Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 84
Lífið í
vikunni
12.02.21-
20.02.21
ÞETTA ER KANNSKI
EKKI BEIN AFLEIÐING
OG Í RAUN KANNSKI HVOR SINN
HLUTURINN, MEÐFERÐIN OG
PÚSLIÐ, EN ALLT Í EINU ER
KOMINN ÞESSI BREYTTI
MAÐUR.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tó n l i s t a r m a ð u r i n n A nd r i Á sg r ímsson hefur sent frá sér sóló-plötuna Tónlist til að púsla við sem er á margan hátt óhefð-
bundnari en fyrri verk Andra, sem
hefur getið sér gott orð sem gítar- og
hljómborðsleikari og söngvari með
hljómsveitunum Leaves, Náttfara,
Rif og fleirum.
Hann segist hafa lagt upp með að
„gera þægilega, kósíplötu“ sem gæti
virkað sem undirleikur fyrir síð-
degisblund eða jafnvel þegar setið
er yfir púsli á kvöldin.
„Ég var kominn í óreglu og ákvað
að skella mér í meðferð sumarið
2019, sem var auðvitað mjög góð
ákvörðun,“ segir Andri, sem fann
smám saman í kjölfarið hugarró og
eirð til þess að einbeita sér aftur að
tónlist.
Milli Hraunfossa og Land-
mannalauga
„Síðan gafst náttúrlega bara í raun-
inni aldrei tími en það myndast
náttúrlega svo mikill tími þegar
maður skilur við þetta. Það var í
rauninni þannig og allt í einu átti
ég fullt af tíma og ég eyddi honum
mikið í að vinna úr gömlum hug-
myndum sem ég átti inni og svo
komu nýjar meðfram því,“ segir
Andri, sem var allt í einu aftur orð-
inn virkur í lagasmíðum og tónlist-
arupptökum. „Ég var bara of boðs-
lega duglegur við þetta en það er
hellings vinna að búa til tónlist.“
Áfengisleysinu fylgdi einnig sú
aukaverkun að Andri byrjaði að
púsla þótt hann sé ekki alveg viss
um orsakasamhengið. „Þetta er
kannski ekki bein af leiðing og í
raun kannski hvor sinn hluturinn,
meðferðin og púslið, en allt í einu er
kominn þessi breytti maður,“ segir
Andri og bætir við að fyrir með-
ferð hafi hann eiginlega verið alveg
hættur að gera eitthvað af viti í tón-
listarsköpun.
„Ég hafði komist upp á lag með
að púsla mikið og ég þakti veggina
með Íslandspúsl-seríunni,“ segir
Andri og telur upp: Hraunfossa,
Almannagjá, Sveinstind, Kirkju-
fellsfoss, Skógafoss og Landmanna-
laugar.
1.000 stykki og vínyll
„Mér finnst gaman að púsla og næs
að skella vínyl á þegar ég er að púsla.
Þetta er hin fínasta hugleiðsla sem
ég mæli eindregið með og pælingin
um að gera hina fullkomnu púsl-
plötu varð til þegar ég ákvað nú
bara að búa til eitthvert skemmti-
legt konsept úr þessu,“ segir Andri
um hvernig platan varð smám
saman til.
„Ég er aðallega í 1.000 stykkja
púsluspilum,“ segir Andri þegar
hann er spurður hversu langt hann
sé kominn í þeim efnum. „Og mér
finnst betra að hlusta á sumar
plötur en aðrar í púslinu. Ég vil hafa
þetta rólegt og ekki of mikið áreiti.
Bara svona næs tónlist, og það var
pælingin með plötunni. Þægileg
tónlist. Ég er sterkur á því sviði.“
Það er alþekkt að það er ekki
aðeins einstakur hljómurinn í
vínylnum sem heillar, heldur ekki
síður athöfnin að setja plötu á
fóninn, snúa henni við og skipta
um. Virkar það ekkert truf landi í
púslinu að þurfa alltaf að vera að
standa í þessu?
„Nei, nei. Það fylgir bara með sko,
og er svona hluti af stemningunni.
Ég gæti alveg tengt símann í græj-
urnar og látið Spotify um þetta.“
Smíðaði stúdíóið
Tónlist til að púsla við var tekin
upp snemma árs 2020 í stúdíó
Vogor en tímana fékk Andri fyrir
að leggja hönd á plóg við smíði og
uppsetningu hljóðversins. „Ég vinn
sem smiður á daginn og félagi minn,
hann Ólafur Jósepsson, Stafrænn
Hákon, hóaði í mig og spurði hvort
ég væri til í að hjálpa honum.
