Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 36
Vista er leiðandi í orkueftirliti og sjálfvirkum mælikerfum.
Meðal helstu viðskiptavina stofunnar má nefna
Veðurstofu Íslands, Reykjavíkurborg, Landsvirkjun,
Kópavogsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes og Mosfellsbæ.
Nánar um nýjustu verkefnin okkar á vista.is
Starfið er fjölbreytt og þarf viðkomandi að geta unnið við hönnun,
teikningu og samsetningu á mælabúnaði. Að auki þarf að fylgja
verkefnum úr húsi með uppsetningu og prófunum.
Við hvetjum jafnt einstaklinga með reynslu sem og nýútskrifaða
til þess að sækja um. Nánari upplýsingar veitir hallur@vista.is
Tekið er á móti umsóknum á vista@vista.is
Umsóknarfrestur er til 8. mars og verður fyllsta trúnaðar gætt.
Við leitum að drífandi
rafmagnsverkfræðingi,
rafmagnstæknifræðingi
eða rafmagnsiðnfræðingi.
Textaskrif og vinnsla á efni
inn á visiticeland.com
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
• Textaskrif um land og þjóð í samræmi við ritstjórnarstefnu visiticeland.com
• Uppfærsla upplýsinga og leiðbeininga á visiticeland.com
• Samstarf við áfangastaðastofur, sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu um gerð efnis fyrir ferðamenn
• Þýðing og staðfærsla efnis og texta fyrir stafræna miðlun
HÆFNISKRÖFUR:
• Yfirgripsmikil reynsla af textaskrifum fyrir vef (leitarvélabestun) og þekking á ferðaþjónustu, háskólapróf er kostur
• Mjög góð enskukunnátta og reynsla af skrifum á ensku. Þekking á fleiri tungumálum kostur
• Góð þekking á landi og þjóð, menningu og staðháttum og sérstöðu Íslands s.s. veðráttu og öryggi?
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Rík þjónustulund og jákvæðni
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Tölvukunnátta og góð þekking á samfélagsmiðlum og vefmiðlun
Umsóknum skal skila á netfangið
upplysingar@ferdamalastofa.is fyrir 5. mars n.k.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Inga Rós Antoníusdóttir
ingaros@ferdamalastofa.is
Ferðamálastofa leitar að einstaklingum til efnisvinnslu og texta-
skrifa fyrir vefinn visiticeland.com og miðla tengdum honum.
Ferðamálastofa, Íslandsstofa og Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hafa með samkomulagi sín á milli ákveðið að
vefurinn visiticeland.com verði helsta upplýsingaveita fyrir
ferðamenn á leið til landsins, á meðan dvöl þeirra á landinu
stendur og eftir að heim er komið. Er þá m.a. horft til upp-
lýsinga um framboð þjónustu, menningu, sögu, náttúru, fjöl-
breytileika landsins, aðgengi ferðamannastaða, öryggi og um-
hverfisvernd, veður og færð á vegum.
Mikilvægt er að í slíkri miðlun upplýsinga sé ítarlegt og vel unnið
efni, bæði texti og myndir. Uppfærsla og endurnýjun á efni þarf að
vera stöðug til að miðillinn sé lifandi og áreiðanlegur.
Leitað er að einstaklingum með fasta búsetu utan höfuð-
borgarsvæðisins en að öðru leyti er um störf án staðsetningar að
ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti haft starfsaðstöðu utan
heimilis. Miðað er við að starfshlutfall sé að lágmarki 50%.
Störf án staðsetningar á landsbyggðinni