, þann fyrsta í sögu Dagsbrúnar, um kaup og kjör í samræmi við aukalög félagsins.15) bera þess einmitt beztan og greinilegastan vott, að það er ekki eingöngu mögu- legt að ná völdum í þjóð- félaginu með þingstarfsemi, held- ur einnig ber það þess vott, að það sé æskilegasta leiðin fyrir alla alþýðu. Alþýðuflokkurinn íslenzki byggir einnig starfsemi sína á þessum grundvelli“. Jón Baldvinsson (Alþýðublaðið 23. apríl 1926). „Ekki nógur fatnaður“. „Einn af forstöðumönnum „Samverjans" var spurður að því, hvort það væru sömu börn- in sem kæmu dag eftir dag til þess að fá ókeypis máltíð í góðgerðastofnun þessari (starf- rækt vetrarmánuðina á öðrum tug aldarinnar á versta atvinnu- leysistímanum): Svarið var: „Nei, það er oft svoleiðis, að helmingur af böm- unum frá einni fjölskyldu kem- ur í dag, hinn hdmingurinn á morgun, og orsökin er sú, að það er ekki nógur fatnaður til þess, að þau geti komið öll í einu“. (Eimreiðin 1926, bls. 195). „Að ástandið er lítið betra í kaupstöðunum út um land, má sjá af ýmsu, er birzt hefur í blöðum, sem þar em gefin út, og, t.d. á sögu þeirri, er hér fer á eftir: „Einn af starfsmönnum rík- isins á Akureyri tók eftir því einn vetrarmánuð, er hin miklu þurrafrost gengu (sem eru svo algeng á Norðurlandi), að aldrei voru nema tvö af fjórum börnum fátæks verkamanns, er þar bjó nærri, úti í einu. Honum þótti þetta kynlegt og fór að grensl- ast eftir orsökinni, en hún var þá þetta: Það vom aðeins til tvær húfur handa fjómm börn- um, en kuldinn of mikill til þess að þau væm úti berhöfð- uð“ “. (Ólafur Friðriksson ncfnir þetta dæmi í grein um jafnaðarstefnuna í Eimreiðinni 1926, bls. 193-209). VINNAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.