Vinnan - 01.12.1976, Qupperneq 39
einstæðir feður geta fengið feðralaun.
Er hér miðað við breytt viðhorf í jafn-
réttismálum kynjanna.
Árið 1974 er lögum um almanna-
tryggingar breytt þannig, að ákveðn-
ir hópar fá nú greiddar tannlækning-
ar.
BARÁTTAN HELDUR ÁFRAM
Vegna baráttu verkalýðshreyfingar-
innar fyrir félagslegu öryggi frá fyrstu
tíð eru almannatryggingar nú stað-
reynd, sem engum kemur til hugar
að snúa frá, ekki einu sinni afturhalds-
sömustu ríkisstjornum. Það hlýtur hins
vegar að vera verkalýðshreyfingunni
meginbaráttumál, að sá réttur sem á-
unnist hefur verði ekki skertur og það
sem enn er ógert, verði að veruleika.
Verkalýðsbaráttan má aldrei verða
einhliða barátta fyrir hærri launum,
heldur fyrst og fremst barátta fyrir því
þjóðfélagi, sem virðir rétt allra þegna
sinna til mannsæmandi lífskjara, hvort
sem þeir eru heilbrigðir eða sjúkir og
aldraðir.
Enn er langt í land þar til öryrkjar
og ellilífeyrisþegar hafa laun á borð
við þá, sem fullfærir eru til vinnu.
Mikið verk er óunnið í atvinnumálum
þeirra, sem ekki valda lengur þeim
störfum, sem þeir áður gegndu. Hús-
næðis- og sjúkrahúsmál hinna öldr-
uðu eru til vansæmdar. Félagsleg að-
stoð við einstæðar mæður er nær eng-
in. Málefni þroskaheftra barna, van-
gefinna og fatlaðra eru með öllu ó-
sæmandi. Þannig mætti lengi telja.
Þessum minnihlutahópum má verka-
lýðshreyfingin ekki gleyma, heldur á
hún að berjast fyrir rétti þeirra til að
vinna þjóðfélaginu það gagn sem þeir
megna og til að njóta þeirrar mennt-
unar, sem geta þeirra leyfir.
Baráttunni fyrir réttlátu þjóðfélagi
er ekki lokið, en hún er vissulega kom-
in nokkuð á veg.
„Aumingja ísland!“
„Háttvirtur framsögumaður
(Haraldur Guðmundsson) sagði
eitthvað á þá leið, að þetta mál
væri eitt af þeim nútímamálum,
sem við íslendingar værum langt
á eftir í. Aumingja Island! . . .
Eitt af þeim málum, sem socí-
alistar nota til agitationa eru
tryggingamálin. Eftir því sem
socialistar eru sterkari í löndun-
um eftir því er meira um alls
konar tryggingar . . . allt . . .
fjötrað og flækt í eintómum
tryggingum. . . . Tekið stórfé frá
atvinnufyrirtækjunum. . . . Ég
mun greiða atkvæði á móti þess-
ari tillögu".
(Ummæli Magnúsar Jónssonar dó-
sents á alþingi í umræðum um þings-
ályktunartillögu Alþýðuflokksins
um alþýðutiyggingar árið 1930).
VINNAN 39