Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 30
Smart Socks býður fólki að kaupa og gefa áskrift að skrautlegum og skemmti-
legum sokkum og nýlega bættust
nærbuxur við í vöruframboðið.
Það er einnig mjög hentugt og ein-
falt að selja sokka frá Smart Socks í
fjáröflunarskyni.
„Við höfum unnið með nokkr-
um íþróttafélögum og hannað
með þeim sérmerkta sokka sem
þau hafa selt í fjáröflunarskyni,“
segir Guðmundur Már Ketilsson,
stofnandi og eigandi Smart Socks.
„En enn fleiri hafa farið þá leið að
selja „venjulega“ sokka.“
Þetta litla fjölskyldufyrirtæki
hefur vaxið hratt og stefnir á að
færa út kvíarnar og hefja starfsemi
erlendis.
„Smart Socks var upphaflega
stofnað sem sokkaáskriftarfyrir-
tæki sem sendir 1–2 pör inn um
lúguna einu sinni í mánuði, en
þetta hefur þróast og undið upp
á sig,“ segir Guðmundur. „Fyrstu
jólin byrjuðum við að bjóða upp á
gjafaáskriftir í 3, 6 eða 12 mánuði,
sem hafa verið rosa vinsælar, og
nýlega fórum við að bjóða upp á
sölu á sokkum í fjáröflunarskyni
og hefur það verið mjög vinsæl
fjáröflunarleið fyrir þróttafélög,
skóla og einstaklinga.
Nýjasta viðbótin við starf-
semina okkar er svo nærbuxur.
Áskrifendur geta þá annaðhvort
verið með sokka eða nærbuxur í
áskrift, eða blandað því saman,
en þá er bara raðað saman í pakka
eins og fólk vill,“ segir Guðmundur.
„Eftirspurnin fór fram úr okkar
björtustu vonum og við lentum
í því í janúar að lagerinn okkar
kláraðist.“
Fjölskyldufyrirtæki sem
hefur vaxið hratt
„Smart Socks er lítið fjölskyldu-
fyrirtæki á Álftanesi sem hefur
stækkað ansi mikið frá því við
byrjuðum fyrir rúmlega þremur
árum síðan,“ segir Guðmundur.
„Við höfum selt yfir 120.000 sokka-
pör frá byrjun.
Þetta hefur valdið nokkrum
vaxtarverkjum þar sem við
pökkum öllu heima við, það
líður að því að við þurfum að
fara að finna okkur lagerhús-
næði fyrir starfsemina. Heimilið
fer alveg á hliðina í nokkra daga
í hverjum mánuði á meðan við
fjölskyldan hjálpumst að við að
pakka áskriftum,“ segir Guð-
mundur. „Þetta er aukavinna hjá
mér og konunni minni, Sonju Rut
Aðalsteinsdóttur, en við erum
bæði í fullu starfi annars staðar.
Sem betur fer fáum við ómetan-
lega aðstoð frá krökkunum okkar,
Aroni, Anítu og Tinnu og honum
Össuri, tengdasyni okkar.“
Spennandi, þægileg og
skemmtileg áskrift
Guðmundur segir að það sé auð-
vitað þægilegt að þurfa ekki að
hugsa um að endurnýja sokka
og nærbuxur, sem endast oft
ekki lengi, en fyrst og fremst sé
skemmtilegt og spennandi að fá
sokka og nærbuxur inn um lúguna
einu sinni í mánuði.
„Það er spennandi að vita ekki
hvað þú færð í hverjum mánuði
og það er ákveðin upplifun að fá
pakka inn um lúguna,“ segir hann.
„Í janúar tafðist afgreiðsla áskrifta
um hálfan mánuð vegna bilunar
hjá framleiðanda og það var allt að
verða vitlaust! Ég hafði ekki undan
við að svara póstum frá fólki sem
var í öngum sínum yfir þessu, sem
sýnir hversu mikil eftirvænting er.
Ég hef heyrt af því að það sé fjöl-
skyldustund þegar það koma nýir
sokkar, allir koma saman til að sjá
hvað kemur úr pökkunum þann
mánuðinn.
Það er líka gaman að segja frá
því að flestir sem segja upp áskrift
hjá okkur gera það einfaldlega
vegna þess að gæði sokkanna eru
það góð að sokkaskúffan er orðin
full,“ segir Guðmundur.
Vinsæl, ódýr og einföld
fjáröflunarleið
„Sala á sokkum er orðin mjög vin-
sæl fjáröflunarleið fyrir íþrótta-
félög, skóla og einstaklinga. Það
er mjög einfalt þar sem fólk fær
tilbúna auglýsingu fyrir samfélags-
miðla og skjal til að halda utan um
söluna. Það er ekkert lágmark sem
þarf að kaupa og því hentar þetta
einstaklingum jafnt sem hópum,“
segir Guðmundur. „Þetta er frábær
fjáröflunarleið. Fólk kaupir parið
á rúmlega 900 kr. og selur það svo
á 2.000 kr., þannig að það er góður
gróði. Eingöngu er greitt 25% stað-
festingargjald fyrirfram og svo er
pöntunin afgreidd 2–3 vikum síðar
og þá er restin greidd.“
Styðja Mottumars
Árið 2019 styrktum við Krabba-
meinsfélagið í tengslum við
Mottumars. Það virkaði þannig
að ef fólk skráði sig í áskrift í mars
rann fyrsta mánaðargjaldið óskipt
til félagsins,“ segir Guðmundur.
„Við stefnum á að gera þetta aftur í
næsta mánuði.“
Stefnt á útrás
„Það hefur staðið til að hefja starf-
semi erlendis og það er í raun allt
klárt til þess, en vegna mikilla anna
hefur það ekki raungerst enn þá,
enda sinnum við sokkabransanum
sem aukastarfi,“ segir Guðmundur.
„En vörurnar, birgðaleiðir, dreifi-
kerfi og heimasíðan og allt annað
er tilbúið. Það þarf bara fjármagn
og tíma til að ýta þessu verkefni úr
vör, þannig að ef einhver fjárfestir
þarna úti hefur áhuga á að vera með
okkur erum við til.“
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Smart Socks: www.
smartsocks.is.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Nýjasta viðbót
in við starfsemi
Smart Socks
er nærbuxur.
Áskrifendur
geta annað
hvort verið með
sokka eða nær
buxur í áskrift,
eða blandað því
saman, en þá
er bara raðað
saman í pakka
eins og fólk vill.
Eftirspurnin
eftir þessari
viðbót fór fram
úr björtustu
vonum. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/STEFÁN
Hér sjást
áskriftir
febrúar
mánaðar eftir
að fjölskyldan
hefur pakkað
þeim og gert
þær tilbúnar til
afgreiðslu.
Sokkarnir frá Smart Socks eru fjölbreyttir og endingargóðir. Það er spennandi og skemmtilegt að fá sokka og nærbuxur inn um lúguna.
Sokkarnir frá Smart Socks henta
öllum aldurshópum og störfum.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R