Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Blaðsíða 76
1886
74
3. Holdsveiki (lepra).
Prófastar í 12 prófastsdæmum töldu holdsveikissjúklinga á árinu, og voru þeir
samtals 42. Landlæknir telur, að ekki inuni þá vera miklu fleiri sjúklingar í land-
inu, því að veikin sé sjaldgæf í þeim prófastsdæmum, sem ekki var talið i.
1. læknishérað. Hið eina tilfelli, sem ég hef haft af holdsveiki, var ungur
maður sunnan úr Garði (holdsveiki megn í ætt hans).
2. læknishérað. 6 tilfelli.
11. læknishérað. Engin ný tilfelli á árinu.
20. læknishérað. Þrjár persónur eru hér hoidsveikar. Af þeim hefur ein lima-
fallssýki, ein reglulega holdsveiki (lepra tuberosa), en á hinni þriðju eru báðar
tegundirnar sameinaðar.
4. Sullaveiki (eehinococcosis).
Um sullaveiki segir landlæknir m. a.: Af langvinnum sjúkdómum er sullaveiki
sífellt í fremstu röð. Á árinu hafa að minnsta kosti 150 sjúklingar verið undir
læknishendi vegna hennar.
1. læknishérað. Af sullaveikissjúklingum hef ég þetta ár ópererað einn eftir
Recamiers máta, og gekk það mjög vel. Það var barnshöfuðstór sullur í abdomen.
Á tveimur hef ég stungið (lifrarsullir). Á öðrum þeirra fylltist eigi aftur í sullinn,
og hefur hann verið frískur síðan. Á hinum var stór suppurerandi Iifrarsullur. Ég
punkteraði hann, dilateraði gatið og lét drainrör inn. Allt virtist ætla að ganga að
óskum, sullhúsið náðist fljótt út, en þótt ég reyndi með öllu móti að skola sem
bezt út pokann og styrkja kraftana, þverruðu þeir, og hann örmagnaðist af stöðugri
hektik og dó. Mér var leyft (í lauini) að gera sectio: Engin peritonitis neins staðar.
í lifrinni, lobus dx., aftan og neðan, lá sullurinn gróinn við magálinn. 1 þeim parti
lifrarinnar, sem lá í kringum sullinn, voru einlægir stærri og minni pusfoci, og
vall gröfturinn úr þeim, er skorið var í. — Á gömlum manni hér í bænum incideraði
ég í lifrarsull mjög stóran, og kom út mjög mikill gröftur og sullahús. Ég draineraði,
og allt gekk einstaklega vel, og þessi gamli maður gengur nú hér um alheill. — Á
ungri konu hér í Mosfellssveit, sem lengi hefur verið með sull í kviðnum, sprakk
hann eina nótt út í gegnum naflann, og feiknamikill gröftur og sullhús (ca. 4—5
pottar) komu út. Sjúklingnum létti mikið. Eftir nokkurn tíma sá ég hana aftur,
og var þá mest allt úr sullinum og hún örmjó, en einlægt hélzt nokkur útferð, og
hún fór að fá áköf uppköst, og heyri ég sagt, að hún hafi dáið, aðframkomin að
kröftum. — Hafði aðeins eitt tilfelli af haemoptysis. Var það ung kona, og gengu
sullir upp með hóstanum, sem kom að henni allt í einu. — Echinococcus hepatis
8, regionis scapulae 1, abdominis 5.
2. læknishérað. Echinococcus abdominis 2, hepatis 1.
4. læknishérað. Talin eru fram 18 lifrarmein, flest álitin vera sullir, og 1
lungnasullur, sem opnaðist niður í kviðarhol og olli dauða.
SL læknishérað. 8 tilfelli.
10. læknishérað. 1 tilfelli.