Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 64
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elsku maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, stjúpi og stjúpafi,
Sigmundur Sigfússon
geðlæknir,
lést á heimili sínu föstudaginn
29. janúar. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju, mánudaginn 22. febrúar
kl. 13.30. Því miður getur athöfnin ekki verið öllum opin
vegna sóttvarna. Streymt verður á Facebooksíðunni:
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - Beinar útsendingar.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hans er bent á að styrkja góð málefni.
Ingiríður Sigurðardóttir
Marjón Pétur Sigmundsson Oorawan Sukphuwong
Sigfús Þór Sigmundsson Erna Hjaltested
Benedikt Sigmundsson Hala Mamdouhdóttir
Haraldur Sigmundsson
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir Mathurin Matharel
barnabörn og stjúpbarnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Ástvinur minn, bróðir okkar og mágur,
Jón Hreinn Gíslason
lést á sjúkrahúsi í Linköping, Svíþjóð
þann 14. febrúar.
Guðrún Helgadóttir
Hrefna Brynja Gísladóttir Snorri Óskarsson
Rannveig Gísladóttir Haney Marc Haney
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Brynhildur Guðlaug
Kristjánsdóttir
ljósmóðir,
frá Löndum í Stöðvarfirði,
Víðivöllum 16, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu 12. febrúar.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn
24. febrúar kl. 14. Streymt verður frá athöfninni á
selfosskirkja.is
Þórarinn Ingimundarson
Þórdís Þórarinsdóttir Gunnar Hrafn Sveinbjörnsson
Aðalheiður Kristín
Þórarinsdóttir Árni Oddsson
Hjörtur Þórarinsson Eyrún Olsen
Brynja Þórarinsdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir Stefán Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir
til allra sem sýndu
okkur hlýhug við
fráfall frænku okkar,
Arndísar Steingrímsdóttur
Óttar, Steingrímur, Lára María og Björg Ellingsen
Lára Margrét, Guðrún og Katrín Sigurðardætur
Steingrímur, Þóra og Vigdís Löve Jónsbörn
og fjölskyldur.
Stúlkan sem stöðvaði heiminn er nýjasta verk leikhópsins 10 fingur. Leikritið segir frá ungri stúlku með f jörugt ímyndunaraf l sem sankar að sér alls kyns hlutum sem aðrir
hafa ekki áhuga á og býr til sinn eigin
heim úr nammibréfum, plastpokum
og dósum. Þegar fjölskylda stúlkunnar
þarf að f lytja vilja foreldrar hennar
ekki að hún taki heiminn sinn með sér
heldur losa sig við hann á ruslahaug-
ana. Við tekur tilfinningaríkt ferðalag
sem leikhópurinn túlkar með plasti.
„Hugmyndin að sýningunni kom til
mín fyrir mörgum árum,“ segir Helga
Arnalds, leikstjóri sýningarinnar. „Ég
las bókina Prýðislandið eftir Grace
McCleen sem heillaði mig mjög. Við
byggjum verkið ekki á þeirri sögu en
hún var kannski kveikjan.“
Helga stofnaði leikhúsið 10 fingur
fyrir um þrjátíu árum síðan. „Upphaf-
lega var þetta einnar konu leikhús, þar
sem ég var að gera litlar sýningar sem
pössuðu í bílinn minn og ég lék í sjálf,“
segir hún. „Þannig var þetta í tals-
verðan tíma, en eftir um 15 ár fór ég í
Listaháskólann í myndlistarnám. Eftir
það fóru sýningarnar að breytast og ég
fór að vinna meira með að byggja þær
á spuna með efni.
Í sýningunni Skrímslið litla systir
mín spunnum við með pappír og í
sýningunni Lífið var notast við mold.
Í þetta skipti völdum við plast,“ segir
Helga. „Við byrjum aldrei sýningarnar
okkar á handriti. Við byrjum á mynd-
inni, efninu sem við viljum vinna með.
Síðan kemur söguþráðurinn til okkar
út úr efninu.“
Þar sem sýningar 10 fingra eru svo
myndrænar segir Helga að erfitt geti
verið að útskýra þær í orðum. „Maður
verður helst að sjá þær. Það er svo margt
sem gerist í myndinni. Í þetta skipti er
handritið afurð plastsins, sem er í raun
dásamlegur efniviður þó hann hafi
vont orð á sér.“
Þótt sýningin sé líklega stærsta verk-
efni 10 fingra til þessa hafa Skrímslið
litla systir mín og Lífið verið að gera
það gott ytra. „Það er búið að setja
þetta upp á hátíðum um allan heim,
en faraldurinn setti auðvitað strik í
reikninginn,“ segir Helga. „Við eigum
inni boð til Japans, Frakklands, Kína
og f leiri landa, sem við hlökkum til að
kanna þegar aðstæður leyfa.“
Helga hvetur alla þá sem vilja verða
fyrir hughrifum í leikhúsi að kynna
sér Stúlkuna sem stöðvaði heiminn.
„Þetta er djúp upplifun sem við höfum
skapað hérna í Borgarleikhúsinu,“ segir
hún. „Við höfum verið að miða þetta
við börn á aldrinum svona 9–14 ára, en
við höfum séð að alveg mun yngri börn
njóta sín því þetta er svo myndrænt.
Svo hafa fullorðnir ekki síður gaman
af þessu.“ arnartomas@frettabladid.is
Handritið er afurð plastsins
Leikritið Stúlkan sem stöðvaði heiminn verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í dag.
Helga Arnalds leikstjóri segir að handrit sýningarinnar sé afurð verksins en ekki öfugt.
Helga Arnalds stofnaði 10 fingur fyrir um 30 árum síðan þegar það var einnar konu leikhús. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við byrjum aldrei sýningarnar
okkar á handriti. Við byrjum
á myndinni, efninu sem við
viljum vinna með.
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT