Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 41
Forritari
Við leitum að hugmyndaríkum forritara til að taka þátt með okkur í
spennandi vegferð til stafrænnar framtíðar. Um er að ræða fjölbreytt
verkefni á sviði hugbúnaðarþróunar og reksturs upplýsingakerfa með
öflugu teymi sérfræðinga upplýsingatæknideildar.
Starfið felur í sér:
· Hönnun og þróun hugbúnaðalausna
· Þarfagreiningu, forritun og viðhaldi hugbúnaðakerfa
· Verkefnastýringu og aðstoð við innleiðingu verkefna
· Þjónustu við notendur
Við leitum að einstaklingi:
· Með háskólapróf í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði
· Með a.m.k tveggja ára reynslu af forritun
· Með góða þekkingu á .NET og MS SQL
· Með þekkingu á samþættingum á móti REST vefþjónustum
· Reynsla af Salesforce eða öðru CRM kerfi er kostur
· Reynsla af DevOps og Azure er kostur
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Rafn Gylfason, deildarstjóri
upplýsingatækni, 580-7000
Vörustjóri
Við leitum eftir drífandi einstaklingi í starf vörustjóra í öflugt teymi
vörustýringar hjá Securitas. Í boði er spennandi starf í krefjandi
umhverfi þar sem unnið er náið með viðskiptavinum.
Starfið felur í sér:
· Vinnu með teymi vörustjóra við þróun vöru, þjónustu og sölu
· Viðskiptagreiningar á núverandi og nýjum vörum
· Að vinna vöru frá hugmynd til enda afurðar
· Samskipti við birgja
· Vinnu við stöðugar umbætur
· Framsetningu kynningarefnis, sölu- og þjónustuleiðbeininga
Við leitum að einstaklingi:
· Með háskólamenntun sem nýtist í starfið
· Með reynslu af vörustýringu og þróun vöru
· Með reynslu af greiningum og skilning á rekstri
· Með framúrskarandi samskiptahæfileikar, jákvætt viðmót og
lausnamiðaða hugsun
· Með þekkingu og reynslu af aðferðafræði CRM
· Sem sýnir frumkvæði og árangursdrifni
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Rúnarsson, deildarstjóri
vörustýringar, 580-7000
Spennandi störf og tækifæri
hjá Securitas
Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði sem kappkostar
við að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að
auka öryggi viðskiptavina. Securitas hefur verið starfrækt í yfir
40 ár og hefur á þeim tíma ávallt haft það að leiðarljósi að vinna
eftir gildunum árvekni, heiðarleika og hjálpsemi.
Skeifan 8
108 Reykjavík
580-7000
www.securitas.is
Deildarstjóri
Við leitum að kraftmiklum og drífandi einstaklingi til að leiða nýja
deild sem sérhæfir sig í uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum á
þjónustusvæði Veitna. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður og
búa yfir frumkvæðishugsun ásamt því að hafa brennandi áhuga á
þjónustu.
Starfið felur í sér:
· Umsjón, rekstur og ábyrgð á verkefnum deildarinnar
· Stýring á uppsetningu mæla og vinnslu eftir gæðastöðlum
· Samskipti við verkkaupa og uppbygging viðskiptatengsla
· Tryggja framúrskarandi þjónustustig til viðskiptavina
· Þátttaka í umbótaverkefnum innan félagsins
Við leitum að einstaklingi:
· Með reynslu og hæfileika á sviði stjórnunar og reksturs
· Með menntun sem nýtist í starfi
· Sem er skipulagður, framsýnn og árangursdrifinn
· Sem býr yfir leiðtogahæfileikum og snerpu
· Með áhuga á hugbúnaðarlausnum og stafrænni vegferð
· Með metnað og áhuga á að leiða nýtt teymi í nýjum
verkefnum
Nánari upplýsingar veitir Erik R. Yeoman, framkvæmdastjóri
tæknisviðs, 580-7000
Sótt er um á www.securitas.is
Umsóknafrestur er til og með 2.mars 2021
Störfin henta öllum kynjum, hreint sakavottorð er
skilyrði.
Securitas er skemmtilegur og lifandi vinnustaður
sem veitir starfsfólki tækifæri til starfsþróunnar. Við
leggjum áherslu á liðsheild, góðan starfsanda og
sjáfstæð vinnubrögð. Ef þú ert metnaðarfull, hress
og lífsglöð manneskja sem vilt vinna í skemmtilegu
umhverfi þá erum við að leita að þér.