Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 62
Út fyrir kassann Sigmundur Ernir Rúnarsson Höfundur er sjónvarpsstjóri Hringbrautar, sem rekin er af Torgi, sem jafn- framt gefur út Fréttablaðið. MATARHEFÐIR ÍSLEND- INGA ERU Á KÖFLUM SKRÝTNAR. SVO EKKI SÉ MEIRA SAGT. Í GRUNNINN ER ÞAR BLANDA AF BASLI, FÁTÆKT OG HARÐBÝLI, SVO OG FORNFÁLEGUM GEYMSLUAÐFERÐUM. Ég skaust heim í hádeg­inu á þriðjudag – og þótt það taki mig ekki nema fimm mín­útur að skottast á milli vinnustaðar og heim­ ilis, suður Lækjargötu að Laufás­ vegi, gat ég ekki beðið eftir því að komast í krásirnar sem biðu mín í eldhúsinu – altso, minn árvissa skammt af saltkjöti og baunum. En því er ekki að neita að ég varð nokkuð hugsi, mér liggur við að segja skömmustulegur, eftir að ég tyllti mér við borðið með barma­ fulla skálina og byrjaði að háma í mig hnossgætið, því þar sátu fyrir kona mín og yngsta dóttir og horfðu báðar á mig í forundr­ an, þetta fornaldarátvagl að slafra í sig brimsaltan bévað­ inn, en sjálfar sötruðu þær kurteislega á grænmetissafa og ávaxtahræru úr litlum og pervisnum plastflöskum. Sjálfsagt hef ég horft á þær afsakandi augum, en hitt man ég betur, þá hugsun mína, einbeitta, að hér mættust tímarnir tvennir. Gömul öld og ný.  Afi vildi saltan mat, það saltan að hann svitnaði undan. Og súran mat, það súran að hann sviði í augun, en þó ekki svo að tennurnar losnuðu. Og siginn, það siginn að mann sundlaði í skrefinu.  Faðir minn er skilgetið af kvæmi þessa tíma þegar matur var ýmist saltur, súr eða siginn. Fast að níræðu geymir hann enn þá birgðir af hákarli í ísskápnum sínum frammi í bílskúr. Og það sækir að honum eitthvert óyndi ef alvarlega er farið að ganga á föngin. Og hákarl er ekki það sama og hákarl í hans huga. Hann skal míga mjög í munni, eins og það heitir hjá Strandamönnum af org­ inala taginu. Það merkir að skufsinn skuli vera það kæstur að ýlduna leggi um allan munn, uns bitinn bráðni í þann mund sem honum er slokað niður. Og alltént og í öllu falli, að hann mígi í munni.  Pabbi er fæddur á milli heimsstríð­ anna fyrir norðan hníf og gaffal. Í harðbýlustu sveit landsins þar sem vegurinn endar við ysta haf. Hann er af þeirri kynslóð sem lagaði sig að landinu. Eins og allar kynslóðirnar þar á undan höfðu gert. Og þegar kom að matarborðinu á Melum í Trékyllisvík var mótunin þessi: Matur var góður. Allur matur var góður. Af þeirri einföldu ástæðu að hann var svo vel þeginn. Áratugum seinna fór hann að þiggja mat í mínum húsum. Alla vega mat, kokkaðan upp úr krydd­ uðustu matreiðslubókum þessa heims. Og þótt ég sæi á svip hans að ýmislegt gengi á í kollinum á meðan hann reyndi við þessa rétti mína, var viðkvæðið alltaf það sama, þetta væri gott. Einstaka sinnum – og það var eftir að ég byrjaði að bjóða honum upp á japanskt sushi með heldur miklu magni af vasapi, var tilsvarið af öðrum toga, þetta væri sérstakt. Sumsé, hvað sem á gengur, getur matur ekki verið vondur í huga svona manns. Í versta falli sér­ stakur.  