Hann bauð mér ótakmarkaðan
aðgang að stúdíóinu fyrir það en
ég var enn þá að drekka á meðan ég
var að byggja stúdíóið, en svo þegar
ég var kominn úr meðferð þá átti ég
þetta inni,“ segir Andri, sem stefnir
á að fylgja plötunni eftir með hækk-
andi sól en þær áætlanir fara vita-
skuld eftir ástandinu í veirumálum.
toti@frettabladid.is
Púslar edrú á vínyl
Eftir meðferð öðlaðist Andri Ásgrímsson tíma og hugarró til þess
að púsla og semja tónlist sem hentar vel fyrir slíka hugleiðslu.
Platan er nú þegar aðgengileg á Spotify og vínyllinn ómissandi er væntanlegur en hægt er að panta plötuna
„beint frá bónda“, eins og Andri orðar það á netfanginu andriasgrimsson@gmail.com. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SÝNILEIKI TÓNLISTAR-
KVENNA
Tólf helstu
stofnanir og
samtök tengd
íslensku
tónlistarlífi
skrifuðu undir
Keychange-
skuldbindingu sem
felur í sér að þær skuldbinda sig
til að stuðla að auknum sýnileika
kvenna í tónlistarheiminum.
Eliza Reid forsetafrú er sérlegur
sendiherra verkefnisins ásamt
tónskáldinu Önnu Þorvaldsdóttur.
TAUMHALD Á SKRÍMSLUM
Spunanördinum
Gísla Gunnari
Guðmunds-
syni rennur
blóðið svo til
skyldunnar
að hann býður
áhugasömum og
ævintýraþyrstum
upp á þjónustu sem felur í sér
leikjastjórn og umsýslu með
aukapersónum og skrímslum í
hlutverkaspilinu Dungeons & Dra-
gons. Hann hefur einnig haslað sér
völl í netspilun utan landhelgi á
YouTube og Twitch.
UMHVERFISÁHUGI
Myndlistarmaðurinn Aron Leví
Beck opnar sýninguna Á milli húsa
í Hannesarholti í dag. Aron tekur
sæti í borgarstjórn fyrir Sam-
fylkinguna á næstunni en hann
sækir innblástur í nærumhverfi
sitt og borgarmyndir eru áberandi
á sýningunni.
ÞAÐ BESTA FRÁ BÁÐUM
Hildur Kristín Stefánsdóttir og
Ragna Kjartansdóttir, einnig þekkt
sem Cell7, stofnuðu hljómsveitina
RED RIOT í upphafi COVID-farald-
ursins. Fyrsta lag þeirra kom út í
gær en Hildur segir þær koma úr
svo ólíkum áttum í tónlistinni að
þær bæti hvor aðra upp.
Styður við bakið á þér!
Stærð í cm
Fulltverð m/Classic
botni og löppum
AD-tilboð m/
botni og löppum
120x200 155.900 kr. 124.720 kr.
140x200 169.900 kr. 135.920 kr.
160x200 184.900 kr. 147.920 kr.
180x200 199.900 kr. 159.920 kr.
180x210 214.900 kr. 171.920 kr.
192x203 224.900 kr. 179.920 kr.
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Sealy PORTLAND
heilsurúm með classic botni
Gæði á góðu verði.
Portland er með góðum og sterkum poka
gormum og kantstyrkingum. Dýnan er millistíf
og með pillow top úr mismunandi
stífum svamplögum og trefja lagi.
Mýkt á móti stífum og góðum
gormum. Áklæðið er mjúkt og gott
bómullar áklæði sem andar einstaklega
vel. Dýna sem hentar öllum sem vilja
gæða vörumerki og vandaða vöru.
20%
AFSLÁTTUR
Amerískir
DAGAR
Sealy er annar stærsti
dýnuframleiðandi í
heimi og hefur verið
starfandi í 140 ár.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Amerískir dagar
Sealy SEATTLE
heilsurúm með classic botni
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Stærð í cm
Fulltverð m/Classic
botni og löppum
AD-tilboð m/
botni og löppum
90x200 109.900 kr. 87.920 kr.
120x200 145.900 kr. 116.720 kr.
140x200 159.900 kr. 127.920 kr.
160x200 174.900 kr. 139.920 kr.
180x200 189.900 kr. 151.920 kr.
200x200 229.900 kr. 183.920 kr.
Frá einum stærsta fram leið-
anda heilsudýna í heimi.
Vönduð og góð, millistíf heilsudýna
með pokagormum sem gefa
fullkominn stuðning. Hún er svæða
skipt og því mýkri á okkar þyngstu
stöðum eins og öxlum og mjöðmum.
Náttúrulegt Talalay latexi í bland við
mismunandi svamptegundir gefur
henni gott loftflæði..
20%
AFSLÁTTUR
Amerískir
DAGAR
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð