Fréttablaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 74
Í STAÐINN FYRIR AÐ
ENDURTAKA SAMA
VERKIÐ Í MISMUNANDI BLÆ-
BRIGÐUM VINN ÉG MEÐ NÚNING
Á MILLI VERKA SEM ÉG FINN AÐ
MYNDA ÓVÆNTAN SAMHLJÓM.Haraldur Jónsson myndlistarmaður sýnir ný verk í Berg C o n t e m p o r a r y. Yfirskrift sýningar-innar er Ljósavél.
„Ég kanna skynjunina í verkum
mínum, f löktið á milli ljóss og
myrkurs og hef alltaf verið heillaður
af ljósaskiptunum sem ríkja stöðugt
við eyru, augu, munn og nef,“ segir
Haraldur. „Titillinn birtist mér á
vinnustofunni einn morguninn og
er eins konar frumminning frá því
þegar ég var barn í sveit og bóndinn
bað mig um að kveikja á ljósavél-
inni. Þegar ég var að vinna í bygg-
ingavinnu á unglingsárunum þá
unnum við í hálfreistum húsum þar
sem var ekkert rafmagn og ljósavél
var notuð til að lýsa upp umhverfið.
Mér finnst þessi titill ríma mjög vel
við verkin og þetta millibilsástand
sem ég er að virkja; samspil líkam-
ans við arkitektúrinn og hvernig
manngert umhverfi hefur áhrif á
athafnir okkar og hegðun.“
Titilverkið Ljósavél er vídeó-
innsetning. „Verkið hverfist um
gjörning sem átti sér stað í innri sal
gallerísins áður en sýningin opnaði.
Titillinn dregur upp mynd af þeirri
atburðarás.“
Haraldur segir verkin geta virst
ólík við fyrstu kynni en um leið
mætast þau úr ýmsum áttum.
„Ánægjan og spennan við að setja
upp sýningu felst umfram allt í að
leiða saman mismunandi verk. Ég
hef alltaf unnið þannig að í staðinn
fyrir að endurtaka sama verkið í
mismunandi blæbrigðum vinn ég
með núning á milli verka sem ég
finn að mynda óvæntan samhljóm
og hvert og eitt getur líka staðið eitt
og sér.“
Lét blóð renna á flöt
Eitt verkanna er Gátt sem er gert úr
fimm lítrum af rauðri innimáln-
ingu. Við gerð verksins kom blóð við
sögu. „Það er gjarnan undirliggjandi
gjörningur í verkum mínum, þar
sem ég er oftar en ekki innblásinn
af daglegum athöfnum okkar. Ég
hef áður unnið með blóð og á yfir-
litssýningu minni á Kjarvalsstöðum
gátu gestir komið á ákveðnum tíma
og látið draga úr sér blóð og farið
síðan með það heim sem minningu
um sig og verkið. Á þessari sýningu
ákvað ég að kanna þessa vídd frekar.
Ég fór í málningarverslun þar sem ég
stakk mig með sótthreinsaðri nál í
vísifingurinn og lét blóð renna á
f löt sem var síðan skannaður inn í
litakerfi búðarinnar. Ég fékk fimm
lítra af rauðri innimálningu sem
er einmitt magn blóðsins í okkur.
Ég málaði síðan þessa fimm lítra á
afmarkaðan flöt hér í salnum. Þann-
ig verður til eins konar skermur sem
endurspeglar ákveðið ástand.“
Tilnefndur til verðlauna
Annað verk á sýningunni, Svimi, er
búið til úr hljóðeinangrandi teppi
sem er fest á vegginn með frönskum
rennilás. „Í verkum mínum fylgi ég
skynjuninni sem opnar stöðugt
nýja möguleika og hún ræður úr
hvaða efni verkið verður til og líka
hvernig það er sett saman. Það þarf
að huga að hverju smáatriði,“ segir
Haraldur.
Á sýningunni er verkið Sónar,
sem er röð stakra silkiþrykks-
mynda. „Þetta form fór að sækja
á mig en ég hef alltaf haft áhuga á
gegnumlýsingu og myndbirtingu
hins ósýnilega. Þessi sería varð eig-
inlega til af sjálfu sér. Formið er upp-
haflega tómt, ég þrykki síðan með
svörtum farva og veit útkomuna
ekki fyrir fram. Þannig er ég í raun
að skrásetja sjálft sköpunarferlið,
hvert verk er einstakt og útkoman
er líka ákveðið sönnunargagn.“
Haraldu r er t ilnef ndu r t il
Íslensku myndlistarverðlaunanna
fyrir þessa áhugaverðu sýningu. „Ég
er virkilega glaður yfir því að vera
þar, í góðum hópi kollega,“ segir
hann.
Laugardaginn 20. febrúar kl. 15
verður listamannaspjall um sýn-
inguna Ljósavél með Haraldi.
Fylgir skynjuninni
sem opnar ætíð
nýja möguleika
Haraldur Jónsson sýnir sjö ólík verk í
Berg Contemporary. Þar vinnur hann
meðal annars með blóð. Sýningin, sem
hefur titilinn Ljósavél, er tilnefnd til Ís-
lensku myndlistarverðlaunanna.
Á sýningunni
leiðir Haraldur
saman mis-
munandi verk.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Hér má sjá verk gert úr fimm lítrum af rauðri innimálningu og verkið Sónar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Re
ykj
aví
k
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING