Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 46
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir
umsóknum um styrki til gæða- og
nýsköpunarverkefna í heilbrigðis-
þjónustu.
Veittir verða styrkir til afmarkaðra
verkefna og tæknilausna sem stuðlað
geta að umbótum, nýbreytni eða
auknum gæðum.
Ekki eru veittir ferðastyrkir.
Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð
á verkefni sem nýtast heilbrigðisþjón-
ustunni í kjölfar heimsfaraldurs. Verk-
efnin þurfa að hafa skýran ávinning
fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann
hóp sem þjónustan beinist að.
Styrkirnir eru veittir til stofnana á
sviði heilbrigðismála, einstaklinga og
fyrirtækja. Fyrirtæki eða einstaklingar
sem sækja um styrki þurfa að gera
það á grundvelli samstarfs við heil-
brigðisstofnanir.
Vakin er athygli á að einungis er unnt
að sækja um á rafrænu formi.
Umsóknarform ásamt reglum um
úthlutun styrkjanna eru á vefslóðinni
www.stjornarradid.is/gogn/styrkir-og-
sjodir/
Umsóknarfrestur er til kl. 13
mánudaginn 22. mars 2021.
Styrkir til gæða- og
nýsköpunarverkefna
Kópavogur og Reykjavíkurborg hafa samþykkt
að kynna drög að breytingu á aðalskipulagi
sveitarfélaganna í samræmi við 2. mgr. 30. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Drög að breytingartillögum í Kópavogi og
Reykjavík fjalla um tillögu að legu Borgar
línunnar og tillögur að staðsetningu kjarna
stöðva. Í drögum að skipulagsgögnum eru
jafnframt kynntar hugmyndir að leiðbeinandi
staðsetningum almennra stöðva, viðmiðum um
hönnun göturýmis og forgang almennings
samgangna og virkra ferðamáta. Í drögum fyrir
Reykjavík eru jafnframt kynnt áform um
Sæ brautarstokk og Miklubrautarstokk
Um hverfisskýrsla er hluti af drögunum,
sem fjallar um helstu umhverfisáhrifin m.v.
fyrirliggjandi gögn.
Drög að aðalskipulagsbreytingu Kópavogs
bæjar verða aðgengileg á heimasíðu Kópa
vogsbæjar í kynningu og drög fyrir Reykjavík
á vef aðalskipulags.
www.kopavogur.is/skipulag
www.adalskipulag.is
Jafnframt verða ofangreind gögn aðgengileg
á samráðsgáttinni, www.island.is.
Forkynning
á vinnslutillögu fyrir breytingu á
Aðalskipulagi Kópavogs 2012–2024
og Reykjavíkur 2010 –2030
Opinn streymisfundur verður um aðal
skipulagsbreytingu í Kópavogi 22. febrúar
kl. 16:30-18:00. Sambærilegur kynningar
fundur verður haldinn fljótlega í Reykjavík.
Frumdrög að Borgarlínunni eru fylgigögn með
skipulagsgögnunum. Í þeim er hægt að finna
ítarlegri upplýsingar m.a. um ákvörðun um
Borgarlínuna, framkvæmdakostnað, hönnunar
forsendur, legu, valkosti, umferðar spá og
umhverfis áhrif. Frumdrögin eru aðgengileg
á vef Borgarlínunnar.
www.borgarlinan.is
Ábendingar og athugasemdir við drögin skal
senda á netfangið skipulag@kopavogur.is,
skipulag@reykjavik.is og á samráðsgáttinni.
Frestur til að gera athugasemdir eða koma með
ábendingar við drög að aðalskipulagsbreytingu
er til og með 30. apríl 2021.
Sveitarfélögin vonast til þess að sem flestir
kynni sér þá stefnumörkun um landnotkun sem
unnin hefur verið að og þær áherslur og
aðgerðir sem talið er nauðsynlegt er að ráðast í
á næstu árum til að ná settum markmiðum.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is