Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Síða 37
Bollakökur með smjörkremi Þessi uppskrif t dugar í um 25 stykki af bollakökum. 2 dl hveiti 1 dl sykur 6 msk. kakó 1 tsk. salt 1 tsk. matarsódi 4 stk. egg 2 tsk. vanillusykur ½ dl olía 1 dl vatn Aðferð: Stillið ofninn á 180 gráður. Sigtið saman hveiti, sykur, kakó, salt, matarsóda og vanillusykur. Þeytið saman egg, olíu og vatn þar til að blandan verður létt og ljós. Bætið þurrefnunum rólega saman við og passið að allt blandist vel saman. Hellið blöndunni í um 20-25 stk. bollakökuform, mér finnst gott að setja bréfformin í silikon bolla- kökuform, þannig verða kökurnar fallegri. Bakið kökurnar í um 15-18 mínútur. Takið kökurnar úr ofninum og leyfið þeim að kólna áður en kremið og skrautið er sett á. Smjörkrem 500 g smjörlíki (mjúkt) 500 g flórsykur 2 msk. vanilludropar (bætið matarlit að eigin vali við) Blandið saman í skál smjörlíki, flórsykri og vanilludropum og þeytið vel saman á góðum hraða. Því lengur sem hrært er því hvítara verður kremið. Ég nota svo sprautustút frá Allt í köku sem heitir 2D, svo skreyti ég með sælgætikúlum. Kjötbollur Þessar Ritzkex-kjötbollur eru ein- faldar í framkvæmd, bragðgóðar og slá alltaf í gegn bæði hjá börnum og fullorðnum. Best er að bera þær fram með súrsætri sósu. Þessi uppskrift dugar í um 40 stykki af litlum kjötbollum. 500 g nautahakk 1 stk. egg 150 g Ritzkex (mulið) Smá krydd, ég nota salt og pipar til að bragðbæta. Takið Ritzkex og hakkið niður mjög fínt (nánast eins og krydd). Bætið nautahakkinu saman við ásamt einu eggi og kryddið með salti og pipar og hnoðið allt vel saman. Útbúið litlar kúlur og steikið á pönnu til að loka kjötbollunum aðeins og setjið þær svo í eldfast form og inn í ofn í um 20 mín. við 200 gráðu hita. Berið fram með sósu til hliðar. Marengs með karamellu og rjóma Falleg og góð marengskaka er alltaf tilvalin í veislur, hérna ákvað ég að gera smá breytingu og taka til hliðar smá part af marengsblöndunni, lita hana með bleikum matarlit og nota mismunandi sprautustúta til að fá fallega marengstoppa til að skreyta kökuna með. Marengsbotn 4 stk. eggjahvítur 200 g sykur 2 tsk. vanilludropar 400 ml rjómi Byrjið á að stilla ofninn á 150 gráður. Klæðið bökunarplötu með bökunar- pappír. Þeytið eggjahvítur þar til þær fara að freyða vel og hellið sykrinum hægt og rólega saman við, vanillu- droparnir fara svo næst saman við. Þeytið vel saman eða þar til að stíf marengsblanda myndast. Hellið marengsblöndunni á bökunar- pappírinn og myndið tvo jafna hringi og sléttið vel úr. Takið aðeins af blöndunni til hliðar, litið með matar- lit, setjið í sprautupoka og sprautið með mismunandi sprautustútum á sér bökunarplötu með bökunar- pappír undir. Bakið í 40 mínútur, takið út úr ofn- inum og látið kólna. Þeytið rjóma og leggið á milli botn- anna. Setjið karamelluna yfir kökuna og á milli botnanna. Skreytið að vild, sjá meðfylgjandi mynd. Karamella 4 stk. eggjarauður 60 g flórsykur 50 g smjör 200 g mjólkursúkkulaði Bræðið saman í potti smjör og súkkulaði við vægan hita og hrærið vel í, leyfið aðeins að kólna. Hrærið saman eggjarauður og flór- sykur. Bætið svo súkkulaðinu saman við flórsykurblönduna og hrærið vel saman og hellið yfir kökuna og milli botnanna. STÍLISERING Kökudiskar gera einfalda rétti mun veglegi. Þessir fallegu diskar fást í nokkrum litum og stærðum á hulan.is en einnig má finna ódýra kökudiska í Ikea og víðar. Blómin bæði í vösunum og til skreytingar á kökunni eru frá Blómagallerí á Hagamel. Hægt er að panta skreytingar eftir lita- þema og nýta einnig fersk blóm í kökuskreytingar. Bollakökuformin, sælgætiskúlur sem notaðar eru á bollakökurnar og sprautustútar fást hjá Allt í köku. Wilton kökuform Allt í köku. Sælgætispokar og gylltar tangir fást hjá Søstrene Grene. Servéttur og kerti Søstrene Grene. Blómalímband Blómaval. SNITTUBRAUÐ Snittubrauð er hægt að útfæra á allskonar skemmtilegan máta, hérna má sjá eina útgáfuna með hvítlauks- hummus, fersku káli, piccolo-tóm- ötum og mozzarellaosti og svo er einnig hægt að setja góðan ost eins og Brie og fersk jarðarber. HEIT RÚLLUBRAUÐ Mér fannst tilvalið að skella í nokkur rúllubrauð, skera þau niður í jafnar og fallegar sneiðar. Ég ákvað að fylla brauðin með aspas úr dós, sveppa- osti og skinkubitum. Ég setti þetta allt saman í pott við vægan hita og blandaði vel saman, smyr rúllu- brauðin að innan með blöndunni og rúlla þeim svo upp, smyr þau með einu þeyttu eggi og strái ost yfir. Ég set svo brauðin í ofninn á 180 gráður í um 20 mínútur eða þar til að ostur- inn er vel bráðnaður. TORTILLAKÖKUR Fylltar með hummus, paprikubitum og káli, upprúllað og skorið niður í bita. DV 19. FEBRÚAR 2021 MATUR 37

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.