Vinnan


Vinnan - 01.12.1976, Síða 6

Vinnan - 01.12.1976, Síða 6
nema með skipulegum fjöldaaðgerð- um. Segja má að verðbólgusvipan lemji menn inn í samtökin sem síðan reyndu að halda í við verðlagið. Um þetta leyti hafði hér á Faxaflóasvæð- inu myndast borgarastétt, sem nokkuð skyndilega hafði komist í efni og skák- aði á vissan hátt valdastöðu gamla embættisaðalsins. Þjóðfélagsþróunin var komin á það stig að tími harðn- andi stéttabaráttu var kominn, stétta- vitund að vakna hjá verkalýðnum sem tiltölulega nýlega var kominn á möl- ina úr sveitum hins gamalgróna íslenska bænda- og fiskimannasamfé- lags. Það er á þessurn umbrotatímum sem Verkamannafélagið Dagsbrún tekur ákvörðun um að snúa sér til annarra starfandi verkalýðsfélaga í nágrenn- inu og óskar eftir tilnefningu í und- irbúningsnefnd að stofnun sambands verkalýðsfélaganna. Þetta var 28. okt. 1915. Menn hafa væntanlega gert sér grein fyrir að samstöðu þyrfti milli fé- laganna, ef takast ætti í ört vaxandi dýrtíð að hindra að kaupgjaldi og fiskverði yrði endalaust haldið niðri. Alla vega eru undirtektirnar alls stað- ar góðar og fimm mánuðum síðar eða 12. mars er stofnfundur ASÍ haldinn að viðstöddum um 20 fulltrúum frá sjö félögum. Að þessu sinni voru að- stæður allt aðrar en 1907 er fyrir- rennari ASl — Verkamannasamband Islands — var stofnað. Nú voru and- stæðurnar í íslensku samfélagi og stéttavitund verkalýðsins meiri en þá og verkamenn í Reykjavík hófðu þá þegar unnið eftirminnilegan sigur í bæjarstjórnarkosningum. Menn vissu hvers þeir voru megnugir og héldu ó- trauðir út í baráttuna. Ljóst var að öll stéttabarátta var jafnframt pólitísk barátta. Verkalýðssamband var jafn- framt gert að stjórnmálaflokki alþýðu — Alþýðuflokknum. Fjögur baráttumál I dag finnst flestum sjálfsagt að þeir sem selja vinnuafl sitt myndi félag og semji síðan við atvinnurekendur um kaup og kjör. En svo hefur ekki alltaf verið. Að vísu þurftu íslenskir verka- menn ekki að glíma við það, að vera sviptir félagafrelsi og starfa leynilega eins og stéttabræður þeirra víða er- lendis þurftu og þurfa enn. Hér tryggði stjómarskráin frá 1874 þessi mann- réttindi og stjórnarskrárbreyting 1915 og 1920 gerði velflestum kleyft að njóta þeirra mannréttinda er felast í kosningarétti. En hvað sem lagabók- stafir segja, þá þurftu stéttarfélögin að glíma fyrst við það að öðlast við- urkenningar á því, að þau hefðu samn- ingsrétt fyrir félagsmenn sína og þeir hefðu forgang að vinnu á viðkomandi félagssvæði. Einnig var nauðsynlegt að ná þessum áfanga til að fá alla starfandi verkamenn til að ganga í við- komandi stéttarfélag. Félögin þurftu að helga sér verksvið. Það var ærið misjafnt, hve stórhuga þau vom í þeim efnum. Þannig ályktar t.d. Hásetafé- lag Reykjavíkur á stofnárinu 1915 að „það heyri undir verksvið sitt, að kjósa alþýðumenn í bæjarstjóm og til þingsetu, en ekki höfðingja, svokall- aða, eins og verið hefur.“7) Dagsbrún hafði þá þegar tekið þátt í kosning- um í Reykjavík og boðið fram lista verkamanna. En eftir stofnun ASl varð fyrsta eldskím hreyfingarinnar „Hásetaverkfallið“ vorið 1916. Þar er deilt um lifrarhlutinn og hvort útgerð- armenn eigi að hirða allan stríðsgróð- ann af þeirri vöm. En ef nánar er að gáð, þá er Hásetafélagið fyrst og fremst áð berjast fyrir því að fá viður- kenningu á samningsrétti. Útgerðar- menn vom ekki reiðubúnir til að fall- ast á það og er verkfallið dróst á langinn, auglýstu þeir í málgögnum sínum, hvaða laun hásetar ættu að hafa, fremur en setjast að samninga- borði við þá. Áður höfðu prentarar orðið að setja á stofn eigið prentverk til að knýja prentsmiðjueigendur til að viðurkenna HlP sem samningsað- ila. Ef litið er á baráttumál faghreyfing- arinnar á árunum fram til 1930, þá má flokka þau í fjóra þætti: 1. að afla viðurkenningar atvinnurek- enda og ríkisins á samningsrétti verkalýðsfélaganna. 2. að kaup verkamanna sé greitt sam- kvæmt taxta verkalýðsfélaganna. 3. að félagar verkalýðsfélaganna gangi fyrir um vinnu á félagssvæðinu. 4. að allir verkamenn séu í verkalýðs- félögum. 8) Segja má að það takist að mestu að ná fyrsta baráttumálinu fram á þriðja áratugnum, þó í raun fáist ekki laga- leg viðurkenning á því fyrr en með vinnulöggjöfinni 1938. Á árunum 1920 til ’30 voru t.d. Hnífsdalsverkfallið 1924 og Baldursverkfallið á Isafirði 1926 nær einvörðungu um samnings- rétt. Á einstaka stöðum utan þéttbýl- Orð brautryðjandans! „Smáfuglamir í stéttarþjóðfé- lagi geta aldrei treyst handleiðslu jarðneskra eða himneskra mátt- arvalda og þeir verða að berjast fyrir rétti sínum í þeim aðstæð- um. Það gera þeir með samtaka- mætti sínum og þeir edga að uppskera framtíðarskipulag í samræmi við hag þeirra. Þar duga engin vettlingatök og baráttan hefur ætíð verið hörð, ef þeir eiga að uppskera mannsæmandi lífskjör. Þegar þeir slaka á klónni í þessari bar- áttu þá fer strax að síga á ó- gæfuhliðina fyrir þeim og órétt- lætið heldur innreið sína. Mér hefur alltaf fundist ég þurfa að skipa mér yst til vinstri í hinni pólitísku baráttu, — þar hef ég öðlast samræmið í hlutunum. Það er mikil gæfa að geta gefið sig óskiptan í baráttu fyrir göf- ugum málstað, — persónuleiki manns hjaðnar niður, ef ósam- ræmið býr inni fyrir og þar duga lítið vegtyllur sem sárabætur. Sá maður deyr ætíð óhamingjusam- ur að leiðarlokum“. Ottó N. Þorláksson á 50 ára afmæli ASÍ. (Viðtal Þjóðviljinn 12. mars 1966). 6 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.