Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 49

Vinnan - 01.12.1976, Blaðsíða 49
Skipulagsmynd Alþýðusambands íslands r Landssambönd Félög í Landssamb. Svæðasambönd Svæðaskrifst. Félög með beina aðild Orlofsheimili Þing Alþýðusambands islands Sambandsstjórn Miðstjórn Skipulagsmálanefnd Skrifstofa A.S.Í. Iðnsveinaráð Félagsmál Hagræði Almenn Bókhald Hagfræði deild skrifstofa Endursk. deild M F A Félagsmálaskóli Sögusafn verkalýðshreyfingar — Vinnan Listasafn Bréfaskóli Alþýðuorlof Ferðaskrifst. Landsýn Alþýðubanki Vinnan: Nú hefur oft komið fram á und- anförnum árum, að samningar séu að verða þess eðlis að sérfræðinga þurfi til að fjalla um þá. Hinn almenni launamaður geti ekki áttað sig á öllu því pappírsflóði, sem fram er lagt í samningum og þeir þurfi því að færast á hendur fagmönnum sem hafi t.d. hagfræðiþekkingu. Ásmundur: Ég held að þetta sé ekki rétt. Það má að vísu alltaf flækja mál, og þarf ekki sérfræðinga til, en heildarlínur í samningamálum er hægt að leggja fram það ljóst að hver einasti maður geti gert sér grein fyrir því hvað hann er að greiða atkvæði um. Þetta er einmitt hægt að gera ennþá betur með því að láta hliðholla sér- fræðinga setja málin fram. Ólafur: Ég held einnig að þetta sé mjög orðum aukið. Þetta sjónarmið kom einna fyrst fram í sambandi við samningana 1969, þegar heilmikil viðbót var gerð um lífeyrissjóðina. Sá viðauki var saminn af tryggingafræðingum á mjög torskildu máli og um leið um torskilið efni. En það sem ég tel að geri samningagerð fyrst og fremst flókna hjá okkur er hversu samningarnir eru víðtækir og hversu margir aðilar eiga hlut að máli. Alþýðusambandið gerir rammasamning, síðan hvert starfsgreina- samband eins konar rammasamning fyrir stéttina og síðan prjóna félögin við þá. Þannig getur komið til allmikið misræmi í ýmsum ákvæðum, bæði beinum kjara- ákvæðum og fríðindum, sem gerir það að verkum, að menn nefna sömu hlutina ekki alltaf sömu nöfnum. Að öðru leyti held ég að samningar séu ekki verulega torskildir. Ásmundur: Ef þessum rökum er beitt gegn því að sérfræðingar séu notaðir við samningagerð, þá eru þau röng. Hlutverk sérfræðings í þessu tilliti er yfirleitt að reyna að einfalda hlutina. Vinnan: Nú skín það út úr þessum orð- ræðum, að þið teljið í raun og veru, að efla þurfi Alþýðusambandið sem stofnun Hinsvegar heyrist oft rætt um alræðisskrif- stofuvald í verkalýðshreyfingunni. Yfirleitt er ASÍ-forystan nefnd í þessu sambandi. Snorri: Það þarf að stórefla Alþýðusam- bandið sem stofnun. Því má hins vegar ekki rugla saman við það hvar samninga- rétturinn er. Hann er hjá félögunum sjálf- um. Það gerir það að verkum, að hér ríkja að ýmsu leyti miklu lýðræðislegri vinnu- brögð en þekkjast annars staðar. Þessar kenningar um ofurvald Alþýðusambandsins held ég séu innfluttar frá öðrum löndum, þar sem miðstýring valdsins er miklu meiri eri hér. Miðstjórn Alþýðusambandsins get- ur ekkert gert í samningamálum, eins og áður hefur verið sagt, án þess að fá um- boð frá hverju einasta félagi sem á aðild að viðkomandi samningi. Þetta kostar mikla lýðræðislega vinnu. Ef við lítum á þann mikla fjölda sem kemur að ákvörð- unartökunni hér, þá er hann hlutfallslega langt fyrir ofan það sem við þekkjum í nágrannalöndunum, sem eru þó talin starfa lýðræðislega. Ólafur: Ég held að gagnrýnin sé tvenns konar. Annars vegar að Alþýðusambandið sé ofvaxið skrifstofubákn og drottni yfir allri verkalýðshreyfingunni. Allir verði að bugta sig og beygja fyrir fyrirskipunum forystunnar. Hins vegar kemur fram að Alþýðusambandið skorti frumkvæði í fjölda mála. Sannleikurinn er einhvers staðar þarna mitt á milli. Það er frek- ar skortur á skriffinnsku og ég skal út- skýra það betur. Formlega séð er ákvörð- unarvaldið í hreyfingunni mjög dreift og yfirleitt ekkert hægt að gera án þess að minnsta kosti miðstjórn, sambandsstjórn og í sumum tilfellum fjölmennar ráðstefn- ur og nefndir hafi lagt blessun sína yfir endanlegar ákvarðanir. Þeagr ég er að tala um að efla Alþýðu- sambandið sem stofnun þá á ég ekki fyrst og fremst við að efla miðstjórnarvald þess, heldur að það fái nægan mannafla til að undirbúa mikilsverð mál þannig, að hinar lýðræðislegu stofnanir innan sambandsins eigi auðveldara með að taka afstöðu til þeirra og móta stefnu sína. Yfirleitt er hægt að gera hluti á fleiri en einn hátt. Mál þarf að undirbúa þannig að mönnum sé ljóst um hvað er að velja og hinir kjörnu trúnaðarmenn komi vel upplýstir ti! ákvörðunartöku. VINNAN 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.