Vinnan - 01.12.1976, Page 37
Netahnýting á verkstæði Sigurjóns Péturssonar.
Jakob Möller: „Það er mikið
skvaldrað um, hvað þetta sé stórfellt
mannúðarmál, það sé svo mikill
stuðningur að styrktarstarfseminni í
landinu; nú eigi að hjálpa öllum“.
Jakob sagði ennfremur, að fólk hér
á landi sé alls ekki í örþrifavandræð-
um, því að það eigi alltaf heimtingu
á brýnustu þörfum. Þess vegna sé eng-
in knýjandi nauðsyn á þessari löggjöf.
(Alþ.tíð. bls. 1570).
Gísli Guðmundsson: Hann taldi
þetta mál ekkert einkamál sósíalista.
Margar menningarþjóðir hafa komið
á slíkri löggjöf og það þó að sósíalist-
ar hafi ekki verið við völd. Þess vegna
geti Framsóknarflokkurinn talið þetta
almennt umbótamál. (Alþ.tíð. bls.
1574).
Jóhann Þ. Jósefsson: Taldi að sósí-
alistar væru að hóta stjórnarslitum ef
framsóknarmenn ekki styddu frum-
varpið. (Alþ.tíð. bls, 1591).
Frumvarpið að lokum afgreitt sem
lög um alþýðutryggingar og tóku þau
gildi 1936.
Tryggingastoí'nun ríkisins stofnuð
til að framkvæma lög um alþýðutrygg-
ingar.
Samkvæmt alþýðutiyggingalögun-
um voru nú allir kaupstaðabúar 16
ára og eldri skyldaðir til að vera í
sjúkrasamlagi. Þau voru þó aðeins í
kaupstöðum, en sveitarfélög gátu
stofnað sjúkrasamlög, ef meira en
helmingur atkvæðisbærra manna sam-
þykkti það. Réttinda nutu aðeins þeir,
sem höfðu tekjur undir ákveðnu lág-
marki.
Greidd var sjúkrahússvist, læknis-
hjálp, lyf og dagpeningar.
Slysatryggingar voru að mestu ó-
breyttar frá 1925.
Stofnaður skyldi sjóður til greiðslu
á elli- og örorkulífeyri. Greiðslur voru
háðar tekjum.
Félög, sem stofnað höfðu atvinnu-
leysistryggingasjóði áttu rétt á ákveðn-
um greiðslum frá ríki og bæ.
Fyrstu lög um almannatryggingar
árið 1945
I málefnasamningi ríkisstjórnarinn-
ar, en Finnur Jónsson var þá félags-
málaráðherra, var svo ákveðið, að
komið verði á svo fullkomnu almanna-
tryggingakerfi, að það nái til allra
þjóðfélagsþegna, án tillits til stéttar
og efnahags.
Að samningu þessa frumvarps unnu
mikið þeir Jón Blöndal, hagfræðingur,
og Jóhann Sæmundsson, læknir og
ráðherra.
Auk þess sem sjúkratryggingar, elli-
og örorkulífeyrir verða nú öllum heim-
ilar koma nú nýir bótaflokkar al-
mannatrygginga til sögunnar: barna-
lífeyrir til munaðarlausra barna, barna
ekkna, gamalmenna og öryrkja,
fæðingarhjálp,
ekkjubætur og jarðarfararstyrkur og
ekkjulífeyrir, fjölskyldubætur með
fleiri börnum en þremur.
Tryggingastofnunin tekur að sér
greiðslu meðlaga.
Hinar ýmsu reglur um bætur hafa
breyst síðan, en að þessum lögum bú-
um við enn í dag.
Tryggingastofnun ríkisins er með
þessurn lögum fjármögnuð með ið-
gjöldum og ríkisframlagi. Kostnaður
VINNAN 37