Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Side 40
1883
38
úr henni blóð og sullhús. Hún er holdug og frískleg að sjá. Engin gula eða velgja, en
þolir ekki að borða nema lítið í einu. Tvö systkini hennar hafa sullaveiki, en ekki
hefur borið á haemoptysis í þeim enn.
17. læknishérað. Echinococcus hepatis 18, abdominis 2. Einn sjúklingur dó. —
Eflaust eru mjög margir sullaveikisjúklingar, sem ég hef eigi séð, enda er það eigi
furða, er menn hugsa til alls þess óþrifnaðar og allrar þeirrar ógætni, sem hér á sér
stað með hunda, sem fólk eigi vill trúa, að séu valdir að veikinni.
18. læknishérað. Eins og venjulega hafa lifrarsullir verið algengastir af lang-
vinnum innvortis sjúkdómum. Ég hef stungið á tveimur sjúklingum og skorið til
sulls á einum.
19. læknishérað. Á einum sjúklingi gerði ég punktur af tumor hydatid., sem náði
frá cardia og næstum niður að umbilicus. Cura completa eftir 5 vikur og gatið lokað.
20. læknishérað. Fáeinir munu vera hér sullaveikir, en engir á því stigi, að hand-
lækningum þurfi þar við að beita að svo stöddu.
5. Kláði (scabies).
Talin fram 78 tilfelli í 7 héruðum. Auk þess segir læknir í 1. læknishéraði, að
kláði sé algengur.
6. Geitur (favus).
Tilgreind 7 tilfelli i 2 héruðuin.
7. Krabbamein (cancer, sarcoma).
1. læknishérað. Ein meinsemd í maga, að öllum líkindum cancroid. Cancer
mammae (Tala tilfella ekki tilgreind).
2. læknishérað. Tumor 2 tilfelli, en ekki getið um, hvers kyns var.
12. læknishérað. Cancer labii inf. 1, ca. recti 1.
15. læknishérað. Læknir amputeraði 2 „cancröse tumorer“. Cancer mammae 1,
cardiae 1. Fertugur maður hafði haft morlitaðan blóðuppgang með uppsölu fyrir
ári síðan. Síðan mjög þjáðst af verkjum, sem leiddu frá maganum upp með brjóst-
beininu. Honum finnst einhver þrengsli neðarlega nálægt magaopinu. Þegar hann
nærist, einkum af bitatagi, gengur það upp aftur eftir lítinn tíma. Getur ekki komið
niður nema þunnu og litlu í einu. Áður liefur hann haft verki i bakinu. Nú nær
verkurinn út undir herðablöð. Hann fær oft hiksta, en eftir það finnst honum fæðan
ganga betur niður. Ég sá hann síðar, og var hann þá mjög kakektiskur að sjá, gat
ekki gengið eða staðið uppréttur, þoldi hvorki að liggja eða sitja fyrir kvöl ofan-
vert við r. cardiae, út undir síður, í bakinu og herðablöðum. Einlægt hefur hann
ropa og tilfinning eins og eitthvað þrýsti að brjóstbeininu að innan. Morleitur upp-
gangur, næring engin nema lítils háttar af mjólk, hægðir mjög sjaldan. Mein var
ekki finnanlegt í r. cardiae. Hann dó skömmu seinna.
17. læknishérað. Cancer ventriculi 1. Dó. Carcinoina inammae 1.
20. læknishérað. Epithelioma labii inf. skorið burt.