Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Síða 87
85
1887
1U. læknishérað. Nokkur tilfelli af pneumonia og pleuritis, og dó einn maður
úr pneumonia.
15. læknishérað. Pneumonia, sem alltaf er sjaldgæf hér eystra, kom fyrir hjá
þremur.
19. læknishérað. 8 tilfelli, 2 mannslát.
9. Kvefsótt (bronchitis et pneumonia catarrhalis).
Talin eru fram aðeins 170 tilfelli af kvefsótt í 6 héruðum og getið eins manns-
láts úr pneuinonia catarrhalis.
10. Kverkabólga (angina tonsillaris).
Tilgreind eru 94 tilfelli í 6 héruðum.
11. Miltisbrandur (anthrax).
13. læknisliérað. 3 tilfelli af anthrax aftan á hálsi.
15. læknishérað. Hér skal ég sérstaklega geta pustula maligna, sem kom fyrir
á manni, sem hafði fláð hest, sem hafði drepizt úr miltisbrandi. Þessi veiki kom í
haust upp á bæ í Fáskrúðsfirði. Var ekki hægt að finna neina orsök aðra en þá,
að hún hefur orsakazt af vondu og litlu vatni handa gripunum þar i dýi. Veikin
kom upp þar líka fyrir 23 árum. Útlendar húðir hafa ekki verið brúkaðar þar. Veikin
drap á 3 bæjum, hverra lönd liggja saman, 5 hesta, 2 kýr og 1 hund, áður en út-
breiðsla hennar var stöðvuð. Af fyrstu dauðu skepnunuin ætluðu menn að nota
húðir og kjöt, því voru þær fláðar, og við þetta tækifæri fékk maðurinn veikina.
Ég lét svo kasta því öllu í djúpa gröf, fleygði kalki á, lét brenna tjöru og brenni-
steini á blóðvöllunum og rífa eitt hestlnis. Hin húsin, föt og annað, var þvegið með
sterku súblímatvatni, og standa hús þar auð í vetur. Veikin á manninum kom fram
sem pustula maligna, prominent á innri hlið framhandleggsins vinstra, rétt fyrir
ofan höndina, þar sem húðin hafði legið á, meðan hann fláði. Fyrst fann hann til
kláða á litlum bletti, sem hann klóraði, meðan hann var að flá. Um nóttina var
blárauð blaðra komin, feber og skömmu á eftir delirium, sein varaði ekki nema
liðugt 1 dag að mun. Pustula varð fljótt á stærð við 10 aura pening, en hin djúpa,
mortificeraða skál varð stærri en krónupeningur á endanum. Þar i kring og upp á
handlegg var mikil erysipelatös bólga með ýmislega litum blöðrum á, og harðir
strengir lágu upp eftir upphandlegg, samsvarandi vasa lymphatica. Ég brúkaði við
hann dec. chin. acid., brenndi fyrst með chromsýru, sem mér fannst ónýt, síðan
með etskalki og skar þá fyrst svo djúpt í burtu hið mortificeraða, sem ég mátti
fyrir a. radialis, sem lá rétt undir. í handargreipunum voru líka blöðrur. Hann kom
til aftur, en hann var meira en 2 mánuði að gróa.
12. Ristill (lierpes zoster).
Talin eru fram 9 tilfelli í 5 héruðum, en veikinnar annars að engu getið.