Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 4
Guðmundur Örn Guð- jónsson formaður Bogfimisam- bandsins segir að víðast hvar séu engar hömlur á bogaeign eins og eru á Íslandi. „Einu önnur löndin sem  ég veit um eru Hvíta-Rússland og Norður-Kórea.“ Verði frumvarp um breytingar á vopnalögum samþykkt mega börn yngri en 16 ára eiga örvaboga með meiri togkrafti en sjö kílóum til æfinga eða keppni, undir eftirliti fullorðinna. Sema Erla Serdar framkvæmdastýra Æskulýðs- vettvangsins ræddi neteinelti við Fréttablaðið. „Það er mun algengara en fólk heldur og er stærsta ógnin sem börn og ungmenni standa frammi fyrir.“ Æskulýðs- vettvangurinn hélt í vikunni raf- rænt örnámskeið á Facebook um netein elti á meðal barna og ung- menna. Sema Erla segir fullorðna leika lykilhlutverk í að sporna gegn og stöðva neteinelti. Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar telur að með því að nota stóran hluta íslenskrar raforku í raf- myntanámu- gröft sé verið að óhreinka hreina orku Íslands með sóun. Félagið sjálft hefur þó enn ekki ályktað um málið eða lagt til að framleiðslan verði bönnuð. „Við sjáum ekki verðmætið eða þörfina á þessu. Þetta er gríðarlega orku- frekt og til aðrar aðferðir til að búa til rafmynt.“ 46 heimili voru rýmd á Seyðis­ firði á þriðjudag. 1.218 bíða nú eftir liðskipta­ aðgerðum hér á landi. 95 krónur eru stykkjatollur á hverja rós sem flutt er hingað til lands. TÖLUR VIKUNNAR 14.02.2021 TIL 20.02.2021 Þrjú í fréttum Formaður, stýra og stjóri SAMFÉL AG „Staðreyndin blasir bara við, menn eru hættir í fjár- öf lun og Happdrætti Háskólans (HHÍ), Landsbjörg og Rauði kross- inn eru farin að stunda fjárhættu- spilarekstur,“ segir Alma Björg Haf- steinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn (SÁS). Samtökin hafa barist fyrir því að spilakössum verði lokað hér á landi, en rekstur slíkra kassa er í höndum tveggja fyrirtækja, Happdrættis Háskólans og Íslandsspila. Hið síðarnefnda er í eigu Slysavarna- félagsins Landsbjargar og Rauða krossins á Íslandi. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær óskar Rauði krossinn eftir samtali við stjórnvöld um leiðir til að reka sig með fé úr spilakössum. Þá hefur félagið einnig kallað eftir stefnu stjórnvalda um innleiðingu spilakorta. Alma segir spilakassa tímaskekkju og telur spilakort ekki nægilega góða lausn. Krafa SÁS sé skýr, að spilakössum skuli lokað. „Ef það væru einhver handbær plön í gangi um upptöku spila- korta væri sjálfsagt að skoða það, en okkar krafa er sú að spilakössunum verði lokað,“ segir Alma. „Í tilkynningunni frá Rauða krossinum er vísað í áratuga vinnu við það að taka upp spilakort, en ég hef ekkert séð um þessa vinnu og ég er ansi hrædd um að formenn bæði Landsbjargar og Rauða krossins og Happdrættis Háskólans séu að slá ryki í augun á fólki og ekki að segja sannleikann,“ bætir Alma við. „Ég hef ekkert séð um þessi sam- töl sem eiga að hafa átt sér stað í áratugi og grunar að hugmyndin að spilakortunum sé á frumstigi.“ Árið 2018 var hagnaður Íslands- spila og HHÍ af spilakössum yfir tólf milljarðar króna. Alma segir hann að mestu eða öllu leyti koma úr vasa spilafíkla. „Fólk með spilafíkn er hópurinn sem heldur þessu uppi. Við höfum séð dæmi þar sem einstaklingur eyddi fimmtán milljónum í spila- kassa á átján mánuðum.“ Alma segir að niðurstöður könn- unar Gallup fyrir SÁS hafi sýnt að 93,6 prósent svarenda hafi aldrei notað spilakassa síðustu tólf mán- uði. Þetta sýni að lítill hópur, spila- fíklar, haldi uppi hagnaði spilakass- anna. „Það er bara kominn tími til að stoppa og menn verða að taka ábyrgð. Það er ekkert gert til að koma í veg fyrir þennan níðings- skap,“ segir Alma. Að sögn Ölmu hafa spilafíklarnir og fjölskyldur þeirra gleymst. „Umræðan hefur einkennst af því að það er gert lítið úr þessu fólki,“ segir Alma. Líka af því að lokun spilakassa lækni ekki spilafíkn. „Við höfum aldrei haldið því fram en það er nauðsynlegt að hætta að tala um spilafíkla sem tekjulind og með því að loka kössunum getum við í það minnsta komið í veg fyrir nýliðun í þessum hópi,“ segir Alma. „Annað sem hefur komið upp er umræðan um fjárhættuspil á netinu og það er ekki sami hópurinn sem spilar á netinu og í kössunum. Kass- arnir eru mun meira ávanabindandi og það er góð leið að byrja þar,“ bætir hún við. birnadrofn@frettabladid.is Segir nauðsynlegt að hætta að líta á spilafíkla sem tekjulind Alma Björg Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn, segir rekstur spilakassa hafa þróast úr fjáröflun í fjárhættuspilarekstur. Með lokun sé hægt að koma í veg fyrir nýliðun í hópi spila- fíkla. Krafa félagsins sé að kössunum verði lokað. Umræðan um upptöku spilakorta sé á frumstigi. Könnun Gallup sýnir að 94 prósent Íslendinga notuðu ekki spilakassa á tólf mánaða tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRIINK Ég er ansi hrædd um að formenn bæði Landsbjargar og Rauða krossins og Happdrættis Háskólans séu að slá ryki í augun á fólki. Alma Björg Haf­ steinsdóttir, for­ maður Samtaka áhugafólks um spilafíkn RAFMAGNAÐ ÆVINTÝRI MEÐ ALVÖRU 4X4 Einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif. Ótrúlegt verð á bílum hlöðnum lúxusbúnaði. JEEP COMPASS PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.999.000 KR.* JEEP RENEGADE PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.499.000 KR.* *G ildir m eðan birgðir endast, hvítur R enegade, svartur Com pass Lim ited. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 GERIÐ VERÐSAMANBURÐ 29 milljarðar var andvirði fjár­ festingar í sprotafyrirtækjum í fyrra. 16 prósenta samdráttur var í notkun sýklalyfja milli áranna 2019 og 2020. 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.