Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 24

Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 24
Verkalýðsbaráttan og bókmenntirnar. MFA, Rvík 1970. Bemska reykvískr- ar verkalýðshreyfingar frá 1887-1916, Reykjavík í 1100 ár útg. Sögufélagið og Reykjavíkurborg, Rvík 1974, bls. 204-225. Ágrip af sögu Félags jám- iðnaðarmanna afmælisrit 1970. Þættir úr baráttusögu Sóknar, afmælisrit ár- ið 1975. Svipmyndir úr 60 ára baráttu ASÍ, Þjóðviljinn 12. mars 1976. Stjórn- málaágreiningur innan verkalýðshreyf- ingarinnar í Reykjavík 1916-30,fjölrit á vegum Norræna sumarháskólans 1975. íslensk verkalýðshreyfing 1930-40, at- hugasemdir um skipulag og stjórnmála- ágreining, fjölrit á vegum Norræna sumarháskólans 1976. Pétur G. Guðmundsson: Tíu ára starfssaga Sjómannafélags Reykjavíkur, Rvík 1925. Skúli Þórðarson: Félög verkamanna og at- vinnurekenda, grein í Félagsmál á ís- landi, Rvík 1942 bls. 223-247. Sjó- mannafélag Reykjavíkur 50 ára, Rvík 1965. Alþýðusambandið fimmtugt, Vinnan, afmælishefti 1966, bls. 16-31. Stefán Jóh. Stefánsson: Endurminningar I-n, Rvík 1973. Svanur Kristjánsson: Islensk verkalýðs- hreyfing 1920-30, fjölrit á vegum Nor- ræna sumarháskólans 1975. íslenskt þjóðfélag 1930-40, nokkrar athuga- semdir, fjölrit á vegum Norræna sum- arháskólans 1976. Sverrir Kristjánsson: Félagsmál á Islandi, Rvík 1942 (ásamt Jóni Blöndal). Al- þingi og félagsmálin, Rvík 1954 (í samvinnu við Jón Blöndal). Dagsbrún 60 ára, Réttur 1966. Fjöldi greina í Vinnunni um sögu íslenskrar og evr- ópskrar verkalýöshreyfingar. Auk ofangreindra heimilda og rita má benda á fróðleik um sögu íslenskrar verka- lýðshreyfingar í eftirtöldum ritum og blöð- um (og er listinn þó engan veginn tæm- andi): Nýja ísland 1904-1905, Alþýðublað- iö 1906, Verkamannablaðið 1913, Dags- brún 1915-18, Réttur 1916-76, Alþýðublað- ið 1919-1976, Rauði fáninn, Verkamaður- inn á Akureyri frá 1921, Alþýðumaðurinn á Akureyri frá 1930, Verkalýðsblaðið 1929 - 36, Þjóðviljinn 1936-76, Vinnan 1943-76, Vinnan og verkalýðurinn. Einnig má benda á endurminningar alþýðufólks, afmælisrit einstakra félaga, afmælisgreinar í blöðum tengdar stórafmælum, bæklinga, flokkstíð- indi og þingtíðindi alls konar, en þó sér- staklega Þingtíðindi ASÍ 1926-72. Þá er einnig að finna í Andvara tímariti Þjóð- vinafélagsins merkar greinar um látna stjómmálaleiötoga, einnig úr röðum verka- lýðshreyfingarinnar. Ýmis bókmenntaverk tímabilsins frá 1924 til þessa dags fjalla einnig um stöðu verkalýðsstéttarinnar og gefa glögga mynd af baráttu verkalýðsstétt- arinnar. AUÐVALD Auðvald er það vald, sem ræður yfir auði og stjórnar með auði. Það skiptir engu máli, hvort það á auð- inn að lögum eða hefir hann að láni. Er til slíkt vald hér á landi? Já. Vér vitum að megin-peningaráð landsins eru í höndum útgerðarmanna og nokk- urra stórkaupmanna. Vér vitum einn- ig, að þeir nota þessi umráð sín sem vald. Og enn fremur vitum vér, að þeir beita þessu valdi til þess að vernda hagsmuni sjálfra sín. Þeir verja stórfé í að gefa út blöð og bæk- linga, sem eiga að skapa pólitískar skoðanir í landinu. Þeir eyða miklum peningum í kosningar og kosningaund- irróður. Þeir eiga meiri hluta þingsins, og með tilstilli þess hafa þeir mikil áhrif á löggjöfina og menntamálin, og framkvæmdavaldið er í þeirra hönd- um. Þeir stjórna landi og atvinnuveg- um eftir meginreglum, sem eru undir- staða auðvaldsskipulags um allan heim. Og valdið, sem þeir vinna öll þessi afrek með, er peningar. Þetta er það, sem vér jafnaðarmenn meinum með auðvaldL Þórbergur Þórðarson: úr „Bréfi til Láru“. SJÁLFIR MENN Blindi glæpamaðurinn sagði: Haldið frið góðir bræður meðan við bíðum eftir kóngsins súpu. Við erum múgurinn, lægsta skepna jarð- arinnar. Biðjum hverjum valdsmanni heilla, sem kemur að hjálpa þeim 6varlausu. En réttlæti verður ekki fyren við erum sjálfir menn. Aldir munu líða. Sú réttarbót sem var gefin okkur af síðasta kóngi mun verða tekin frá okkur af þeim næsta. En einn dagur mun koma. Og þann dag sem við erum orðnir menn mun guð koma til vor og gerast vor liðsmaður. Halldór Laxness: úr „Hinu ljósa mani“. BYLTING Áður lifðu menn af jörðunni eða sjónum. Lifibrauð þeirra lá undir fót- um þeirra á jörðinni eða fyrir neti þeirra og öngli í sjónum. Þá voru góð- ir tímar og engir höfðingjar. Seinna tóku menn að lifa af öðru en jörð- unni og sjónum, sköpuðu lifibrauð úr hlutum gjörðum af höndum og hug- um manna. Þá komu höfðingjar og tímarnir urðu vondir. Og því ríkari sem höfðingjarnir urðu og voldugri urðu tímarnir verri. Og það eru hinir síðustu og verstu tímar, með kreppu sem kemur úr vestri og byltingarbliki úr austri, rauðu, blóðugu bliki, sem kastar bjarma yfir alla veröld. Bylting hinna snauðu og kúguðu í fjarlægum stað, varpar rauðu bliki sínu á hreysi hinna snauðu og hallir hinna ríku og voldugu, rautt af blóði hinna kúguðu og kúgaranna sjálfra, sem sópast eins og fis af jörðunni fyrir stormi hefnd- arinnar og réttlætisins. Um alla ver- öld er horft í austur. Og hinir snauðu sjá glóandi fyrirheit í blikinu: Sjá, þetta er það sem koma skal. Og hinir ríku og voldugu líta einnig upp og skelfast og taka að hugsa ráð sitt af alvöru. Því einnig hér gæti það gerst Þegar hinir snauðu og fáorðu hætta að trúa því, að guð hafi skapað hinn ríka ríkan og hinn fátæka fátækan, þá getur það allsstaðar gerst. Jakobína Sigurðardóttir: úr „Lifandi vatninu". ERFA RÍKIÐ „En kynslóð sem vinnur á daginn og ver öllum kvöldum sínum og htl- um frístundum til þess að mennta sig og sínum litlu fátæklingsaurum til menningar sér og félagsnauðsynju, og ennfremur elur böm sín upp í því að vera sjálfum sér og félaginu trú og réttlát við alla. — Slíka menn ótt- ast æðri stéttir og stjómvöld ríkjanna. Því að þéir vinna í lið með sér alla 24 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.