Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Blaðsíða 142
1961
— 140 —
heiraili var vigt á Barðaströnd í sumar, og er það mikil lyftistöng fyrir
félagslif þessa byggðarlags, svo sem vænta má.
Ólafsfj. Á árinu var tekið í notkun nýtt og vandað félagsheimili. Er
hér um mjög myndarlegt hús að ræða og vel frá gengið. Aðalsalur
hússins tekur milli 2 og 3 hundruð manns í sæti, auk svala með um eitt
hundrað föstum sætum til leik- og kvikmyndasýninga. Fullkomnar kvik-
myndasýningarvélar hafa þegar verið settar upp. Auk þessa eru tveir
rúmgóðir fundarsalir.
Þórshafnar. Sundlaugin hér er gömul og afar dýr i rekstri.
Eskifj. Sundlaug í byggingu á Eskifirði.
Kirkjubæjar. Allir, sem með nokkru móti geta losnað, fara til vinnu
i verstöðvunum. Þaðan berast svo „menningaráhrifin“ inn í mannlífið,
þegar sumrar í sveitinni. Gætir þess mest í sambandi við almennar sam-
komur, þar sem elskuleg hlédrægni víkur fyrir ruddalegum umgengnis-
háttum, vínþambi og salernasöng. Er raun til þess að vita, að félags-
heimilin verða gróðrarstía þessarar félagslegu hnignunar.
Laugarás. 1 héraðinu eru nú tvö ný glæsileg félagsheimili, hið þriðja
er í smíðum, og þrír hreppar notast við heimavistarbarnaskóla til sam-
komuhalds. Því fer fjarri, að allar samkomur í félagsheimilunum nýju
geti talizt til menningarauka eða fyrirmyndar fyrir héraðsbúa. Þær eru
haldnar í fjáröflunarskyni, selt inn jafnmörgum og mögulegt er og oft
langt fram yfir húsrými. Böllin eru auglýst og ballgestum smalað sem
víðast að. Er nú alvanalegt, að drukknir og slasaðir dansgestir komi um
miðjar nætur til að njóta læknishjálpar. Hvorki mun ætlazt til, að
drukknum mönnum né unglingum undir 16 ára aldri sé hleypt á sam-
komur þessar. Fáir munu kippa sér upp við það, þótt önnur hvor reglan
væri brotin, en ákaflega óheppilegt er að brjóta báðar í einu. Það væri
mjög æskilegt, að vegabréfaskyldu væri komið á, svo að gæzlumenn ættu
hægara með að framfylgja settum reglum.
8. Framfarir til almenningsþrifa.
Akranes. Þar má til nefna áframhald við að steypa götur bæjarins.
Ólafsvikur. Komið hér nýtt sláturhús, en slíkt vantar á Hellissandi,
og er aðstaðan til að skoða þar slæm.
Patreksfj. Byggð verbúðabygging af nýjustu og fullkomnustu gerð með
aðstöðu fyrir 4 báta. Einnig reist fislciðjuver til saltfiskverkunar.
Suðuregrar. Á sumrinu var unnið að því að moka upp höfn fyrir
fiskibátana. Var höfnin tekin i notkun síðastliðið haust, og er það
mikið hagræði, þótt enn sé hún ekki fullgerð. Löndun er hér hægari og
öryggi bátanna meira.
Hólmavikur. Byggt var við hraðfrystihús kaupfélagsins í Hólmavík og
bryggjan þar endurbyggð og stækkuð
Ólafsfj. Tekið var í notkun seint á árinu nýtt verzlunarhús, Valberg h/f-