Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1890, Blaðsíða 93
91
1887
VI. Ymislegt.
1. Skottulæknar.
8. læknishérað. Mín er ekki leitað nema örsjaldan úr austustu hreppum sýsl-
unnar (Vindhælis-, Engihlíðar- og Svínavatnshreppi), þar sem flestir, að svo miklu
leyti sem þeir leita læknis, leita skottulæknis nokkurs í Svínadal. Heldur ekki er mín
leitað úr Hrútafirði, þeir leita skottulæknis, sem er búsettur í firðinum, eða til
skottulæknis í Dalasýslu, Jóns á Hornstöðum.
9. læknishérað. Skottulæknamálið er nú komið það áleiðis, að hæstaréttardómur
hefur fallið í því og lyfsala skottulækna dæmd ólögleg' samkvæmt lögum 4. des. 1872,
30. grein. En þó að ég hafi þannig sigur unnið í skottulæknamálinu, hafa skottu-
læknar og þeirra sinnar reynt til að hefna sín á mér með því að koma fram fyrir
landsstjórnina með kærur yfir mér, sem hafa að mestu leyti innihaldið ósannan og
ástæðulausan óhróður um mig, og í tilefni hér af hefur dómarinn haldið stórkostlega
rannsókn og látið fram fara mikla svardaga. En jafnvel þótt óvildarmenn mínir hafi
borið vitni í málinu, svo sem þeir voru menn til, þá voru þó nokkrir meðal vottanna,
sem báru hlutdrægnislaust vitni, svo ég þykist hafa vissa von urn, að þessar ill-
girnislegu kærur nái ekki að gera mér mein. En aftur á móti er það vitaskuld, að
mér er, svo sem öllum öðrum mönnum, ábótavant í ýmsum greinum og get ekki
lifað, svo öllum líki. Ef ég verð því framvegis kærður fyrir öll embættisverk mín,
er einhverjum kunna að mislíka og dómarinn framleiðir að mestu óvildarmenn
mina sem votta gegn mér, virðist mér næstum ómögulegt annað en að mér sé hætta
búin, hve vel sem ég reyni að standa í stöðu minni. En efnahagur minn er svo
þröngur og ástæður mínar að öðru leyti svo lagaðar, að ég verð að reyna að halda
áfram embætti mínu, meðan ég get, nema einhver önnur lífvænleg staða kynni mér að
bjóðast. En að því leyti, sem ég hef ýmislegt reynt að gera, sem flestir embættis-
bræðra minna munu láta ógert, til dæmis varnir gegn næmum sjúkdómum, þá verð
ég hér eftir að fara mjög varlega í slíku og reyna að taka mér til fyrirmyndar
embættisfærslu embættisbræðra minna, sem þjóð og stjórn ekki hefur ástæðu til að
finna að opinberlega.
2. Sjúkrahús.
I. læknishérað. Á sjúkrahúsinu i Reykjavík lágu 34 sjúklingar á árinu, þar af
1 frá fyrra ári. 24 voru brautskráðir eftir fullnaðarlæknismeðferð, 4 dóu, og 1 var
eftir um áramót. Legudagar brautskráðra voru 1040, en dáinna 57. Meðaltalslegudaga-
fjöldi á hvern brautskráðan var 37, en 14 á hvern dáinn.
II. læknishérað. Á sjúkrahúsinu á Akureyri lágu 24 sjúklingar, þar af 2 útlend-
ingar. 20 voru brautskráðir, en 4 dóu. Legudagar voru 470. Sjúkdómar voru: Abscessus
frigidus reg. inguinalis sin. 1, caries necrotica ossium tarsi et nasi 1, descensus uteri
1, erysipelas faciei 1, febris catarrhalis 1, furunculosis 1, gastricismus 2, hysteria 1,
luxatio cubiti 1, mastitis 1, morbus mentalis 1, panaritium tendinosum 2, paresis 1,
phlegmone pelvis 1 (dó), pneumonia 2 (dóu báðir), rheumatismus chronicus 1,