Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 73
71
1886
18. læknishérað. 6 tilfelli mjög illkynja. Fimm sjúklingar dóu.
20. læknishérað. 1 tilfelli.
3. Inflúenza.
Aðeins einn læknir telur, að inflúenza hafi stungið sér niður í héraði hans, en
sennilega hefur þar verið á ferð innlend kvefsótt.
4. Hettusótt (angina parotidea).
Aðeins getið tveggja tilfella í 2. héraði.
5. Taugaveiki (febris typhoidea).
Um hana segir landlæknir m. a.: Stakk sér niður eins og venjulega um allt land.
Læknar telja fram 60 tilfelli.
1. læknishérað. Ég gat þess í síðustu skýrslu minni, að taugaveiki hefði eigi það
ár né undanfarin ár gert vart við sig. Síðastumliðið ár hefur aftur á móti brytt á
henni á stöku stað, en öll þau tilfelli, sem ég hef séð, hafa verið með vægasta móti.
Þessi tilfelli, sem aðeins voru 4—5 að tölu (landlæknir telur 17 tilfelli), voru flestöll
á litlu svæði, og það sem talar fyrir því, að þau hafi stafað frá neyzluvatninu, er það,
að flestöll heimilin munu hafa sótt vatn í lélega brunna. — Læknir réð fólki frá að
sækja vatn í þessa brunna.
2. læknishérað. Taugaveiki stakk sér niður í marzmánuði, en af henni veiktust í
það sinn ekki nema 5, og voru tilfellin mjög væg yfir höfuð. Alls eru talin fram 9
tilfelli á árinu.
4. læknishérað. Taugaveiki gekk á nokkrum bæjum frá miðjum ágúst til ársloka.
Af 10 sjúklingum, sem ég hafði til meðferðar, dó einn.
10. læknishérað. 2 tilfelli.
11. læknishérað. Taugaveiki stakk sér niður á nokkrum bæjum í Arnarnes- og
Glæsibæjarhreppum, en fremur var veikin létt, og ekki veit ég til þess, að úr henni
hafi dáið nema tveir kvenmenn. Ekki náði veikin frekari útbreiðslu, því menn vöruðust
mjög samgöngur við hin sýktu heimili.
15. læknishérað. 13 tilfelli. í september byrjaði hér typhoidfeber, sem varð
mestur i október, en ekki útbreiddist neitt nema hér í Reyðarfirði.
17. læknishérað. 2 tilfelli.
20. læknishérað. Taugaveiki hefur verið á þremur bæjum, og hafa alls 14 manns
legið í henni. Ein stúlka dó. Yfir höfuð hefur sóttin mátt heita góðkynjuð, og hefur
enginn legið i henni nema um 3 vikur.
6. Blóðsótt og iðrakvef (dvsenteria, cholerina et catarrhus intestinalis acutus).
1. læknishérað. 3 tilfelli af cholerina.
2. læknishérað. 8 tilfelli af hlóðsótt.