Afi borðaði líka allan mat. Nema undir það síðasta þegar ættfólkið reyndi að koma grilluðum pútum ofan í hann. Nei, þvílíkan fiður­ fénað myndi hann aldrei gleypa. Og deyja fyrr. Sem hann svo gerði.  Minningin er samt þessi. Ein sú ógleymanlegasta. Af ættarmóti í Ófeigsfirði. Við þrír að ráfa á milli tjalda með súrsaða selshreifa í höndum, svo hvínandi sýrða að óþarft var að hafa áfengi um hönd. Ég rifja þetta stundum upp á fjöllum í seinni tíð. Innan um hóp af góðum gönguvinum. En þá finnst þeim stundum dauninn leggja af mínum kosti, lyktandi lifrarpyls­ unni og jússulegum steinbítnum, hengdum og hertum, í feitasta lagi. Hvort ég eigi ekki bara að koma með selshreifa næst? En þá er talinu eytt.  Matarhefðir Íslendinga eru á köfl­ um skrýtnar. Svo ekki sé meira sagt. Í grunninn er þar blanda af basli, fátækt og harðbýli, svo og forn­ fálegum geymsluaðferðum. Þegar ég skrifaði ævisögu Guðna Ágústssonar rifjaði hann upp sög­ una af föður sínum á unga aldri á Stokkseyri í byrjun síðustu aldar. Fátæktin var þá slík að stundum hefðu stráklingarnir stolist í grútar­ kútana hjá körlunum, bægt flugna­ skáninni burt með lófunum og svo sopið djarft og duglega á þykku lýsinu. Það hét að svía sultinn. Ólíkindin eru þau að öldinni seinna státa Íslendingar af einu sigursælasta kokkalandsliði heims­ kringlunnar. Á þessum grunni hafa mathúsin risið, sem að gæðum eru á við það kræsilegasta sem hægt er að reiða fram á restiröntum nýrra tíma. Ástæðan er kannsk i sú að íslenska eldhúsinu var hent í heilu lagi inn í nútímann. Það fékk ekkert andrými. Það varð að redda sér. Um tíma leit það illa út, vissulega. 1970. Sjoppurnar. Þær buðu upp á soðin svið með frönskum og kok­ teilsósu. Hvorki fyrr né síðar hafa þeir mæst jafn harkalega, tímarnir tvennir. En svo áttuðu menn sig á því að grunnurinn var góður, snillingar á borð við Rúnar Marvinsson báru einmitt virðingu fyrir baslinu og bollokinu, fyrri tíma tasli – og gerðu uppreist gegn hamborgaravæðingu heillar þjóðar. Og litu sér nær. Á endanum sigraði hráefnið. Matur úr héraði. Fiskur, kjöt og grænmeti frá einum kaldasta kima jarðar. Kostur kynslóðanna, borinn fram af djörf­ ung og hugviti síðari tíma soðgreifa sem öðru fremur kusu ferskleikann.  Það er af þessum sökum sem rétt­ irnir á Fiskfélaginu í Reykjavík, Gilbakka á Hellissandi, Skerinu í Ólafsvík, Tjöruhúsinu á Ísafirði, Örkinni á Akureyri, Nielsen á Hér­ aði, Kaupfélagsbarnum á Norðfirði, Slippnum í Eyjum, Fjöruborðinu á Stokkseyri og Vitanum í Sandgerði eru með því gómsætasta sem hægt er að gæða sér á. Ferskleikinn, beint úr hafi og haga, skilar sér. Eftirminnilega.  Meira að segja á Ströndum æsku minnar, af öllum stöðum, undrast maður matseldina á Kaffi Norður­ firði, sakir trakteringanna og til­ þrifanna. Og það hefði verið sjón að sjá þá feðga, afa minn og föður, sitja þar að súpunni, sneisafullri af kræklingi og krabba. Sérstök hefði hún þótt. Afsakið, íslenskur matur 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.