Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 29
Sæl. Er hægt að kom-ast yfir framhjáhald? Hvernig? Bestu kveðjur, Par í framhjáhaldsvanda Flestir reyna að laga sambandið Kæra par í framhjáhalds- vanda. Létt og laggóð spurn- ing, en vissulega efni sem hægt að væri að svara í mik- illi langloku og því miður efni sem allt of mörg pör leita svara við. Áður en ég held áfram þá er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að framhjáhald er ein af þremur algengustu ástæðum sam- bandsslita. Það segir okkur að mörg pör þola ekki slíkar uppákomur. Sem hjónabandsráðgjafi gefur það þó augaleið að mörg pör leita til mín með slíkan vanda. En þegar fólk er kom- ið í sófann til mín þá er það búið að taka ákvörðun um að reyna að fá hjálp. Hin pörin, þ.e. þau sem skilja, þau koma ekki endilega til mín. Þess vegna er það mín reynsla að flestir segja: „Ég myndi aldr- ei láta bjóða mér framhjá- hald“ en þegar á hólminn er komið þá reyna flestir að laga og byggja upp samband á ný eftir slík áföll. Stundum tekst það, stundum ekki. Ekki sama framhjáhald og framhjáhald Hér verðum við að hafa í huga að framhjáhald og framhjáhald er ekki alveg það sama. Framhjáhald er trúnaðarbrestur í par- sambandi en getur birst með margskonar hætti. Þið spyrjið „hvernig er hægt að komast yfir framhjáhald?“ og í ljósi skilgreiningarinnar væri einfaldasta svarið: „Að byggja upp traust á ný“. Hér er gott að greina á milli virðingar og trausts. Ef gagnkvæm virðing milli pars er farin úr parsambandi þá getur reynst ansi erfitt að skapa þá virðingu á ný. Annað hvort er virðing milli fólks eða hún er farin. Mér finnst annað gilda um traust, það getur dvínað og jafnvel horfið en það eru til leiðir til þess að byggja það upp á ný. En auðvitað er þetta tvennt nátengt. Það er ákveðið virð- ingarleysi að halda fram hjá maka sínum. Aftur á móti, ef iðrun er til staðar þá má oft líka greina virðingu og virki- lega sterkan vilja til þess að taka til hendinni. Ef svo er, þá er það hægt. Getur markað nýtt upphaf Stundum er sagt að það sé gott þegar framhjáhald kemst upp í samböndum og ástæðan fyrir slíku orða- lagi er nú yfirleitt að það er betra að það komi upp en að það haldist leynt. Eins tala margir um að slíkt uppgjör hafi verið upphafið að nýju, heiðarlegra og betra tímabili í lífi pars þó erfiðleikar hafi sett strik í reikninginn. Til þess að byggja upp traust þurfa báðir aðilar að vinna að því og vera tilbúnir í þá vinnu. Margir hafa þörf fyrir að kryfja fortíðina, hvað gerðist og hvernig gat það gerst? Það er afar skiljan- legt, en þannig verður ekki til meira traust. Að ræða fram- tíðina og þau bjargráð sem parið hefur til þess að slíkt endurtaki sig ekki er leið sem virðist heldur skila tilsettum árangri. Í slíkri vinnu er algengt að sá sem braut trúnað taki sér ekki „pláss“ í sambandinu. Viðkomandi fer að tipla á tánum í kringum maka sinn og gera allt til að þóknast. Það hljómar skynsamlegt en því miður þá grefur það undan trausti frekar en hitt. Slík hegðun er ótrúverðug því hún er fyrst og fremst hugsuð til þess að valda ekki meiri sársauka og það veit makinn. Í þessari stöðu er mikilvægt að það komi fram hvað báðir aðilar raunverulega vilja. Hverju viljið þið breyta í sambandinu? Var eitthvað sem þið hefðuð viljað sjá öðruvísi í sambandinu áður en til framhjáhaldsins kom? Og hvað þurfið þið til þess að koma í veg fyrir að trúnaðar- brestur endurtaki sig? Örvæntingarfull öryggishegðun Önnur hegðun sem margir grípa til eftir framhjáhald heitir öryggishegðun. Þá er reynt að fyrirbyggja að nokkur geti haldið nokkru leyndu með því að skoða síma, skrolla í gegnum sam- félagsmiðla, jafnvel nota upp- tökur eða staðsetningartæki. Þetta hljómar glórulaust en þá vil ég minna á að tilfinn- ingar sem þessar geta fram- kallað gríðarlega örvæntingu í fólki, svo mikla örvæntingu að ástríða er talin ein af fimm algengustu ástæðum þess að fólk fremur morð. Í ljósi þeirrar staðreyndar verður skroll á samfélagsmiðlum afar saklaust, en skiljanlegt. Það sem við þó verðum að hafa í huga er, hvað er þessi öryggishegðun að gera fyrir parið? Er hún að stuðla að meira trausti eða meiri tor- tryggni? Ég mæli alltaf heldur með samtali og samveru. Opið samtal um líðan og þarfir auk uppbyggjandi samveru pars stuðlar að meiri nánd, skiln- ingi og auknu trausti. Tíminn er vissulega dýrmæt breyta til að lækna sár en hann þarf að nýta skynsamlega. Eins einfalt og það hljómar þá getur mikið skemmtilegt og lítið leiðinlegt stuðlað að mun heilbrigðara sambandi en umræða um svik, vanlíð- an og trúnaðarbresti. Ef þið getið sett fókusinn á slíkt þá er sigurinn unninn. Til þess að svo megi verða þurfa mörg pör aðstoð fagaðila. Ekki hika við að leita ykkur hjálpar, það getur flýtt bataferlinu og gert það mun skilvirkara. Gangi ykkur sem allra best. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem er hugsi yfir framhjáhaldi. Sérfræðingur svarar MYND/GETTY GETUR SAMBANDIÐ LIFAÐ AF FRAMHJÁHALD? DV 19. FEBRÚAR 2021 FÓKUS 29

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.